Morgunblaðið - 12.04.2021, Page 10

Morgunblaðið - 12.04.2021, Page 10
SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Mikill atburður hefur gerzt. Í fyrsta sinn í sögu mannkynsins hefur mað- ur tekizt á hendur ferð út í him- ingeiminn. Hinn 12. apríl 1961, kl. 9.07 að Moskvu-tíma, lagði geim- skipið Vostok, í ferð út í geiminn með mann innanborðs. Er geimskipið hafði farið rúmlega eina ferð um- hverfis jörðu lenti það heilu og höldnu á hinni helgu jörð föðurlands vors, Rússlands.“ Svo hljóðaði upp- haf tilkynningar miðstjórnar Sov- éska kommúnistaflokksins, þar sem greint var frá því að Júrí Gagarín hefði fyrstur manna farið út í geim- inn. Nú, sextíu árum síðar endurómar afrek hans enn í mannkynssögunni, en það gerðist á viðkvæmum tíma í kalda stríðinu og undirstrikaði um leið þá yfirburði sem Sovétríkin höfðu gagnvart Bandaríkjamönnum í geimferðakapphlaupi risaveldanna, sem hófst þegar Sovétmenn skutu Spútník á loft árið 1956 og lauk í raun með tunglgöngu Bandaríkjamanns- ins Neil Armstrong í júlí 1969. Líkt og fyrr sagði var geimfari Gagaríns, Vostok-1, skotið á loft frá Baikonur-geimstöðinni, sem nú er í Kasakstan, klukkan 9:07 að stað- artíma, eða 6:07 að íslenskum tíma. Þegar geimfarið tókst á loft mælti Gagarín í talstöð sína rússneska orð- ið „Pojekhali“, sem á íslensku gæti útlagst sem „Leggjum í hann!“ en orðið varð að nokkurs konar tákn- mynd í austantjaldsríkjunum fyrir geimferðakapphlaupið og afrek Sovétríkjanna þar. Ferðalag Gagaríns umhverfis jörð- ina tók 108 mínútur í heildina, og fór hann yfir Kyrrahaf, Suður-Ameríku og Afríku, áður en farið hélt aftur til jarðar. Varpaði Gagarín sér út í fall- hlíf þegar farið var í um 7 kílómetra hæð, og lenti hann nálægt bóndabæ í Saratov-héraði. Lýsti Gagarín því síðar hvernig bóndinn og dóttir hans hefðu óttast þennan skrítna mann, klæddan í appelsínugulan geimfara- búning og hjálm með fallhlíf. „Ég sagði þeim, ekki óttast, ég er sov- éskur ríkisborgari eins og þið, sem var að koma úr geimnum og þarf að finna síma til að hringja til Moskvu!“ Gagarín var þá 27 ára gamall og tveggja barna faðir. Vendipunktur í sögunni Rússar hafa alla tíð verið mjög stoltir af þætti sínum í geimferðasög- unni, en þeir voru þar helstu frum- kvöðlar og jafnan skrefinu framar en Bandaríkjamenn á fyrstu stigum kapphlaups risaveldanna um geim- inn. Mikhaíl V. Noskov, sendiherra Rússlands á Íslandi, segir að ferð Júrí Gagaríns hafi verið vendipunkt- ur í mannkynssögunni. „Hinn 12. apríl 1961 rættist loks hinn aldalangi draumur um að kom- ast nær stjörnunum og varpa ljósi á sumar af ráðgátum alheimsins,“ seg- ir Noskov. „Frá þeim tíma hefur könnun geimsins verið einn helsti drifkraftur vísindarannsókna og há- tækniþróunar. Rússar munu ávallt vera stoltir af þeirri staðreynd, að fyrsti maðurinn í geimnum var sam- landi þeirra,“ segir Noskov. Gagarín kom til Íslands í júlí 1961, en hann var þá á leiðinni til Kúbu og millilenti á Keflavíkurflugvelli. Á meðal þeirra blaðamanna sem fengu að ræða við Gagarín var Matthías Jo- hannessen, þáverandi ritstjóri Morg- unblaðsins, og bauð því rússneska sendiráðið Matthíasi til sín í vikunni til þess að fræðast um kynni hans af Gagarín. Var fundur hans og sendi- herrans mjög fróðlegur, en með Matthíasi í för var sonarsonur hans, Kristján, sem nú starfar sem frétta- stjóri á Morgunblaðinu. Viðmótsþýður en ósannfærandi Íslandsheimsókn Gagaríns vakti að vonum heilmikla athygli hér á landi, og voru henni gerð góð skil í Morgunblaðinu 25. júlí 1961, en Gag- arín tók við spurningum frá blaða- mönnum. Var hann m.a. spurður hvort sér líkaði betur við leikkonuna Ginu Lollobrigada eða Vostok- geimfarið, og sagði Gagarín enga leið að bera saman lifandi og dauða hluti. Þá var hann spurður hvort hann hefði beðið til Guðs meðan geimferð- inni stóð, og lá ekki á svari: „Sannur kommúnisti biður ekki til Guðs.“ Í Vettvangspistli sínum ritaði Matthías Johannessen nokkuð um þetta svar Gagaríns, og sagði að það hefði verið skemmtilegt að hitta geimfarann, og sagði hann viðmótsþýðan, þótt ekki hefði hann verið sannfærandi. Mögu- lega kann afstaðan til kalda stríðsins að hafa ráðið þeirri lýsingu, en í frétt blaðsins er greint frá því að piltur úr Æskulýðsfylkingunni hefði litið öðru- vísi á svar Gagaríns. „Helvíti stakk hann upp í þá!