Morgunblaðið - 12.04.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 12.04.2021, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021 SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® VIÐ MÆTUM AFTUR 15. APRÍL EÐA UM LEIÐ OG COVID LEYFIR. Starfsfólk Sambíóanna sendir ykkur öllum bestu kveðjur. Hlökkum til að hitta ykkur í bíó aftur og upplifa skemmtilegar stundir saman. VÆ NT AN LEG Í B ÍÓ ÓSKARS- TILNEFNINGA MYNDIRNAR MÆTA AFTUR VÆNTANLEG Í BÍÓ AF MYNDLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hjörtu ófárra myndlistarunnenda út um heimsbyggðina hafa tekið á stökk fyrir helgina þegar þeir sáu fréttir um að mögulega – og það mjög líklega – hafi málverk eftir Caravaggio komið í leitirnar á Spáni. Verk sem líklega var málað í Napólí árið 1606, fyrir 415 árum. Myndlistarmaðurinn ítalski Michelangelo Merisi da Caravaggio (1571-1610) er í dag sá dáðasti af öll- um listmálurum barokktímans og eru einungis til 79 verk sem nokkuð óyggjandi þykir að hann hafi málað – uppruni tíu verka til sem eignuð eru honum er umdeildur og þá eyði- lögðust þrjú í sprengjuregni banda- manna á Berlín 1945. Frægð Cara- vaggios byggir að einhverju leyti á því hvað hann var umtalaður á sinni tíð, fyrir yfirgang og ribbaldaskap – hann varð líka manni að bana í Róm og eyddi síðustu árunum á flótta undan yfirvöldum. En Caravaggio varð líka ungur ofurstjarna og óum- deildur áhrifavaldur fyrir einstaka hæfileika sína og splunkunýja nálg- un við raunsæi í verkunum, þótt þau lýsi mörg sögum úr Biblíunni. 230.000 kr. eða 17 milljarðar? Uppgötvun verksins á Spáni var ævintýraleg. Í skrá Ansorena- uppboðshússins yfir verk sem stóð til að bjóða upp var mynd af dökku og óhreinu málverki sem var sagt 111 x 86 cm að stærð og sýnir afar hefðbundið þema málverka á 17. öld, „Ecce Homo“ eða „Sjáið mann- inn“, hvar Pontíus Pílatus sýnir lýðnum Krist fyrir krossfestinguna. Verkið var sagt vera eftir ónefndan fylgjanda spænska málarans José de Ribera (1591-1652) sem hafði hrifist mjög af hinni byltingar- kenndu notkun Caravaggios á hörðu ljósi og dimmum skuggum sem kallast chiaroscuro og beitt slíkri tækni sjálfur. Og verðið sem ómerkt verkið var metið á vekur at- hygli: um 230 þúsund krónur. En þegar tekið var að nefna nafn Cara- vaggios í sambandi við málverkið, skellti menningarmálaráðuneyti Spánar, að ósk stjórnenda Prado- safnsins í Madríd, útflutningsbanni á það og uppboðshúsið hætti í kjöl- farið við að bjóða það upp. Enda mun verðmiðinn breytast ef mál- verkið verður staðfest sem höfund- arverk Caravaggios – þá gæti það kostað á bilinu sjö til sautján millj- arða króna. Sem myndi eflaust gleðja eigendurna sem fjölmiðlar á Spáni segja „venjulega“ fjölskyldu. „Caravaggio, ekki spurning!“ Samkvæmt The New York Times ráku menn sem höndla með gamla myndlist í London, þeir Marco Voena og Fabrizio Moretti, augun í verkið í uppboðsskrá Anso- rena á netinu fyrir tveimur vikum. Þeir flugu strax til Madrídar að skoða málverkið og sannfærðust um að það væri verk Caravaggios. „Þetta er Caravaggio, ekki spurning! Það er ótrúlegt. Það er mjög áhrifamikið,“ segir Voena og bætir við að hann hafi þegar boðist til að hafa milligöngu um sölu verksins til safns á Spáni en upp- boðshúsið hafi ekki svarað því. Talsmaður Ansorena segir að sérfræðingar séu þegar teknir að rannsaka verkið til að reyna að staðfesta hver