Morgunblaðið - 12.04.2021, Side 4

Morgunblaðið - 12.04.2021, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á slí ku .A th .a ð ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 ge tu rb re ys tá n f án fy rir v yr irv arar a. Frá kr. 219.890 60+ meðGunnari Svanlaugs Tenerife 22. september í 29 nætur eða 29. september í 14 nætur „Færeyjar eru smitlausar og okkar fólk komið með bólusetningar og vottorð. Okkur er ekkert að van- búnaði,“ segir Gísli Jafetsson hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara. Á vegum skrifstofunnar stendur Fær- eyjaferð nú fyrir dyrum, haldið verður utan 5. maí og komið heim 11. Farið verður að heiman og heim með ferjunni Norrænu, sem er ný- uppgerð. Dvalist verður í Þórshöfn og ferðast um eyjarnar. Færeyjaleiðangur þessi er senni- lega með fyrstu skipulögðu hóp- ferðum Íslendinga í langan tíma, en vegna kórónuveirunnar hefur verið tekið fyrir utanferðir landans að mestu síðasta árið. „Hópurinn telur 50 manns, allt eldra fólk sem búið er í sprautum. Svo verðum við með þrjár aðrar Færeyjaferðir síðar í ár og Kaupmannahöfn á aðventunni. Finnum að mikill ferðahugur er í fólki,“ segir Gísli. sbs@mbl.is Fyrsta hópferð Íslendinga er til Færeyja í maímánuði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þórshöfn Færeyjar eru smitlausar og bólusettir Íslendingar væntanlegir. Áslaug Björg- vinsdóttir, lög- maður og áður héraðsdómari, hefur dregið um- sókn sína um embætti um- boðsmanns Al- þingi til baka. Frá þessu greindi hún í yfirlýsingu á Facebook í gær. Áslaug var ein fjögurra sem sóttu um embættið, sem Tryggvi Guðmundsson hverfur frá um næstu mánaðamót eftir að hafa gegnt því sl. 22 ár. Þrír aðrir sóttu um stöðuna, Ástráður Har- aldsson, Skúli Magnússon og Kjartan Bjarni Björgvinsson sem allir eru dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur, auk heldur sem Kjartan Bjarni er í dag settur um- boðsmaður. Áslaug segir að þegar ósk um gögn barst henni frá ráðgjaf- arnefnd forsætisnefndar Alþingis, sem sér um ráðningu í embættið, hafi hún séð að ekki væri verið að leita að manneskju með hennar bakgrunn og hæfni. „Í beiðninni var óskað eftir við okkur að við sem höfum gefið kost á okkur í starfið, að senda úrlausnir eða álit sem við höfum samið á sl. þremur árum og við teldum falla undir hlutverk og starfssvið umboðs- manns Alþingis,“ skrifar Áslaug. Dómar frá starfstíma hennar sem héraðsdómari, stjórnsýslu- kærur og erindi til umboðsmanns Alþingis sem hún hafi unnið fyrir skjólstæðinga sína sem lögmaður hafi fallið utan þess ramma sem til viðmiðunar var hafður. Hún hafi því ákveðið að draga umsóknina til baka. Samantekt á störfum sínum og ýmsu öðru segir Áslaug hins vegar nýtast vel sem grunnur að heimasíðu Lögman, lögmanns- stofunnar sem hún starfrækir. Áslaug dregur um- sókn til baka Áslaug Björgvinsdóttir - Bakgrunnurinn þarf að vera annar Meira en hemingur skráðra félaga í VG í Suðurkjördæmi höfðu í gær kosið í prófkjöri Vinstri hreyfingar- innar – græns framboðs. Kosningin fer fram á heimasíðu flokksins og stendur fram til klukkan 17 í dag, mánudag. Stefnt er að því að úrslit verði tilkynnt í kvöld, mjög fljótlega eftir að kosningu lýkur. Fimm frambjóðendur stefna á fyrsta sætið í forvalinu og