Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Blaðsíða 20
■ -
Helga Olafsdóttir bókavörður skrifar:
Konur og launaflokkar
Hér birtist súlurit yfir röðun í launaflokka innan Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar (St. Rv.). Launaskrá borgarinnar frá í nóvember 1978 var lögð til
grundvallar. Þar sem fjarska lítil tilfærsla er milli launaflokka á samnings-
tímabilum mun súluritið gefa sanna mynd af því hvernig karlar og konur raða
sér á launastigann. Aðeins þeir eru teknir með sem taka laun eftir launakerfi
St.Rv., en ekki þeir sem taka laun eftir samningum B.H.M. Sömuleiðis skal
það vandlega tekið fram að þetta er súlurit yfir röðun í launaflokka en ekki
greidd laun. Tæki súluritið einnig til B.H.M. fólks og ef það sýndi greidd laun
mundi það tvímælalaust endurspegla miklu meiri launamismun karla og
kvenna en það gerir í þessari mynd. Mun fleiri karlar en konur hjá borginni
taka laun eftir samningum B.H.M., og allir borgarstarfsmenn vita að yfir-
vinnugreiðslur fyrir unnar eða óunnar vinnustundir liggja frekar á lausu til
karla en kvenna.
Umfjöllun um launakjör starfsmanna
Reykjavíkurborgar er út af fyrir sig ekkert
merkilegri en annarra opinberra starfs-
manna, en ákaflega mikil fylgni er í
samningum aðildarfélaga B.S.R.B. hvort
sem viðsemjendur eru ríki, Rv.borg eða
önnur sveitarfélög, og stærstu stéttirnar
svo sem sjúkraliðar, fóstrur og fl. fara í
sama launaflokk hvar sem er á landinu.
Súlurit gert út frá því sjónarmiði sem hér
birtist myndi þess vegna endurspegla
sömu hlutföll þótt t.d. stærsta blandaða
aðildarfélagið Starfsmannafélag Ríkis-
stofnana ætti í hlut.
Þegar litið er á súluritið er áberandi að
konur þjappast á neðri hluta launastigans
og varla er hægt að segja að þær fyrir-
finnist eftir 17. lfl. Um 50% allra kvenna
hjá borginni taka laun eftir 5.—7. lfl.
Áberandi fjöldi kvenna er í 6. (sjúkralið-
ar), 8. (skrifstofustörf, bókavarsla, götun
o.fl.) og 10. (fóstrur). Karlar spanna yfir
allan stigann, en eru fjölmennastir í
8.—10. launaflokki. Þeir skera sig þó
hvergi nærri úr á sama hátt og konurnar í
umræddum 3 flokkum.
Konur eru með
4 H
lcegri laun
Sé litið í síðustu kjarasamninga milli
Reykjavíkurborgar og St. Rv. kemur
margt fróðlegt í ljós.
I 5. lfl. eru t.a.m. aðstoðarstúlkur
^ kennara við Fossvogsskóla og afgreiðslu-
menn í birgðastöðvum. Þær fyrrnefndu
bera ábyrgð á börnum, en þeir síðar-
nefndu á sápum, kústum og perum.
í 6. lfl. eru t.d. sjúkraliðar, sem hafa að
baki a.m.k. tveggja ára nám í framhalds-
skóla og eins árs sérnám. í sama flokki og
fjölmörgum hærri launaflokkum eru
karlastörf þar sem engrar menntunar
umfram skyldunám er krafist nema e.t.v.
stuttra námskeiða.
Matráðskonur nokkurra minni sjúkra-
stofnana, sem bera ábyrgð á fæði sjúkra,
eru í 9. lfl. 1 sama flokki er t.a.m. aðstoð-
aráhaldavarsla.
Deildaljósmæður, sem bera ábyrgð á
lífi ungbarna, eru í 12. lfl. I sama flokki er
verkstjórn við meindýraeyðingu.
Minnisgrein
handa
samninganef ndum
Mat á störfum kvenna
og karla.
Vandlega skal tekið fram, að enginn í
ofangreindum viðmiðunarhópum karla
eru tíndir til af því ég álíti, að þessir menn
séu oflaunaðir — heldur er hér nánast um
tilviljanakennt val að ræða. Augljóst er þó
af þessum dæmum, að í starfsmati skýtur
töluvert skökku við. Ábyrgð, menntun
eða fyrri reynsla eru smánarlega lítils
metnir þættir, þegar um dæmigerð
kvennastörf er að ræða. Dæmigerð karla-
störf eru aftur á móti metin til jafns við
fyrrgreind störf, enda þótt menntunar-
kröfur séu litlar eða engar og ábyrgð
bundið við dauða hluti. Konur fjölmenna
í heilbrigðisstéttirnar oft á tíðum vegna
reynslu við t.d. uppeldis/húsmóðurstörf
ef til vill vegna meðfæddrar tilhneigingar.
Afleiðingin er sú, að þessi störf ásamt
störfum að fóstrun og uppeldi barna eru
Helga Ólafsdóttir, bókavörður.
lægst metin allra starfa. Af þessu leiðir að
fólk með löngun og hæfileika fælist laun-
anna vegna frá störfum þar sem mannslíf
eru í veði og grunnur er lagður að framtíð
barnanna okkar. Streymið í þessi störf
einskorðast svo til eingöngu við annað
kynið samanber unglingspiltinn sem
hafði gott lag á börnum en svaraði „held-
urðu að ég ætli að vera á þínu framfæri
alla æfi, mamma mín“ þegar móðirin
stakk upp á því að hann legði fyrir sig
fósturstörf.
Skrifstofustörf
kvenna/karla
Skrifstofustörf (1, Ia, II o.s.frv.) eru
metin frá neðstu flokkum og upp í 10. lfl,
„skrifstofustörf IVa“. Ekki er gott að átta
sig á því hvað er á bak við þetta eina heiti
sem spannar yfir heila 8 lfl. Samkvæmt
upplýsingum sem ég fékk á stórum
vinnustað hér í borg annast eingöngu
konur „skrifstofustörf“ þar, og mun svo
vera víðast annars staðar. Karlmenn við
skrifstofustörf heita yfirleitt fulltrúar og
eru í 11. launaflokki og upp eftir. Erfitt er
að koma auga á hvaða þættir aðrir en
kynferði eru lagðir til grundvallar við mat
á þessum starfsheitum annars vegar karla
og hins vegar kvenna við skyld störf.
Fæmi í vélritun, tungumálakunnátta,
staðgóð þekking á íslensku og íslenskri