Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Page 14

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Page 14
Frá efnahagsráðstefnu BSRB Mikil áhrif opin- berra aðgerða á atvinnuiífið Ásmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri ASÍ, og Björn Arnórsson, hagfræðingur BSRB, höfðu framsögn undir dagskrárliðn- um „áhrif opinberra aðgerða á atvinnulífið“ og var Ásmundur með fyrri framsögu. Asmundur: Full atvinna, en óstöðugt verðlag Ásmundur nálgaðist efnið á sögulegan hátt og minnti á helstu aðgerðir, er haft hafa áhrif á atvinnulífið á síðustu áratugum. Opinberar aðgerðir hafa verið mjög mis- miklar og margvíslegar. Um og upp úr kreppunni og fram undir 1960 var atvinnu- lífinu stýrt með ýmis konar hömlum og höftum. Þeim var svo smám saman aflétt með „viðreisninni" á sjöunda áratugnum og nær algjörlega með inngöngunni í EFTA 1970 og með samningum við Efnahags- bandalag Evrópu 1973. Samstaða um markmið Nánast allir virðast sammála um eftir- farandi atriði: 1) að auka hagvöxtin, það gerum við með því að framleiða meira í ár en í fyrra. 2) að auka kaupmátt launa. 3) að halda verðlagi stöðugu. 4) að allir hafi vinnu. 5) að opinber þjonusta sé fullnægjandi. 6) að tekjur landsmanna séu sem jafnastar. 7) að jafnvægi sé í viðskiptum við útlönd, þ.e. að ekki sé keypt fyrir meira en aflað er í erlendum gjaldeyri. 8) að reyna að jafna út sveiflur er verða í efnahagskerfinu milli þess að mikið veiðist og þess að lítið veiðist. Þokkalega hefur gengið að nálgast mörg þessara markmiða. Haldið hefur verið fullri atvinnu, svo dæmi sé tekið, en erfiðar hefur gengið með önnur, og má nefna það að halda verðlagi stöðugu. Hagstjómartœki ríkisvaldsins Eftir að hafa fjallað um þá árekstra, sem geta komið upp milli þeirra markmiða, sem hér hafa verið nefnd, fjallaði Ásmundur ítarlega um þá möguleika sem ríkisvaldið hefur til þess að stjórna efnahagsmálum þjóðarinnar. Fyrst nefndi hann að ríkisstjórnir geta haft áhrif á efnahagsmálin gegnum fjár- lagagerð. Með fjárlögum eru tekjur og út- gjöld ríkisins ákvörðuð og hægt er til dæmis að afgreiða hallalaus fjárlög, það er að út- gjöld fari ekki fram úr tekjum. Þá nefndi hann að ríkisstjómir geta haft áhrif gegnum lána og peningamál. Þær geta haft áhrif á útlán banka, haft hemil á sínum eigin lántökum, ákvarðað vexti og svo framvegis. Þær geta með gengisbreytingum ákvarð- að verð á erlendum gjaldeyri og þannig hækkað eða lækkað það sem við flytjum inn, svo og það sem við flytjum út. Þannig geta þær til dæmis með gengislækkun tryggt útgerðinni hærra verð fyrir fisk á erlendum markaði, en það hefur jafnframt í för með sér að erlend vara verður dýrari á innan- landsmarkaði. Þá geta ríkisstjórnir haft áhrif með beinu eftirliti til dæmis verðlagseftirliti og aðrar aðferðir mætti nefna svo og fjöldamargt annað fróðlegt sem Ásmundur nefndi. Hann gerði t.d. samanburð á heildarskatta- tekjum sem hlutfalli af heildarþjóðartekj- um í nokkrum löndum samanber línuritið hér á síðunni. Bjöm: T apfyrirtækin þarf að skoða í erindi sínu gagnrýndi Björn að þegar efnahagsráðstafanir væru ákveðnar, væri gengið út frá svokallaðri meðaltalsafkomu fyrirtækja. Hún er fundin þannig, að tap eða gróði fyrirtækjanna er lagt saman og deilt í með fjölda þeirra. Björn taldi þetta ekki rétta aðferð. Þó að ein atvinnugrein væri illa stæð þegar á heildina væri litið, þá gæti stór hluti hennar staðið í blóma, en mikið tap verið hjá hinum verst stöddu, þannig að meðaltal heildarinnar yrði lélegt.

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.