Fréttablaðið - 18.06.2021, Page 4
Fékk sælgæti eftir yfirlið
Skáti féll í yfirlið á Austurvelli í gær, hann sakaði ekki og voru vinir hans fljótir að koma með sælgæti til hans þegar hann var staðinn upp að nýju. Skátarnir
gegndu mikilvægu hlutverki sem fánaberar í hátíðarhöldunum í gær og stóðu þau sig öll með prýði, bæði á Austurvelli og í Hólavallagarði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Renndu við og fáðu lyn afgreidd beint í bílinn
www.lyfsalinn.is
BÍLAAPÓTEK
VIÐ VESTURLANDSVEG
Fjölmargir popparar eru að
bregða undir sig betri fæt-
inum nú í júní og skunda af
stað í tónleikaferð um landið.
Friðrik Ómar og Jógvan eiga
excel-skjal með tengiliðum
á flestum tónleikastöðum
landsins og hafa fengið
beiðnir um að deila skjalinu.
benediktboas@frettabladid.is
TÓNLIST Friðrik Ómar og Jógvan
Hansen leggja land undir fót líkt og
í fyrra til að skemmta tónleikaþyrst-
um landsmönnum. Þeir eru ekki
einu poppararnir sem ætla að halda
á þjóðvegi landsins með gítara,
magnara, míkrófóna og f leira því
samkvæmt lauslegri könnun eru Jói
P og Króli að fara mikla ferð, Stebbi
Jak og Hafþór hófu sína ferð 16. júní
og Stjórnin sömuleiðis. Bríet hefur
farið víða og hljómsveitin Góss ætla
að þeysast um landið í júlí.
„Við ferðumst um á húsbíl við
Jógvan og okkar tæknimaður sem
sér um allt róterí svo við getum verið
dívur og leikið okkur,“ segir Friðrik
Ómar. „Það er svo gaman að ferðast
um landið svona. Við erum í fimm
vikur að túra með tónleika upp á
nánast hvern einasta dag. Okkur
er boðið í kaffi og kleinur á öllum
stöðum og í rauninni er þetta eins og
að hitta ömmu og afa á 27 stöðum,“
segir hann.
Friðrik segir að þeir félagar búi
vel að túrnum sem þeir fóru í fyrra
þegar mikil undirbúningsvinna var
búin að eiga sér stað. Þá náðu þeir
21 tónleikum áður en öllu var skellt
í lás. En tengiliðirnir og annað eru til
í excel-skjali sem er orðin heitasta
vara poppara í dag.
„Það er skemmtilegt að segja frá
því að aðrir sem eru að túra núna eru
búnir að hringja og vilja fá aðgang
að skjalinu. Það er greinilega gulls
ígildi.“
Sigríður Beinteinsdóttir, söng-
kona Stjórnarinnar, segir það vera
mikla tilhlökkun að spila fyrir
framan fólk að nýju. Sigga og Grét-
ar verða í sumar með tónleikana
„Láttu þér líða vel“. „Það er mikil
tilhlökkun enda búið að vera langt
hlé. Ég taldi um daginn og þetta eru
um 15 mánuðir sem ég hef ekki spil-
að fyrir framan fólk. Maður hefur
aðeins verið í netstreymi en það
er mikil tilhlökkun að sjá framan í
fólk. Verður yndislegt að fara aftur
af stað og byrja þetta venjulega
vinnulíf.“
Hún segir að það verði örugglega
léttur fiðringur í maganum þegar
hún stígur á svið enda langt síðan
að hún spilaði fyrir framan áhorf-
endur. ■
Dýrgripur Friðriks Ómars
sem poppara dreymir um
Friðrik Ómar og Jógvan ásamt tæknimanni verða í húsbíl í sumar. MYND/AÐSEND
Sigga og Grétar í Stjórninni og Króli og Stebbi í Dimmu verða líka á ferðinni.
benediktboas@frettabladid.is
MOSFELLSBÆR Niðurstöður kosn-
inga Okkar Mosó fyrir árið voru
lagðar fyrir bæjarráð Mosfellsbæjar
á miðvikudag. Alls hlutu níu hug-
myndir brautargengi en 35 millj-
ónum verður varið í framkvæmd
verkefnanna.
Niðurstöður kosninganna eru
meðal annars að grillskýli rís við
Stekkjarflöt, minigolfvöllur verður
settur upp í Ævintýragarðinum,
Jólagarður verður settur upp við
Hlégarðstún og baðaðstaða byggð
upp við Hafravatn. Íbúar kusu einn-
ig meðal annars körfuboltavelli við
bæði Varmárskóla og Lágafellsskóla
og að merkja hlaupa- og gönguleiðir,
fjallstoppa og fjallahjólastíga.
Metþátttaka var í kosningunum
sem stóðu yfir frá 31. maí til 6. júní
og kusu 2.080 íbúar eða um 20,5 pró-
sent Mosfellinga 15 ára og eldri. ■
Mosfellingar
fá grillskýli og
minigolfvöll
Mosfellingar kusu um að láta byggja
baðaðstöðu við Hafravatn.
arib@frettabladid.is
DÓMSMÁL Mann réttinda dóm stóll
Evrópu, MDE, hefur vísað frá kæru
Ólafs Ólafs sonar vegna skýrslu
rann sóknar nefndar Al þingis frá
árinu 2017 um að komu þýska bank-
ans Hauck og Auf hauser að einka -
væðingu Búnaðar bankans árið
2003. Rannsóknarnefndin komst að
þeirri niðurstöðu að þýski bankinn
hafi aldrei verið raunverulegur fjár-
fest ir og stjórn völd hafi skipu lega
verið blekkt í tengslum við sölu á
45,8 prósenta hlut í bankanum.
Ólafur kærði niðurstöðuna til
MDE þar sem hann taldi að máls-
meðferð nefnd ar inn ar hefði í raun
falið í sér saka mál á hend ur hon um.
Dómstóllinn gerði athugasemd
við málatilbúnaðinn. „Dómstóllinn
gerir athugasemd við að sumar stað-
reyndir eða lýsingar á íslenskum
lögum, eins og þær eru settar fram
Lýsingar Ólafs ýkjur eða rangfærslur
Ólafur Ólafsson,
athafnamaður.
af sækjanda, eru annað hvort ýkjur
eða rangar,“ segir í frávísuninni.
Íslenska ríkið vildi meina að rang-
færslurnar væru slíkar að verið væri
að misnota dómstólinn, á það var
ekki fallist.
Kjartan Bjarni Björgvinsson, sem
gegndi formennsku í nefndinni,
segir það fagnaðarefni að MDE finni
enga ástæðu til að finna að störfum
nefndarinnar.
Í yfirlýsingu frá Ólafi segir að
hann muni meta hvort hann höfði
mál gegn íslenska ríkinu. ■
2 Fréttir 18. júní 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