Morgunblaðið - 12.04.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.04.2021, Blaðsíða 1
BÚIN AÐ HIRÐA BÆÐI ÍSLANDSMETIN ÁTTI AÐ SELJA FYRIR SMÁUPPHÆÐ GRINDAVÍK ALGJÖR PARADÍS CARAVAGGIO 29 HELGA DÍS 11ERNA SÓLEY 27 „Það er erfitt að biðja um ákveðin álit þegar við vitum ekki hvað hefur verið unnið. Við erum búin að biðja um öll gögn og treystum því að við fáum þau,“ segir Helga Vala Helga- dóttir formaður velferðarnefndar í samtali við Morgunblaðið. Heilbrigðisráðuneytið lét undan þrýstingi á föstudaginn og afhenti nefndinni gögn er varða reglugerð heilbrigðisráðherra um skyldudvöl í sóttvarnahúsi en ráðuneytið hafði áður synjað fjölmiðlum og nefndinni um gögnin, á grundvelli upplýsinga- laga. Hefur Morgunblaðið álit dóms- málaráðuneytisins undir höndum sem velferðarnefnd hefur ekki. Lagastoð athuguð seint Af þeim gögnum sem heilbrigð- isráðuneytið hefur opinberað má ráða að lítil vinna hafi farið í að at- huga lagastoð fyrir aðgerðunum, allt þar til tveimur dögum fyrir ríkis- stjórnarfund, þann 29. mars, þegar álit barst frá forsætisráðuneytinu. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir í samtali við Morgunblaðið að verklagið við setn- ingu nýrrar reglugerðar á landa- mærunum virðist vera í sama anda. Engin gögn hafi komið fram um lög- mæti þess að skylda þá heimilis- menn, sem búa með þeim sem er í sóttkví, til þess að yfirgefa heimilið á meðan sóttkví er kláruð. Sam- kvæmt reglugerðinni má skikka þann í sóttvarnahús sem neitar að sæta sóttkví. Heilbrigðisráðherra fékk álit frá lögmannsstofu um þýðingu úr- skurða héraðsdóms daginn eftir að þeir féllu. Sagði þar að óhjákvæmi- legt væri að líta svo á að heimild sóttvarnalæknis væri bundin við sóttvarnahús eins og þau eru skil- greind í lögunum „enda leiddu hvorki lögskýringargögn né viður- kennd lögskýringarsjónarmið til annarrar niðurstöðu“. Var þá vikið að því að dómurinn sé kæranlegur til Landsréttar en líklegt sé að lög- varðir hagsmunir verði taldir liðnir undir lok þegar málið kæmi til kasta réttarins. „Treystum því að við fáum öll gögn“ - Fékk álit um lögmætið eftir úrskurði héraðsdóms Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eftirlitshlutverk Velferðarnefnd Alþingis býst við því að fá gögnin. MFengu ekki öll gögn »2 og 14 Í dag eru sextíu ár liðin frá því Júrí Gagarín varð fyrstur manna til að ferðast út í geiminn. Fór hann einn hring umhverfis jörðu og lenti svo fari sínu heilu og höldnu. Afreksins verður minnst í dag víða um heim og sérstaklega í Rúss- landi. Mikhaíl V. Noskov, sendiherra Rússlands á Íslandi, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að flug Gag- aríns hafi markað vendipunkt í sögu mannkyns og að Rússar verði um aldur og ævi stoltir af þeirri stað- reynd að samlandi þeirra hafi verið hinn fyrsti sem hélt út í geim. »10 AFP Fyrsti geimfarinn Júrí Gagarín sést hér halda til geimfarsins Vostok 1 að morgni 12. apríl 1961. 60 ár frá afreki Gagaríns Áfram gýs af krafti í Geldinga- dölum, þar sem fjórða gossprungan opnaðist aðfaranótt laugardags. Stöðugt hraunflæði er úr öllum sprungunum sem eru á svipuðum slóðum. Vísindamenn segja að víða á gossvæðinu liggi kvika grunnt og ekki hægt að útiloka að fleiri sprungur geti opnast. Viðvaranir taka mið af þessu og hættusvæði þar sem fólk ætti ekki að vera á ferð hafa verið skilgreind á kort- um. Lögregla, björgunarsveita- menn og aðrir sem Morgunblaðið hafði tal af eru ánægðir með hvern- ig til hefur tekist. Allt sleppi til, þótt vissulega fari margir ansi tæpt og nærri hraunbrún eins og sést á myndinni hér til hliðar. Margir lögðu leið sína í Geldinga- dali á laugardag, en fáir í gær vegna hvassviðris og slyddu. Gas- mengun frá gosinu í byggðum á Suðurnesjum varð af þeim sökum sömuleiðis óveruleg, en við henni hafði þó verið sérstaklega varað. Eldgosið sem hófst 19. mars sl. hef- ur nú staðið vel á fjórðu viku og tekur framvinda þess stöðugt nýja stefnu. sbs@mbl.is Á ystu brún við glóðina Ljósmynd/Hafsteinn Karlsson - Stöðugar breyt- ingar á eldgosinu „Það eru engar takmarkanir á markaðsleyfi fyr- ir lyfinu. Það er bara verið að skoða þetta því það er mikilvægt að skoða öll til- felli sem koma upp,“ segir Rúna Hauksdóttir for- stjóri Lyfjastofnunar, spurð hvort rannsókn Lyfjastofnunar Evrópu á tengslum bóluefnis Janssen við blóðtappa muni raska afhending- aráætlun efnisins hér á landi. „Það er verið að hefja þessa rannsókn og það verður sótt- varnalæknis að ákveða hvaða hópar fá það, ef einhverjar takmarkanir verða,“ segir hún. Von er á 2.400 bóluefnaskömmtum frá Janssen til landsins á miðvikudaginn næsta en einnig var greint frá því í gær að engar raskanir verði á afhendingu bóluefna frá AstraZeneca á næst- unni. »6 og 8. Óljóst með áætlun Janssen - Tengsl við blóð- tappa rannsökuð Rúna Hauksdóttir .Stofnað 1913 . 84. tölublað . 109. árgangur . M Á N U D A G U R 1 2. A P R Í L 2 0 2 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.