Morgunblaðið - 12.04.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.04.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021 ENGINN ÐBÆTTUR SYKUR ENGIN ROTVARNAREFNI 85% TÓMATPÚRRA VI hverjum degi, hleyp eins og vind- urinn og stefni á að fagna 60 árum með því að hlaupa maraþon í sumar. Ég sæki í útivistina og frelsistilfinn- inguna sem henni fylgir. Alveg eins og forðum daga þegar ég þaut frjáls og óhindruð um snjóþekjur fjalla! Ég lít á lífið sem gjöf sem ég minni mig á að þakka fyrir hvern einasta dag.“ Fjölskylda Eiginmaður Halldóru er Birgir Þór Baldvinsson, f. 15.1. 1952, kenn- ari. Þau búa í Mosfellsbæ. Foreldrar Birgis voru hjónin Baldvin Skær- ingsson, f. 30.8. 1915, d. 24.2. 2006, sjómaður og smiður í Vestmanna- eyjum og bæjarstarfsmaður í Mos- fellsbæ, og Þórunn Elíasdóttir, f. 1.12. 1016, d. 29.7. 1990, húsmóðir í Vestmannaeyjum og í Mosfellsbæ. Börn Halldóru og Birgis eru 1) Kjartan Þór Birgisson, f. 30.4. 1987, verkfræðingur, búsettur í Sandnes í Noregi. Maki: Hrefna Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur. Barnabörn: Áslaug Ýr Guðjónsdóttir, f. 2003, Elías Kári Kjartansson, f. 2011, Una Rán Kjartansdóttir, f. 2014; 2) Sig- ríður Þóra Birgisdóttir, f. 27.10. 1991, læknir, búsett í Reykjavík. Maki: Óli H. Þórðarson, véla- og orkutæknifræðingur; 3) Halldóra Þóra Birgisdóttir, f. 1.6. 1993, hjúkr- unarfræðingur, búsett í Reykjavík. Maki: Jón Kristinn Helgason verk- fræðingur; 4) Kristín Þóra Birgis- dóttir, f. 19.11. 1998, nemi í sálfræði í Bandaríkjunum. Systkini Halldóru: Kjartan Hall- dór Björnsson, f. 28.3. 1957, d. 11.10. 1974, nemi í Reykjavík, og Kristín Björnsdóttir, f. 13.8. 1974, prófessor við menntavísindasvið HÍ, búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Halldóru: Hjónin Björn Blöndal Kristmundsson, f. 8.12. 1937, d. 29.1. 2019, verslunarmaður og skrifstofumaður í Reykjavík, og Sigríður Jóna Kjartansdóttir, f. 21.3. 1939, skrifstofustjóri í Reykjavík. Halldóra N. Björnsdóttir Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Kringlu í Miðdölum Jón Nikulásson bóndi og smiður í Kringlu Halldóra M. Jónsdóttir húsfreyja og verkakona í Reykjavík Kjartan Ólafur Þorgrímsson bóndi í Tunguseli á Langanesi og smiður í Reykjavík Sigríður Jóna Kjartansdóttir fv. skrifstofustjóri í Reykjavík, síðar í Mosfellsbæ Ólöf Ólafsdóttir vinnukona í Reykjavík og í Vogum á Vatnsleysuströnd Þorgrímur Þórðarson Guðmundsen kennari í Reykjavík og leiðsögumaður Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Björn Blöndal Jónsson skipstjóri og löggæslumaður í Reykjavík Halldóra N. Björnsdóttir iðnrekandi í Reykjavík Kristmundur Guðmundsson prentari í Reykjavík Kristín Einarsdóttir húsfreyja á Þyrli Guðmundur Magnússon bóndi á Þyrli í Hvalfirði Úr frændgarði Halldóru N. Björnsdóttur Björn Blöndal Kristmundsson verslunarmaður og skrifstofumaður í Reykjavík, síðar í Mosfellsbæ „VELKOMIN Í GEÐHEILSUSTÖÐINA. ÝTTU Á 100# TIL AÐ FÁ SAMBAND VIÐ SÁLFRÆÐING.“ „DRÍFÐU ÞIG! DEYFILYFIÐ FER AÐ HÆTTA AÐ VIRKA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að drekka kaffi saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „KÆRA SPYRÐU HUNDINN… VOFF! VOFF! VOFF! URRI- GLEFSI-GLEFS!“ HEI, VINSAMLEGAST ENGAN EINKAHÚMOR HELGA SEGIR AÐ ÉG SÉ EKKERT VERRI EN AÐRIR EIGINMENN! LEYFIRÐU HELGU AÐ EIGA FLEIRI EIGINMENN?! GLÚBB Hjálmar Jónsson skrifaði mérá fimmtudag og kvaðst hafa sett á fésbókina: „Hríðin af krafti hefur nú hurðirnar allar barið. Veikist og dofnar von og trú, vorið er komið – og farið. Og ég hef fengið ýmis og góð viðbrögð: Gunnar J. Straumland yrkir: Á mér dynur slydduslabb, slær mig austanbylur. Er þá vorið aprílgabb sem ekki nokkur skilur? Þá kemur huggunarrík kveðja úr Skagafirði, frá Gunnari Rögn- valdssyni: Ekki glata góðri trú, gefst þar aukinn kraftur. Víst þó gjósi og velkist hjú, vorið … kemur aftur. Helgi Zimsen beitti sjálfsvarn- araðferð: Vorið tók að vakna en sá veiru og gossins smíði, aftur skreiddist óðar þá undir sæng í híði. Og Anna Margrét Stefánsdóttir er raunsæ: Þó birti til um bala og sker ég benda á þetta hlýt: Meðan líður apríl er alltaf von á skít.“ Ég þakka Hjámari vel fyrir þetta bréf, sem er gott innlegg í Vísnahorn. Einar K. Guðfinnsson skrifar að vestan, segir að nú hafi bæst við í kveðskaparsarpinn og sendir limru eftir Þorgils Hlyn Þorbergsson: Sú tíðin hún varla hét vetur en vitum nú yfirleitt betur er birtist hún lóa þá byrjar að snjóa við bíðum og sjáum hvað setur. Einar birti á dögunum fal- lega vetrarmynd af melgresi sem bókstaflega stóð upp úr snjónum í Bolungarvík. Vitnaði hann af því tilefni í hin frægu orð úr Áföngum, kvæði Jóns Helgasonar, „melgrasskúfurinn harði“. Af því tilefni rifjaði Bol- víkingurinn Egill Guðmundsson upp landsþekkta vísu nafna síns, Egils Jónassonar á Húsa- vík: Hafi æskan ástafund uppi í Vonarskarði, strokinn verður mjúkri mund „melgrasskúfurinn harði“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur um vorið og veðrið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.