Fréttablaðið - 18.06.2021, Qupperneq 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Sýningin Sjórinn er fullur af
góðum verum. Sjórinn er fullur
af rusli! verður opnuð í Gerðar-
safni á morgun. Sýningin er hluti
af alþjóðlegu verkefni sem kallast
Vatnsdropinn og er samstarfsverk-
efni milli Menningarhúsanna, H.
C. Andersen-safnsins í Óðinsvéum,
Múmín-safnsins í Tampere og Ilon‘s
Wonderland-safnsins í Haap-
salu. Síðastnefnda safnið byggir
á höfundarverki teiknarans Ilon
Wikland sem myndlýsti ótal bækur
Astrid Lindgren.
„Sýningin hverfist um hafið en
Vatnsdropinn snýst um að tengja
höfundaverk norrænu höfundanna
við Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna. Sýningarstjórar eru
börn á aldrinum 9-12 sem koma
frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi
og Eistlandi,“ segir Elísabet Indra
Ragnarsdóttir, verkefna- og við-
burðastjóri menningarmála hjá
Kópavogsbæ. „Chus Martinez, sem
er þekkt fyrir sýningastjórastörf
sín á alþjóðavettvangi, hefur verið
börnunum til ráðgjafar og Salvör
Gullbrá Þórarinsdóttir hefur leitt
vinnu barnanna hér á landi. Studio
Irma hefur svo skapað magnaða
umgjörð um sýninguna sem mun
standa út október.“
Listsmiðjur fyrir börn
Þann 29. júní hefja svo göngu sína
listsmiðjur fyrir börn sem fléttast
í kringum Vatnsdropann. Smiðj-
urnar verða leiddar af hópi ungs
fólks sem öll eru í listnámi eða
menningartengdu námi; þeim Ást-
hildi Ákadóttur, Bjarti Erni Bach-
mann, Hlökk Þrastardóttur og Önju
Ísabellu Lövenholdt en smiðjurnar
fara fram alla þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga frá kl. 13-15, á
tímabilinu frá 29. júní til 5. ágúst.
„Farið var af stað með listsmiðjur
síðasta sumar og það tókst svo vel
til að ákveðið var að fara aftur af
stað í ár“ segir Elísabet. „Auglýst var
eftir áhugasömum, heill hellingur
sótti um og það var erfitt að velja
úr en við erum himinlifandi með
hópinn sem réðist til starfa. Smiðj-
urnar fara fram hér í Bókasafni
Kópavogs, Náttúrufræðistofu og
Gerðarsafni auk Lindasafns og öll
börn velkomin.“
Fjölskylduvænt umhverfi
Í kringum Menningarhúsin er
umhverfið allt mjög fjölskylduvænt
og slíkar áherslur endurspeglast í
starfi húsanna.
„Í Bókasafni Kópavogs er nú hægt
að sjá hluta af afrakstri staðarlista-
manna Kópavogs sem hefur verið
hönnunarteymið ÞYKJÓ,“ segir
Elísabet. „ÞYKJÓ hefur tengt þessa
einstöku veröld húsanna saman á
mjög fallegan hátt og unnið verk
sín í samtali við vísindamenn
Náttúrufræðistofu, listfræðinga
Gerðarsafns og aðra sérfræðinga
í húsunum. Í Bókasafninu má nú
eiga kyrrðarstund í Kyrrðarrýmum
sem innblásin eru af skeldýrum og
skúlptúrum Gerðar Helgadóttur og
bregða sér í hlutverk Ástarfugla og
Feludýra á sýningunni Ofurhetjur
jarðar þar sem má sjá og klæðast
ótrúlega fallegum og litríkum
búningum ÞYKJÓ.“
Bókasafn Kópavogs stendur fyrir
lestrarátakinu Sumarlestur með
alls kyns skemmtilegum viðburð-
um og Náttúrufræðistofa Kópavogs
heldur námskeið fyrir náttúru-
krakka auk þess sem þar má sjá
frábæra grunnsýningu um lífríki
Íslands, Heimkynni, sem var opnuð
á síðasta ári. Í gluggum Náttúru-
fræðistofu má sjá stórskemmtilegar
teikningar Ránar Flygenring úr bók
Ránar og Hjörleifs Hjartarsonar,
Fuglar, en teikningarnar hefur Rán
aðlagað að sýningarrýminu.
Langir fimmtudagar í sumar
Reykjavík Roasters opnaði nýlega í
Gerðarsafni og Elísabet segir mikið
líf og fjör í kringum það.
