Morgunblaðið - 12.04.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Grindavík er algjör paradís,“ seg-
ir Helga Dís Jakobsdóttir, bæj-
arfulltrúi í Grindavík. Sjónir fólks
hafa að undanförnu beinst að
byggðarlaginu suður með sjó, sem
margir forðuðust á meðan jarð-
skjálftar voru þar tíðir en er nú –
með gosinu í Geldingadölum –
heitur staður. Talsvert er umleikis
í atvinnulífinu og af hálfu sveitar-
félagsins er margt á döfinni, svo
sem stækkun Hópsskóla og bygg-
ing nýs leikskóla. Verið er að
leggja götur og innviði í nýju
hverfi, efst og austarlega í bænum.
Alls eru Grindvíkingar nú 3.535,
borið saman við 3.122 árið 2016 og
2.815 fyrir áratug. Á einum áratug
er fjölgunin rúmlega 20%.
„Mér fannst rosalega gott að
alast upp í Grindavík, að geta
gengið í skólann og á körfubolta-
æfingar. Mikill íþróttabær og
stemningin sem myndast þegar
það er úrslitakeppni í körfunni er
engu lík. Upplifun mín á samfélag-
inu hérna er mjög góð og hvað
kostunum viðvíkur þá er hér flest
afar heimilislegt og fólk þekkist.“
Hamingjusamasta fólkið
Grindavík er athafnabær og
meginstoðirnar í atvinnulífinu eru
tvær; sjávarútvegur og ferðaþjón-
usta. Nokkur af stærri sjávar-
útvegsfyrirtækum landsins eru í
Grindavík, en um 10% af heim-
ildum á yfirstandandi fiskiveiðiári
tilheyra útgerðinni í bænum.
„Svo er hér mikið af litlum og
flottum fyrirtækjum í bænum.
Veitingahúsin eru mörg, brugghús
og gjafavöruverslanir. Einnig eru
dæmi um það að íbúar vinni á höf-
uðborgarsvæðinu enda stutt að
fara. Fyrir tveimur árum var gerð
könnun sem sýndi að Grindvík-
ingar væru hamingjusamasta fólk
á landinu, sem var mjög jákvæð
niðurstaða. Ég tel að ánægja íbúa
hér stafi mikið af því að geta búið
og alið upp börn í litlu samfélagi
með öllum þeim kostum sem því
fylgir ásamt því að vera stutt frá
höfuðborgarsvæðinu.“
Magnað að sjá eldgosið
Jarðhræringar og landris við
Grindavík hófust í janúarlok á síð-
asta ári og þau umbrot voru stöð-
ug, allt fram að upphafi gossins í
Geldingadölum þann 19. mars síð-
astliðinn. „Móðir jörð er heldur
betur búin að láta finna fyrir sér.
Jarðskjálftarnir fóru misvel í fólk
og mín upplifun var sú að óvissan
færi verst í fólk. Sjálf er ég ekki
hrædd við jarðskjálftana en þeir
venjast ekki vel. Jarðskjálftahrin-
urnar vikurnar fyrir gosið voru
mjög kraftmiklar og langar,
gjarnan á nóttunni og slíkt sleit
svefn hjá fólki,“ segir Helga Dís og
heldur áfram:
„Eldgosið kom upp á mjög
heppilegum stað og við upphaf
þess fannst mér eins og fólki væri
létt, að minnsta kosti hægði á
skjálftunum. Iðandi mannlíf og
mikil umferð hefur verið í bænum
síðan gosið hófst og magnað er að
sjá hvernig lögregla, björgunar-
sveitir og aðrir hafa starfað og
staðið sig. Ég hef sjálf gengið að
gosinu tvisvar og þetta er eitt það
magnaðasta sem ég hef séð.“
Bæjarmál eru áhugaverð
Helga Dís Jakobsdóttir er
bæjarfulltrúi Raddar unga fólks-
ins, sem í síðustu bæjarstjórn-
arkosningum fékk 298 atkvæði og
einn mann í bæjarstjórn. Að fram-
boðinu stóðu nokkur skólasystkini,
ungt fólk sem flest var að ljúka
námi, kaupa sína fyrstu íbúð og er
að skapa sína framtíð.
