Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 31
Þetta er eins konar dagbók um leit mína að innri ró, sem ég fann fyrir í fyrsta sinn þegar ég byrjaði að læra íslensku Jakub Stachowiak fékk nýlega Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir ljóðabók sína Næturborgir. Jakub er pólskur, starfar sem bréfberi og stefnir á nám í rit- list í haust. „Það er frábært en um leið skrýtin tilfinning að fá viðurkenningu fyrir bók sem er ekki ennþá komin út. Ég bjóst alls ekki við þessari viðurkenn- ingu og var bókstaflega orðlaus í tvo daga,“ segir Jakub. Spurður um umfjöllunarefni bókarinnar segir hann: „Hún er um sorg og söknuð. Hún fjallar að miklu leyti um stærsta áfall í lífi mínu sem varð þegar ég missti ástkæra mann- eskju vegna sjálfsvígs. Þetta er eins konar dagbók um leit mína að innri ró, sem ég fann fyrir í fyrsta sinn þegar ég byrjaði að læra íslensku. Það má segja að bókin sé þakklætis- gjöf til íslenskunnar og í rauninni ástaróður til tungumálsins, sem að nokkru leyti bjargaði sálarlífi mínu. Ljóðabókin er í fjórum köflum og er hugsuð sem eins konar ferðalag. Hún byrjar á því augnabliki þegar ljóðmælandi missir manneskju sem hann elskar og endar þegar ljóðmælandinn er orðinn skáld og sáttur við lífið og tilveruna.“ Í umsögn bókmenntaráðgjafa um verkið segir: Næturborgir er heilsteypt ljóðabók sem hverfist um sorg, söknuð, borgina og skáld- skap. Þar er á áhrifaríkan hátt slegið saman hversdagslegum myndum og nýstárlegu tungutaki. Ljóðin tjá sorg og ljúfsárar minningar tengdar henni á persónulegan hátt en eiga jafnframt í áhugaverðu samtali Bók sem er þakklætisgjöf til íslenskunnar Jakub heyrði íslensku í fyrsta sinn fjórtán ára gamall og heillaðist samstundis af tungumálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Opel Astra Innovation. ‘18, sjálfskiptur, ekinn 76 þús. km. Verð: 2.990.000 kr. 800003 Verð ................................ 2.990.000 kr. Greitt m/notuðum ........ 500.000 kr. Eftirstöðvar ................... 2.490.000 kr. Aorgun á mánuði ..... 38.878kr.** Notaðir bílar Meira úrval á notadir.benni.is Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035 Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. * Tökum aðeins 1 bíl uppí hvern nýlegan notaðan bíl. **Forsendur: 7 ára lán hjá Lykli. Útborgun 500.000 kr. Opel Mokka X Innovation ‘18, sjálfskiptur, ekinn 71 þús. km. Verð: 3.090.000 kr. 446516 4x4 Gamli bíllinn þinn gildir að lágmarki sem 500.000 króna innborgun* í nýlegan og öruggan bíl (sérmerktur á plani). Þinn gamli þarf aðeins að vera með gilda skoðun og í ökufæru ástandi. Ef þú ert ekki með bíl uppí má alltaf ræða aðra díla.Not að ur u pp í n ýl eg an 00.000Við tökum gamlabílinn uppí á SsangYong Korando Dlx ‘18, beinskiptur, ekinn 60 þús. km. Verð: 2.990.000 kr. 591367 4x4 SsangYong Tivoli ‘17, sjálfskiptur, ekinn 81 þús. km. Verð: 2.350.000 kr. 591330 Langur 4x4 við íslenska ljóðagerð tuttugustu aldar.“ Æskudraumur að læra íslensku Fyrstu ljóð sín orti Jakub á pólsku þegar hann var táningur og hann vann nokkrar ljóðasamkeppnir. Árið 2016 flutti hann til Íslands til að læra íslensku og byrjaði í BA-námi í íslensku sem öðru máli. „Æsku- draumur minn var að læra íslensku. Pabbi hlustaði mikið á Björk og þá heyrði ég íslensku í fyrsta sinn, fjór- tán ára gamall, og heillaðist á auga- bragði af tungumálinu. Þá vissi ég að ég myndi einhvern tímann flytjast hingað og læra íslensku.“ Hann talar ákaf lega fallega íslensku og segir hana vissulega vera flókið tungumál. „Pólskan er samt miklu flóknari, þar eru til dæmis sjö föll. Þegar maður hefur brennandi áhuga á einhverju þá er ekki svo erf- itt að ná tökum á því og það tók mig eitt ár að komast frá stigi núll þar til ég gat byrjað nám í íslensku.“ Áhrif Steinunnar Jakub les mikið af íslenskum bók- menntum. „Fyrsta skáldið sem kemur upp í hugann er Steinunn Sigurðardóttir sem hafði djúp áhrif á þessa bók, sérstaklega ljóðabálkinn Brotnar borgir. Svo eru Geirlaugur Magnússon og Gyrðir Elíasson og af nýjum höfundum verð ég að nefnda Jónas Reyni Gunnarsson og Ástu Fanneyju Sigurðardóttur, sem er snillingur; þegar maður heyrir hana flytja ljóð sín þá fær maður gæsahúð.“ Þegar kemur að pólskum áhrifum nefnir hann eitt af helstu nútímaskáldum Pólverja, Roman Honet. „Hann hefur haft mjög mikil áhrif á mig, sérstaklega vegna þess að hann yrkir mikið um missi og dauða. Ég mæli með ljóðabókum hans sem hafa verið þýddar á mörg tungumál.“ Jakub er ekki kominn með form- legan útgáfusamning en bók hans er væntanleg á næstu mánuðum. n Menning 17FÖSTUDAGUR 18. júní 2021

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.