“ heyrðist í pilti. Umhverfis jörðina á 108 mínútum - Sextíu ár liðin frá geimferð Júrí Gagaríns - Rússar verða ávallt stoltir af afrekum sínum í geimferðasög- unni - Íslandsheimsókn Gagaríns vakti mikla athygli og umfjöllun - Buðu Matthíasi í sendiráðið Ljósmynd/Rússneska sendiráðið Tímamót Rússneska sendiráðið bauð Matthíasi Johannessen í heimsókn í vikunni til þess að forvitnast meira um komu Gagaríns til Íslands. Frá vinstri: Ívan Glinkin sendiráðsfulltrúi, Mikhaíl V. Noskov, sendiherra Rúss- lands, Matthías og Kristján H. Johannessen, barnabarn Matthíasar. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Gagarín á Íslandi Hér sést Júrí Gagarín í fylgd með Maríu Guðmundsdóttur, Ungfrú Íslandi 1961, og Matthíasi Jo- hannessen, þáv. ritstjóra Morgunblaðsins, 24. júlí 1961, en Gagarín millilenti þá á Íslandi á leið sinni til Kúbu. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021 Júrí Alexejevitsj Gagarín fædd- ist 9. mars 1934 í Klushinó, smáþorpi um 240 km norð- vestur af borginni Smolensk. Í nágrenni þorpsins var bærinn Gzhatsk, sem endurskírður var í höfuðið á Gagarín eftir andlát hans. Gagarín vann sem unglingur í stálverksmiðju í borginni Ljú- bertsí, en lærði að fljúga um helgar. Árið 1955 var hinn 21 árs gamli Gagarín samþykktur í flugskóla sovéska flughersins og útskrifaðist þaðan 1957. Hann þjónaði við landamæri Noregs til ársins 1959, þegar hann var samþykktur sem kandídat í geimferðaáætlun Sovétríkjanna. Gagarín var 1,57 metrar á hæð, en geimfarar máttu ekki vera hærri en 1,70 og ekki þyngri en 72 kíló. Upphaflega komu 154 flugmenn til greina, en af þeim voru 20 valdir til frekari þjálfunar, og sá hópur síðan skorinn niður í sex manns. Hinn 8. apríl 1961 var Gag- arín formlega útnefndur sem flugmaður Vostok-1-flaug- arinnar, en hann þótti bera af í fasi og hæfni. Gagarín varð heimsfrægur í kjölfar afreks síns, og var hann kjörinn sem fulltrúi í neðri deild sovéska þingsins og síðar í efri deildina. Hann ferðaðist um heiminn og vakti hvívetna mikla athygli. Matthías Johann- essen, þáverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir að Gag- arín hafi verið sjálfsöruggur mjög, sem skiljanlegt var í ljósi þess mikla afreks sem hann hafði unnið. Gagarín fór aldrei aftur út fyrir gufuhvolf jarðar. Hann lést í flugslysi 27. mars 1968 og spunnust fljótlega upp sam- særiskenningar um andlátið. Rannsóknir síðari tíma benda hins vegar til að Gagarín hafi misst stjórn á vél sinni eftir að önnur flugvél í nágrenninu rauf hljóðmúrinn, en veðuraðstæður voru mjög slæmar þegar slysið varð og skyggni lítið. Sjálfsörugg þjóðhetja JÚRÍ GAGARÍN Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is „Í dag var enn einum áfanga náð í þrotlausum tilraunum mannanna til þess að sigrast á öflum náttúrunnar og auka þekkingu sína á ómælisvíð- áttu himingeimsins. Maður sté um borð í geimfar — því var skotið út í geiminn — það komst á braut um- hverfis jörðu — og sneri til hennar aftur eftir að hafa farið liðlega eina hringferð. Voru liðnar 108 mínútur frá upphafi ferðarinnar, er mað- urinn lenti á jörðu niðri, heill á húfi.“ Svo hljóðaði upphaf forsíðufréttar Morgunblaðsins hinn 13. apríl 1961 þegar það greindi frá hinu mikla vís- indaafreki sem Gagarín átti þátt í. Var í fréttinni gert nokkuð úr því að nöfn þeirra rússnesku vísinda- manna sem mestan þátt höfðu átt í að koma Gagarín á sporbaug um jörðu hefðu ekki verið gerð heyr- inkunnug, en jafnframt var greint frá orðum Níkíta Krúsjeff, þáver- andi leiðtoga Sovétríkjanna, um að Gagarín væri nú ódauðlegur í sög- unni. Þá greindi blaðið einnig frá því að í í nýrri símaskrá Moskvuborgar væru átta manns skráðir undir nafn- inu Gagarín og hefðu þeir orðið fyrir ónæði vegna hins mikla afreks, þar sem greinilega vildu margir óska hetjunni til hamingju. „Símahring- ingum hefur ekki linnt hjá mönnum þessum í allan dag, og voru þeir löngu orðnir uppgefnir og sumir fokvondir þegar er leið að hádegi.“ Í leiðara blaðsins var afrekinu fagnað, en þó hnýtt utan í hylli Gag- aríns við kommúnista. Þá var þess óskað að afrek Rússa yrði hagnýtt til góðs, en ekki gjöreyðileggingar. Átta Gagarínar í símaskránni - Afrek Gagaríns og koma til Íslands fengu góða umfjöllun í Morgunblaðinu Afrek Forsíðan 13. apríl 1961.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.