Fréttablaðið - 18.06.2021, Page 34
Fyrrverandi þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins Vilhjálmur
Bjarnason var óvæntur gestur
á tískusíðu Fréttablaðsins í
síðustu viku vegna skemmti-
lega staðsettrar auglýsingar.
Því þótti kjörið að fá Vilhjálm
til að snúa aftur á síðuna, nú
til að sýna safn sitt af erma-
hnöppum.
Það má með sanni segja að fyrrver-
andi þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Vilhjálmur Bjarnason, hafi slegið
í gegn á tískusíðu Fréttablaðsins í síð-
ustu viku. Birtist á henni auglýsing
fyrir prófkjör Sjálfstæðismanna, en
hana prýddi glæsileg mynd af Vil-
hjálmi sem þótti passa einstaklega
vel við efni síðunnar, ljósmyndir af
tískuíkoninu Rihönnu. Hallgrímur
Helgason rithöfundur og fleiri bentu
á hve vel Vilhjálmur tæki sig út, og
hafði hann sjálfur mikinn húmor
fyrir þessu. Það þótti því viðeigandi
að taka Vilhjálm tali, sérstaklega
eftir að blaðamaður frétti að hann
ætti einstaklega flott ermahnappa-
safn. Hann reyndist fús til að sýna
lesendum safnið. n
Snýr aftur á tískusíðuna
með ermahnappasafni
Vilhjálmur er stoltur af safninu. Hér ber hann sína uppáhaldshnappa, sem hann lét hanna sjálfur
og gerði tuttugu stykki fyrir félagið AKOGES í Vestmannaeyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EYJÓLFSSON
Hann á einnig
stórt safn af
nælum og lagði
það í vana sinn
að bera nælu
með fána lands
þeirra sendi-
herra og fulltrúa
sem hann hitti
við störf sín
þegar hann var á
Alþingi.
Gamla lógó Landsbankans prýðir
þessa ermahnappa. „Frá því áður en
bankinn var nútímavæddur,“ segir
Vilhjálmur. „Mér áskotnuðust þessir
með undarlegum leiðum sem ég
ætla nú ekkert að fara út í. En margir
kannast ekki við merkið.“
Hér má sjá jakkafatahnappa fullveldisins og hnappana til hægri fékk Vilhjálmur þegar hann heim-
sótti höfuðstöðvar Nató.
Hér má sjá hnappa sem eru erfðagripir. Vilhjálmur telur þá sem eru vinstra megin vera um áttatíu
ára gamla og eru þeir úr gulli. Hnapparnir til hægri komu frá föður Vilhjálms.
Þessa keypti Vilhjálmur hjá Nóbelsstofnuninni í Stokk-
hólmi. Þar er hægt að fá hnappa fyrir hvern verðlauna-
flokk og keypti hann því bókmenntahnappana, til heiðurs
okkar eina Nóbelsverðlaunahafa, Halldóri Laxness.
Steingerður
Sonja Þórisdóttir
steingerdur
@frettabladid.is
Bílamerkingar
Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 777 2700 | xprent@xprent.is
Vel merktur bíll er besta auglýsingin.
Tökum að okkur allt frá litlum merkingum
að heilpökkuðum bílum.
20 Lífið 18. júní 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 18. júní 2021 FÖSTUDAGUR