Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Síða 24

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1980, Síða 24
BANDALAG STARFSMANNA RÍKIS OG BÆJA Útgefandi: Bandalag starfsmanna ríkis og bæja • Rit- stjóri og ábyrgðarmaður: Haraldur Steinþórsson # Rit- nefnd: Jón ívarsson, Óli Vestmann Einarsson, Sigrún Stefánsdóttir og Þorsteinn Óskarsson • Ritstjórnarfull- trúi og blaðamaður: Guðni Björn Kjærbo • Ritstjórn, afgreiðsla og tilkynning heimilisfangabrcytinga: Skrif- stofa BSRB, Grettis götu 89 105 Reykjavík. Sími 26688 • Prentun og bókband: Prentstofa G. Benediktssonar, Bol- holti 6 • Innpökkun: Plastpökkun s.f. • Eintakafjöldi: 16500 • Blaðið er sent öllum félagsmönnum innan BSRB og eftirlaunafólki er þess óskar • Áskriftargjald til ann- arra: Árgjald (1979) 4000 kr. • Hvert blað (1980) 600 kr. Baksíðan Um hvað verður samið? Margur veltir þessari spurningu fyrir sér núna, þar sem kjarasamningar flestra stéttarfélaga eru lausir — og sáttafundir eru að hefjast bæði hjá BSRBog ASÍ. Meðan ekki eru neitt farnar að skýr- ast línur um efnisatriði nýrra samninga, þá væri e.t.v. rétt að nota tækifærið til að kynna þær fylkingar, sem takast á við gerð nýs kjarasamnings og hlutverk hvers og eins. Einnig er talsverður munur á samn- ingagerð opinberra starfsmanna ann- ars vegar og ASÍ félaganna hins vegar, sem þarfnast skýringa. Aðalkjarasamningur BSRB. Það eru bandalagsfélögin sjálf, sem tilnefna samninganefndarmenn BSRB — 16 ríkisstarfsmannafélög hafa þar 37 fulltrúa og 17 bæjarstarfsmannafé- lög eiga rétt á 21 fulltrúa. Formaður og báðir varaformenn bandalagsins eiga svo sæti í samninganefndinni. tökum af kröfugerðinni, og getur hver sá, sem þess óskar, fengið kröfurnar hjá bandalaginu. Mótaðilinn í samningunum er samn- inganefnd ríkisins, sem tilnefnd er af fjármálaráðherra. Eru það einkum embættismenn í háum stöðum (ráðu- neytisstjórar, skrifstofustjórar, deildar- stjórar o.s.frv.). Aðalmenn munu vera fimm, og jafnmargir varamenn. Þriðji áðilinn er svo ríkissáttasemjar- inn eða staðgengill hans (nýskipaður er Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrv. ráð- herra), sem ásamt tveimur aðstoðar- mönnum hefur á hendi verkstjórn við samningagerð. Tengslin við félagsmenn Það er afar áríðandi að við gerð nýs kjarasamnings, að félagsmenn sjálfir þekki eins vel og kostur er efni endan- legs samkomulags, eða sáttatillögu. Það er nefnilega skylda að leggja málið fyrir ríkisstarfsmenn í allsherjarat- kvæðagreiðslu og þeim er þar ætlað að samþykkja eða fella samning eða sáttatillögu. Sama gera bæjarstarfs- trúum félags þíns í samninganefnd, eða öðrum forustumönnum í BSRB? Félögin semja hjá ASÍ Hvert einstakt verkalýðsfélag innan ASÍ hefur fullan og óskoraðan samn- ingsrétt um sín mál. — Þegar þau sjálf ákveða að hafa samflot um ramma- samning, sem gæti þannig orðið sam- eiginlegur, þá er það ráðið hverju sinni og um þá samvinnu gilda ekki neinar fastmótaðar reglur. Rammasamningur og sérkjara- samningur félagsins eru síðan lagðir sameiginlega fyrir félagsfund í hverju félagi til samþykktar eða synjunar. Persónulegt samband Þannig hafa verkalýðsfélögin a.m.k. skipulagslega möguleika til persónu- legra og beinna sambands forustunnar við sína félagsmenn, heldur en t.d. rík- isstarfsmenn, sem eru í mörgum mis- munandi starfsmannafélögum og dreifðir um allt land, en greiða sameig- inlega atkvæði um aðalkjarasamning. Mynd frá fjölmennum vinnustaöatundi um kjaramál opinberra startsmanna. Samninganefndin skiptir sér oft í undirnefndir, sem fjalla um ákveðna þætti samninganna. Kröfugerðin, sem lögð var fram í tveimur áföngum á síð- asta ári hefur síðan veriö kynnt í bandalagsfélögunum — sennilega nokkuð misjafnlega mikið — en skrif- stofa BSRB hefur útdeilt yfir 3000 ein- menn með allsherjaratkvæðagreiðslu eða á fundi. Mestu máli skiptir því virkni hvers og eins. — Þekkirþú kröfurnar, sem settar hafa verið fram fyrir þína hönd? — Hefur þú mætt á fundi í félaginu þínu, eða viltu fá fund um málið á vinnu- staðnum? — Viltu fá skýringar frá full- Þennan aðstöðumun þurfum við að reyna að bæta með auknu félagslegu starfi. Ætti Ásgarður að vera einn hlekkurinn í því aukna samstarfi sem opinberir starfsmenn væntanlega efla með sér í samningum þeim, sem nú fara í hönd. Að því viljum við gjarnan stuðla hér í blaðinu. HarStþ

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.