Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Blaðsíða 43
Á efri myndunum hittast nafnar, og hjúkrunarkonur og kennarar drekka kaffi. Fulltrúar bæjarstarfsmanna eru
á neöri myndunum, Reykvíkingar tii vinstri en Akureyringar o. fl. til hægri.
og Stafestjenestemændenes Centralorganisation II
(CO II), Danmörku.
Fyrsti fulltrúafundur hins endurstofnaða sam-
bands var haldinn í Stokkhólmi 6. og 7. júní í
sumar og sátu hann af hálfu B.S.R.B. þeir
Kristján Thorlaeius og Bjarni Sigurðsson.
Próf ritara:
í úrskurði Kjaradóms frá 30. nóv. 1965 er gert
ráð fyrir prófum fyrir ritara, er ráði að vissu
marki skipun ritara í launaflokka. Þriggja manna
prófnefnd sér um framkvæmd prófanna, ákveður
verkefni og metur úrlausnir.
Formaður prófnefndar var skipaður Eiríkur
Ásgeirsson, forstjóri með samkomulagi aðila.
B.S.R.B. tilnefndi af sinni hálfu Sverri Júlíus-
son, formann Starfsmannafélags ríkisstofnana.
Fjármálaráðherra tilnefndi af sinni hálfu Jóhann
Einvarðsson, fulltrúa.
Fyrsti hópurinn hefur nú lokið ritaraprófi 1.
stigs, sem veitir hækkun úr 7. fl. í 10. launafl. og
stóðust 12 prófið.
í haust mun síðan aftur haldið ritarapróf 1.
stigs og væntanlega einnig ritarapróf 2. stigs, sem
getur veitt hækkun í 13. launaflokk.
Inntökubeiðnir félaga:
Stjórn B.S.R.B. hafa borizt inntökubeiðnir frá
tveim félögum:
Félagi íslenzkra flugumferðastjóra.
Félagi starfsmanna loftskeytastöðvarinnar í
Gufunesi.
Um inntökubeiðnir þessar mun verða fjallað
sérstaklega á þingi B.S.R.B. í sambandi við skipu-
lagsmál samtakanna.
Hagráð:
Samkvæmt lögum frá síðasta Alþingi var
stofnað Hagráð er í eiga sæti fulltrúar frá ríkis-
stjórninni og ýmsum samtökum. Samkv. lög-
unum skal B.S.R.B. tilnefna einn mann í Hag-
ráð og einn varamann.
Stjórn B.S.R.B. tilnefndi Harald Steinþórs-
son, 2. varaform., B.S.R.B.. sem aðalmann og til
vara Guðjón B. Baldvinsson.
ÁSGARÐUR 43