vilja leiða lista VG í Suðurkjördæmi. Þau eru Almar Sigurðsson ferðaþjónustu- bóndi, Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarmaður, Hólmfríður Árnadóttir, menntunar- fræðingur og skólastjóri, Kolbeinn Óttarsson Proppé alþingismaður og Róbert Marshall leiðsögumaður. Aðrar í framboði eru Sigrún Birna Steinarsdóttir háskólanemi, Anna Jóna Gunnarsdóttir hjúkrunarfræð- ingur og Helga Tryggvadóttir, náms- og starfsráðgjafi. Á laugardag rann svo út frestur til að skila inn framboðum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi sem fram fer laugardaginn 29. maí næstkomandi. Alls níu framboð bárust og er meðalaldur þeirra sem taka þátt 47 ár. Í prófkjörinu velja kjósendur fimm frambjóðendur hver. Fram- bjóðendur eru Ásmundur Friðriks- son alþingismaður, Reykjanesbæ, Björgvin Jóhannesson fjármála- stjóri, Sveitarfélaginu Árborg, Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftár- hrepps, Guðbergur Reynisson fram- kvæmdastjóri, Reykjanesbæ, Guð- rún Hafsteinsdóttir markaðsstjóri, Hveragerði, Ingveldur Anna Sigurð- ardóttir laganemi, Rangárþingi eystra, Jarl Sigurgeirsson skóla- stjóri, Vestmannaeyjum, Margeir Vilhjálmsson framkvæmdastjóri í Reykjavík og Vilhjálmur Árnason al- þingismaður í Grindavík. sbs@mbl.is Línur framboðsmála að skýrast - Margt er á seyði í Suðurkjördæmi - Prófkjöri VG að ljúka - Úrslit verða til- kynnt í kvöld - Níu gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokks sem er síðast í maí Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eyjar Suðurkjördæmi nær frá Vogum og alveg austur á Hornafjörð. Eins og jafnan á útmánuðum er líflegt við hafnir landsins, enda margir á sjó. Að undanförnu hafa komið allmargir dag- ar með brælu, kulda og norðanátt sem hefur hamlað sjósókn smábátasjómanna. Spáð er betra veðri strax upp úr miðri viku svo fleiri ættu að geta sótt sjóinn. Nú er grásleppuvertíð og meðal báta þar er Nýi Víkingur NS sem leggur upp í Hafn- arfirði. Verð fyrir grásleppuna hefur hins vegar aldrei verið jafn lágt sem nú og þar kemur til lokun markaða í Kína vegna kórónuveirunnar. fyrir sjávarútvegsráðherra og Hafrannsóknastofnun og þar eru mál í skoðun. Strandveiðar hefjast 3. maí næstkomandi. Í fyrra fengu sjó- menn á alls 660 bátum heimild til slíkra veiða og vegna at- vinnu- og efnahagsástands er reiknað með að enn fleiri skrái sig nú til leiks, miðað við fyrri ár. „Strandveiðarnar hafa sannað gildi sitt. Skipta miklu máli í sjávarbyggðum allt í kringum landið, svo sem í því að útvega hráefni til vinnslu- stöðva og skapa atvinnu. Ekki veitir af,“ segir Örn. sbs@mbl.is „Þetta lága afurðaverð veldur mönnum áhyggjum og dreg- ur úr áhuga á að hefja veiðar,“ segir Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Mikil ýsugengd á miðunum allt í kringum landið hefur sömuleiðis verið mjög áberandi og skapað vanda. Sjómenn sækja mest í þorsk en nú er ýsan meðalafli í þeim mæli að af- tak er. Þetta gefur, að sögn Arnar, tilefni til að ætla að ýsu- stofninn sé stærri en talið var og því ástæða til að auka heild- arkvóta í þeirri tegund. Sjónarmið þessi hafa verið kynnt Morgunblaðið/Árni Sæberg Smábátasjómenn sækja sjóinn og veðurspá vikunnar veit á gott

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.