Fréttablaðið - 18.06.2021, Side 14

Fréttablaðið - 18.06.2021, Side 14
Það vita allir að aðstað- an sem við höfum búið við undanfarin ár er ekki boðleg fyrir félagið né bæjarfélagið sem er orðið það fjórða stærsta á landinu. Brynjar Freyr Garðarsson, for- maður knattspyrnudeildar UMFN. Fiorentina hefði orðið sjöunda liðið sem Gat- tuso átti að stýra á átta ára þjálfaraferli. Eriksen sýnd virðing í Kaupmannahöfn Leikmenn hættu leik í tæpa mínútu í leik Danmerkur og Belgíu í gær til þess að klappa til heiðurs Christian Eriksen, miðjumanns Dana sem fékk hjartaáfall í fyrsta leik Dana á mótinu. Eriksen er á batavegi á spítala nálægt Parken og ætti því að hafa heyrt dúndrandi lófatakið honum til heiðurs. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY kristinnpall@frettabladid.is TENNIS  Spænski tenniskappinn Rafael Nadal tilkynnti í gær að hann myndi ekki þiggja boð um að taka þátt í Wimbledon eða Ólympíu­ leikunum. Nadal lýsti um leið yfir óánægju með hversu stuttur hvíld­ artíminn var milli Opna franska meistaramótsins og Wimbledon mótsins. Nadal sem er oft titlaður konung­ ur leirsins vann til gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Beijing. Hann hefur tuttugu sinnum fagnað sigri á einu af risamótunum fjórum, þar af tvisvar á Wimbledon en hann sagðist hafa tekið ákvörðunina í samstarfi við þjálfara sína til þess að gefa líkamanum betri hvíld. Samdægurs var það tilkynnt að Naomi Osaka myndi heldur ekki taka þátt í Wimbledon en keppa á Ólympíuleikunum. Osaka dró sig til hlés á dögunum eftir deilur Osaka við mótshaldara um fjölmiðlaskyldu á Opna franska meistaramótinu. n Wimbledon án Osaka og Nadal kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Gennaro Gattuso lét af störfum sem þjálfari Fiorentina í gær, tveimur vikum áður en hann átti að hefja fyrsta starfsdag sinn sem þjálfari félagsins. Fyrrum miðjumaðurinn sem lék á sínum tíma 73 leiki fyrir ítalska landsliðið entist í 23 daga í starfi hjá Fiorentina en deilur við stjórn félagsins gerðu útslagið. Hann átti að hefja störf þann 1. júlí næstkomandi en er nú líklegur til þess að taka við við Tott­ enham. Gattuso var rekinn úr starfi þjálfara Napoli í vor og tók tveimur dögum seinna við liði Fiorentina. Ósætti milli Gattuso, stjórnar Fio­ rentina og Jorge Mendes, umboðs­ manns Gattuso, um hvaða leik­ menn félagið ætti að horfa til fyrir næsta tímabil, varð til þess að ákveðið var að slíta samstarfinu. n Rekinn áður en hann hóf störf Gattuso fer mikinn á hliðarlínunni. Osaka tekur þátt á ÓL á heimavelli. 12 Íþróttir 18. júní 2021 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 18. júní 2021 FÖSTUDAGUR Knattspyrnudeild Njarðvíkur vakti athygli Reykjanesbæjar á bágborinni aðstöðu félags­ ins með bréfi á dögunum. Húsnæði sem átti að vera til eins árs er enn í notkun fjór­ tán árum síðar og er nýkomið heitt vatn í húsið. kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI „Ég hef lært það að temja mér að vera hóflega bjartsýnn. Við fengum þetta húsnæði fyrir fjórtán árum síðan sem átti aðeins að vera tímabundin lausn til bráðabirgða til eins til tveggja ára. Það er