sé höfundurinn. Bæði þarf að kanna það list- sögulega og efnið sem notað er, strigann, litina og hvernig þeir hafa verið bornir á. Gæti endað í Prado-safninu Margir kunnáttumenn um list Caravaggios hafa blandað sér í um- ræðuna. Í The New York Times er vitnað í aðstoðarprófessor í listasögu frá Róm sem flaug líka til Madríd að skoða málverkið og segist ekki efast um að þarna sé komin útgáfa Cara- vaggios af „Ecce Homo“ sem vitað er að hann hafi málað, og einmitt í þess- ari stærð, fyrir safnara í Róm á sín- um tíma. Sumir sérfræðingar hafa talið að það verk sé í safni í Genóa en það er umdeilt og aðrir sérfræðingar telja það vera eftir fylgjanda Cara- vaggios. Verkið nýuppgötvaða á Spáni geti því vel verið frummyndin. Og til frekari staðfestingar sýnist mönnum að fyrirsætan í hlutverki Krists sé sú sama og í öðru verki Caravaggios sem er í Kunsthistor- isches-safninu í Vínarborg. Aðstoðarprófessorinn frá Róm segir ástand verksins ekki gott, á einhverjum stöðum hafi málningin molnað af og það sé upplitað. Þá verði að skýra eigendasöguna. Í The Guardian er vitnað í ann- an virtan sérfræðing í myndlist 17. aldar sem er alls ekki sannfærður um að verkið sé eftir Caravaggio en telur það hins vegar vera fyrsta flokks verk eftir einhvern fylgjanda meistarans. Áður en umræðan um „Ecce Homo“ fór á flug voru þrjú staðfest málverk eftir Caravaggio á Spáni. Konungsfjölskyldan á eitt og er það sjaldan til sýnis, eitt er í safni í Kata- lóníu og eitt í Prado-safninu stóra. Reynist málverkið vera eftir Cara- vaggio má telja víst að Prado ásælist það og gæti fengið keypt á um sjö milljarða króna. En fari verkið út á einkamarkaðinn telja sérfræðingar að verðið gæti verið meira en tvöfalt hærra. Ég vona að verkið endi á safni reynist það vera það sem marga grunar – eftir Caravaggio. Ástæðan er sú að eins og svo margir aðrir þá er ég einlægur aðdáandi og reyni að sjá sem flest verka hans, hvar sem þau eru niður komin. Hef þegar not- ið þess að standa fyrir framan 49 – og eitt spennandi til myndi bætast á listann. Enn einn Caravaggio fundinn? Ansorena-uppboðshúsið Ecce Homo Málverkið sem átti að bjóða upp ódýrt og var talið eftir ónefnd- an fylgjanda de Riberas en er nú af mörgum talið verk sjálfs Caravaggios. Sænski fótboltamaðurinn Zlatan Ibrahimovic birti nýverið mynd af sér á Instragram-síðu sinni með yfirskriftinu Antivirus. Spekingar telja að hann hafi þar með staðfest að hann muni leika í nýrri kvikmynd um Ástrík og Steinrík, Silkivegur- inn, sem Guillaume Canet leikstýrir og væntanleg er á næsta ári. Sam- kvæmt SVT munu fleiri íþrótta- garpar leika í myndinni, m.a. fót- boltamaðurinn Zindedine Zidane og ökuþórinn Michael Schumacher. Samkvæmt IMDb mun leikstjór- inn Guillaume Canet sjálfur fara með hlutverk Ástríks. Í öðrum helstu hlutverkum eru Vincent Cassel sem Seasar, Marion Cotillard sem Kleópatra og Gilles Lellouche sem Steinríkur, en Gérard Depard- ieu hefur leikið hann í fyrri mynd- um. Depardieu er nú til rannsóknar vegna ásakana um kynferðisofbeldi framið 2018. Kvikmyndin, sem væntanleg er, fjallar um einu dóttur kínverska keisarans Han Xuandi, sem flýr vondan prins og leitar ásjár hjá Gaulverjum. Dúó Steinríkur og Ástríkur í bókinni Ástríkur og víkingarnir. Íþrótta- garpar í Ást- ríksmynd Zlatan Ibrahimovic Zinedine Zidane

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.