„Við sem að framboðinu stóð-
um vorum öll sammála um að okk-
ur langaði að setjast að í Grinda-
vík, en vildum hafa áhrif á
bæjarmálin. Við höfum lagt
áherslu á að hafa stjórnsýsluna
opnari og nútímalegri, það er gert
í mörgum litlum skrefum eins og
með opnu bókhaldi. Einnig að
ákvarðanir sem eru teknar séu til
frambúðar en ekki plástur á
ástand hvers tíma. Hugmyndin var
líka sú að gefa ungu fólki tækifæri
til að stíga sín fyrstu skref í pólitík
óháð flokkum. Ég hef lært margt á
þessu kjörtímabili og finnast bæj-
armálin í senn áhugaverð og
skemmtileg. Augljóslega verð ég
ekki alltaf í Rödd unga fólksins, en
mun alltaf standa með stjórn-
málahreyfingum sem þessari.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvað gera skuli í næstu kosn-
ingum en ég held klárlega áfram
með einhverju móti í bæjarmál-
unum.“
Jöfn og stöðug fjölgun íbúa í Grindavík sem er útgerðar-, íþrótta- og ferðaþjónustubær
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bæjarfulltrúi Ákvarðanir til frambúðar, segir Helga Dís Jakobsdóttir.
Unga fólkið vill hafa áhrif í bænum
- Helga Dís Jakobsdóttir er
fædd 1991 og ólst upp í Grinda-
vík. Hún er með BS-gráðu í við-
skiptafræði með áherslu á
stjórnun og forystu frá HÍ. Hefur
einnig lokið MS-gráðu í þjón-
ustustjórnun.
- Er þjónustu- og upplif-
unarstjóri Nettóverslana Sam-
kaupa og hefur setið í bæj-
arstjórn Grindavíkur fyrir
framboðið Rödd unga fólksins
frá 2018.
Hver er hún?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Grindavík Íbúar eru nú rúmlega 3.500 talsins. Ný íbúðahverfi í þróun.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Löndun Um 10% af heildarkvótanum eru skráð í Grindavík.
Íslenska fyrirtækið Hopp hefur unn-
ið að því síðustu daga að fjölga raf-
skútum á höfuðborgarsvæðinu.
Byrjað var í Reykjavík, síðan farið í
Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð
nú fyrir helgina.
Núna í mánuðinum hyggst Hopp
fjölga rafskútum úr 300 í 1.200, en
einnig stendur til að bæta við þjón-
ustusvæði í Reykjanesbæ, á Egils-
stöðum, í Vestmannaeyjum, á Ak-
ureyri, Hellu, Siglufirði og í
Ólafsvík.
Hopp var stofnað fyrir tveimur
árum og eru notendur nú sagðir um
75 þúsund. Hafa notendur „hoppað“
yfir milljón kílómetra sem svarar til
um 25 ferða í kringum hnöttinn.
Nýju skúturnar frá Hopp eru
sagðar búa yfir ýmsum eiginleikum,
s.s. stefnuljósi, símahaldara með
þráðlausri hleðslu, tvöföldum heml-
um og nýjum standara.
Í Garðabæ voru nýju rafskút-
urnar vígðar af þeim Gunnari Ein-
arssyni bæjarstjóra og Jónu Sæ-
mundsdóttur, formanni
umhverfisnefndar bæjarins, með því
að leggja í stutta ferð frá Garða-
torgi, eins og meðfylgjandi mynd
sýnir.
Rafskútum Hopp
fjölgað í 1.200
- Auka þjónustu á höfuðborgarsvæð-
inu og fjölga á landsbyggðinni í sumar
Rafskútur Jóna Sæmundsdóttir og
Gunnar Einarsson tilbúin.
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Millisíður kjóll
16.990 kr
A-sniðs kjóll
12.990 kr
Blúndukjóll
20.990 kr
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is