oft auð­ veldara að lofa en að framkvæma,“ segir Brynjar Freyr Garðarsson, for­ maður knattspyrnudeildar Njarð­ víkur, aðspurður um hversu bjart­ sýnn hann sé á að framkvæmdir hefjist varðandi framtíðarlausn í aðstöðumálum knattspyrnudeildar Njarðvíkur á þessu ári, líkt og var gefið út sem markmið fyrir tveimur árum. Knattspyrnudeildin bauð full­ trúum íþrótta­ og tómstunda­ ráðs Reykjanesbæjar í heimsókn á heimavöll félagsins við Afreks­ braut undir lok síðasta mánaðar til að vekja athygli á aðstöðuleysi hjá félaginu. Í fundargerð íþrótta­ og tómstundaráðsins er Njarðvík þakkað fyrir frumkvæðið og tekið undir mikilvægi þess að gripið verði til framkvæmda við að bæta aðstöðuna hjá félaginu. „Við buðum íþrótta­ og tómstundaráðinu sem er ætlað að sjá um þetta mál og höfum áður boðið bæjarfulltrúum að koma að skoða. Það vita allir að aðstaðan sem við höfum búið við undan­ farin ár er ekki boðleg fyrir félagið né bæjarfélagið sem er orðið það fjórða stærsta á landinu.“ Í bréfi sem knattspyrnudeild Njarðvíkur sendi til íþrótta­ og tómstundaráðs Reykjanesbæjar er minnst á uppbyggingu við Ásvelli í Hafnarfirði enda sjá forráðamenn félagsins fyrir sér að hægt verði að reisa vallarhús og um leið íþrótta­ hús. „Félagið fer frá sínu gamla vallar­ stæði sem fer undir byggingarland á þeim tíma sem markmiðin voru að það ætti að vera glæsilegt íþrótta­ mannvirki fyrir bæjarfélagið. Svo kom hrunið sem gerði út um þær vonir en það er orðið þreytandi að bíða eftir nýrri aðstöðu. Við höfum gert eins vel og hægt er að mínu mati með þrjá sumarbústaði sem er búið að festa saman.“ Í heimsóknarboðinu er aðstöð­ unni líkt við bútasaumsteppi en heitt vatn kom loks í húsið fyrr á þessu ári. „Það var fyrst lagt heitt vatn í húsið í vetur. Þetta hús er og hefur verið hitað upp af rafmagnsofnum og með þrjú hundruð lítrum af upp­ hituðu vatni. Það var lengi þannig að eftir fótboltaleiki var orðið hálf­ gert kapphlaup að komast í sturtu til að fá heitt vatn þegar það eru allt að 30 leikmenn að komast að,“ segir Brynjar glottandi sem lék 117 deild­ arleiki fyrir Njarðvík á sínum tíma. „Það er skýrt dæmi um hversu mikil frestun hefur átt sér stað í framkvæmdum.“ Brynjar tekur undir að aðstaða sem þessi hafi áhrif á aðdráttarafl yngri flokka starfs félagsins „Við erum vissulega ekki með jafn rótgróna knattspyrnudeild og Kef lavík en staðreyndin er sú að við höfum of oft verið að missa leik­ menn yfir til Keflavíkur. Þar stendur til boða mun betri aðstaða og að mörgu leyti betri umgjörð,“ segir Brynjar en Arnór Ingvi Traustason, leikmaður New England Revolution og íslenska landsliðsins, fór yfir í Keflavík eftir að hafa leikið fyrstu ár ferilsins með Njarðvík.  „Markmiðið okkar er að breyta þessum hugsunarhætti og festa Njarðvík meðal bestu tuttugu liða landsins. Iðkendafjöldinn innan félagsins hefur hækkað um tvö hundruð á síðustu árum í takt við aukningu í íbúafjölda í bæjarfélag­ inu.“ n Tamið mér að vera hóflega bjartsýnn Aðstaðan á Njarðvíkurvelli átti að vera til eins árs en er enn í notkun fjórtán árum síðar. MYND/AÐSEND

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.