„Þrjá fimmtudaga í sumar, 24.
júní, 15. júlí og 12. ágúst, verður
opið fram eftir kvöldi hjá okkur
með fjölbreyttu viðburðahaldi,
meðal annars í samstarfi við
Skapandi sumarstörf í Kópavogi
sem hefur á að skipa mjög áhuga-
verðu og metnaðarfullu listafólki
sem kemur úr öllum geirum lista-
lífsins. Í ágúst hefur hin frábæra
tónleikaröð, Sumarjazz í Salnum,
göngu sína og fer fram klukkan 17
á fimmtudögum í björtu og fallegu
fordyri Salarins,“ segir Elísabet.
„Það er náttúrulega heilt ár búið
að vera litað af COVID en nú er
allt að byrja að lifna við aftur. Auk
þess sem ég hef nefnt verða ýmiss
konar viðburðir á dagskrá um
helgar í sumar. Það er um að gera
að fylgjast með dagskránni okkar
á Facebook eða á menningar-
husin. is.“ ■
Sjórinn er fullur af góðum verum.
Sjórinn er fullur af rusli! er sýning
sem ungir sýningarstjórar stýra
en hópinn skipa þrettán börn frá
Íslandi, Danmörku, Eistlandi og
Finnlandi. Ungu sýningarstjór-
arnir hafa undanfarna mánuði
tekið þátt í vinnusmiðjum í
söfnunum (eða á netinu vegna
samkomutakmarkana) undir leið-
sögn sýningarstjóra Vatnsdropans,
Chus Martinez, en hún er eftir-
sóttur sýningarstjóri, listfræðingur
og heimspekingur frá Spáni sem
starfar á alþjóðavettvangi. Fimm
stúlkur úr Kópavogi, þær Fjóla
Kristín Sveinbjörnsdóttir, Freyja
Lóa Sigríðardóttir, Íva Jovisic, Lóa
Arias og Vigdís Una Tómasdóttir,
eru í íslenska sýningarstjóra-
teyminu og hefur Salvör Gullbrá
Þórarinsdóttir leitt vinnu hópsins
hér á landi.
Á sýningunni Sjórinn er fullur
af góðum verum. Sjórinn er fullur
af rusli! gefur að líta verk sem
ungu sýningarstjórarnir hafa
valið frá H. C. Andersen-safninu,
Múmín-safninu og Ilon’s Won-
derland. Verkin má með einum
eða öðrum hætti tengja fjórtánda
heimsmarkmiði Sameinuðu
þjóðanna, Lífi í vatni. Heimir
Sverrisson og samstarfsfólk hans
hjá Irma studio tóku svo að sér
að hanna og smíða umgjörð um
sýninguna sem verður að finna á
1. hæð Gerðarsafns.
Vatnsdropinn hófst í ársbyrjun
2019 þegar Kópavogsbær hóf
samtal við H. C. Andersen-safnið
í Óðinsvéum og Múmín-safnið í
Tampere um mögulegt samstarf.
Eftir að IIon’s Wonderland-safnið
bættist í hópinn varð Vatnsdrop-
inn til. Um er að ræða þriggja ára
menningarverkefni sem er ætlað
að tengja höfundarverk norrænu
höfundanna Astridar Lindgren,
H. C. Andersen og Tove Jansson
við Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna með listsýningum og
viðburðahaldi. Allir höfundarnir
eru fulltrúar klassískrar norrænn-
ar bókmenntahefðar sem börn
jafnt sem fullorðnir hafa gaman
af. Þó svo að þeir séu ólíkir ríma
gildi þeirra vel við Heimsmark-
mið Sameinuðu þjóðanna, gildi á
borð við umhverfisvernd og jafn-
rétti. Það má í raun segja að gildi í
sögunum (og teikningunum) eru
mikilvægari en nokkru sinni áður
í ljósi núverandi loftslagsvanda og
hamfarahlýnunar.
Sjórinn er fullur af góðum
verum. Sjórinn er fullur af rusli!
verður formlega opnuð laugar-
daginn 19. júní og verður sýningin
opin til 31. október. Samhliða
sýningunni verður boðið upp á
fjölda viðburða í Menningarhús-
unum í Kópavogi tengdum Vatns-
dropanum og er fólk hvatt til að
fylgjast með á samfélagsmiðlum
Menningarhúsanna og á www.
menningarhusin.is. ■
Sjórinn er fullur af góðum verum. Sjórinn er fullur af rusli!
Ungir sýningarstjórar á Íslandi 2021 Frá vinstri: Íva Jovisic, Freyja Lóa Sigríðardóttir, Vigdís Una Tómasdóttir, Lóa Arias og Fjóla Kristín Sveinbjörnsdóttir. MYND/SIGGA ELLA
Það er náttúrulega
heilt ár búið að
vera litað af COVID en nú
er allt að byrja að lifna
við aftur.
2 kynningarblað A L LT 18. júní 2021 FÖSTUDAGUR