Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Qupperneq 45
Félagsdómur:
Samkvæmt kjarasamningalögunum skal B.S.
R.B. tilnefna einn mann í Félagsdóm, er tekur
þar sæti, þegar fjallað er um mál opini'erra
starfsmanna.
Stjóm B.S.R.B. hefur tilnefnt Jón Finnsson,
lögfræðing, til að taka sæti í Félagsdómi til
3ja ára.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Stjórn B.S.R.B. hefur tilnefnt Kr. Guðmund
Guðmundsson, tryggingafræðing í stjórn Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins til 3ja ára, en
Guðmundur hefur frá 1943 verið fulltrúi sam-
takanna í sjóðstjóminni.
1. maí:
B.S.R.B. tók ekki þátt í hátíðahöldum 1. maí,
en stjóm bandalagsins sendi blöðum og útvarpi
ávarp í tilefni dagsins bæði árin 1965 og 1966.
Samningsréttur opinberra starfsmanna:
Þótt í upphafi væru tengdar allmiklar vonir
við þann takmarkaða samningsrétt, sem fékkst
með kjarasamningalögunum frá 1962, varð
mönnum ljóst eftir úrskurð Kjaradóms í marz
1964, að ákvæðin um gerðardóm myndu verða
starfsmönnum mjög í óhag. Enn ljósara varð
þetta eftir að Kjaradómur hafði kveðið upp
úrskurð 30. nóv. s. 1., þegar ekki náðist sam-
komulag um nýja kjarasamninga opinberra
starfsmanna til næstu tveggja ára.
Þegar samkomulag varð 1962 um frumvarp
til laga um kjarasamninga opinberra starfs-
manna, settu samtökin traust sitt á ákvæði 7.
og 20. gr. laganna. Þessi ákvæði áttu beinlínis
að koma í stað verkfallsréttar, sem hefur verið
og er aðalkrafa B.S.R.B.
í 20. gr. eru ákvæði um, að Kjaradómur skuli
við úrlausnir sínar m. a. hafa hliðsjón af kjör-
um launþega við sambærileg störf hjá öðrum
en ríkinu og ákvæði 7. gr. áttu að tryggja, að
laun opinberra starfsmanna hækkuðu jafnan,
ef almennar launahækkanir yrðu á samnings-
tímabili, sem ákveðið er 2 ár í lögunum.
Hinir færustu lögfræðingar hafa haldið því
fram, að rétt túlkun á kjarasamningalögunum
sé, að laun opinberra starfsmanna beri sam-
kvæmt þeim að miða við annað kaupgjald í
landinu.
Þar sem framkvæmd laganna hefur verið á
annan veg samþykkti bandalagsstjómin snemma
árs 1965 að fá flutta á Alþingi þingsályktunar-
tillögu um endurskoðun löggjafar um samnings-
rétt opinberra starfsmanna. Var slík tillaga sam-
in og formanni falið að leita eftir flutningsmönn-
um að henni, helzt frá öllum stjómmálaflokk-
um. I sambandi við þá athugun kom í ljós, að
ríkisstjómin var reiðubúin að skipa nefnd til
þess að endurskoða samningsréttarlögin. Var sú
nefnd skipuð vorið 1965 með fulltrúum frá ríkis-
stjórninni og B.S.R.B. Em í nefndinni fjórir full-
trúar frá ríkisstjórninni og þrír frá bandalaginu.
Þessir menn eiga sæti í samningsréttamefnd.
Frá ríkisstjórninni: Jónatan Hallvarðsson, hæsta-
réttardómari, form., Gunnlaugur E. Briem, ráðu-
neytisstjóri, Jón Þorsteinsson alþm. og Sigtrygg-
ur Klemenzson, bankastjóri. Frá B.S.R.B.:
Kristján Thorlacius, deildarstjóri, Guðjón B.
Baldvinsson, deildarstjóri og Teitur Þorleifs-
son, kennari.
Eftir síðasta úrskurð Kjaradóms samþykkti
bandalagsstjómin, að óhjákvæmilegt væri að
opinberir starfsmenn fengju fullan samnings-
rétt, þar með talinn verkfallsrétt. Fól stjómin
fulltrúum bandalagsins í samningsréttamefnd
að vinna að því að nefndin semdi framvarp til
laga um fullan samningsrétt til handa opinber-
um starfsmönnum.
Þessi tillaga hefur verið send formanni samn-
ingsréttamefndar, en svar er enn ókomið.
Bandalag háskólamanna:
Fyrir nokkrum áram var stofnað Bandalag há-
skólamanna, sem um nokkurt skeið hefur unnið
að því að afla fylgis við það að þau samtök
verði viðurkenndur samningsaðili um kjaramál
háskólamanna hjá ríkinu.
Hafa B.S.R.B. borizt tilmæli frá Bandalagi há-
skólamanna um, að það styðja óskir þess um
sérstakan samningsrétt því til handa.
Tilnefndi stjóm B.S.R.B. nefnd til viðræðu
við fulltrúa frá B.H.M. og var haldinn einn fund-
ur, þar sem skipzt var á skoðunum.
Læknafélag íslands hefur þegar sagt sig úr
B.S.R.B., sömuleiðis allmargir framhaldsskóla-
kennarar og Prestafélag fslands mun hafa sam-
þykkt ó síðasta aðalfundi að heimila stjóm sinni
að undirbúa úrsögn úr samtökunum.
A fundi bandalagsstjómar 1. april 1966 var
rædd afstaða bandalagsins til kröfu B.H.M. um
samningsrétt til jafns við B.S.R.B. og var gerð
svofelld ályktun um þetta mál:
„f sambandi við fyrirspum formanns samn-
ÁSGARÐUR 45