Morgunblaðið - 12.04.2021, Page 12

Morgunblaðið - 12.04.2021, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsl a Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið 12. apríl 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.79 Sterlingspund 175.29 Kanadadalur 101.6 Dönsk króna 20.424 Norsk króna 15.018 Sænsk króna 14.934 Svissn. franki 137.97 Japanskt jen 1.1649 SDR 181.94 Evra 151.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.2376 Hrávöruverð Gull 1747.95 ($/únsa) Ál 2267.5 ($/tonn) LME Hráolía 63.28 ($/fatið) Brent « Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að netverslunarsamsteypan Alibaba greiði sekt að upphæð 18,2 milljarðar yuana, jafnvirði 2,8 milljarða dala, fyrir markaðsmisnotkun. Jafngildir upp- hæðin 4% af tekjum félagsins árið 2019, að því er Financial Times greinir frá. Er Alibaba gefið að sök að hafa frá árinu 2015 þvingað seljendur til að selja vörur sínar einvörðungu í gegn- um vefmarkaðstorgin Tmall og Taobao. Á Alibaba að hafa beitt mark- aðsstöðu sinni, skilmálum, gagnasafni og hugbúnaði til að refsa þeim selj- endum sem ekki héldu sig eingöngu við markaðstorg samsteypunnar. Þó að sektin sé há áætla markaðs- greinendur að hún muni ekki hafa telj- andi áhrif á rekstur Alibaba til skemmri tíma en í árslok 2020 hafði samsteypan til ráðstöfunar um 48 milljarða dala virði af reiðufé og nam hagnaður félagsins 24 milljörðum dala á síðsta ári. Til lengri tíma litið gæti málið þó veikt stöðu Alibaba í deilum við stjórnvöld, s.s. um skatta- skil og sölu á fölsuðum varningi. Reuters segir eftirlitsstofnanir Kína vera að sækja í sig veðrið og að þær hafi bætt við sig starsfólki til að geta vaktað betur mál sem varða markaðs- misnotkun og hringamyndun. Sam- hliða því er verið að endurskoða sam- keppnislöggjöf, m.a. með það fyrir augum að hækka sektir og útvíkka núverandi skilgreiningu á markaðs- ráðandi stöðu. ai@mbl.is Alibaba fær risasekt Átök Sektin ætti ekki að sliga Alibaba. STUTT VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Tölvuþrjótar eru fljótir að sæta færis þegar þeir greina hvers kyns veik- leika í vörnum fólks og fyrirtækja. Charlie McMurdie segir kórónuveirufaraldurinn fela í sér verulegar hættur hvað varðar tölvu- öryggi enda hafi skúrkarnir ótal tækifæri til að láta til skara skríða og t.d. plata fólk til að smella á vara- sama hlekki. „Þeir vita sem er að hvers kyns fregnir tengdar faraldrinum framkalla ákveðna hegðun hjá fólki. Stjórn- völd eru m.a. að bjóða fyrirtækjum og einstaklingum fjárhagsstuðning og hægt að nota það sem beitu á öng- ulinn í tölvuárásum, s.s. til að fá fólk til að opna viðhengi,“ útskýrir McMurdie. „Tölvuþrjótarnir vita að margir eru í erfiðri stöðu og þeir munu reyna að nýta sér hvers kyns veikleika.“ McMurdie er einn reyndasti sér- fræðingur Bretlands í tölvuöryggis- málum og starfaði í 32 ár hjá net- glæpadeild Lundúnalögreglunnar, Scotland Yard. Origo efnir til netfyr- irlestrar um netöryggismál næst- komandi fimmtudag þar sem McMurdie fræðir gesti um þróunina og helstu hættur sem þarf að varast. Misöruggar tengingar McMurdie segir það geta skapað ákveðna hættu þegar fólk vinnur í meira mæli heiman frá sér. „Eitt er að hafa vinnustöð innan fyrirtækis- ins, þar sem búið er að reisa varnir utan um öll kerfi og tengingar og annað að vinna utanhúss. Þegar vinnutölvan tengis t.d. þráðlausu neti á kaffihúsi eða hóteli er ekki hægt að útiloka að um sé að ræða nettengingu sem tölvuþrjótar settu upp gagngert til að veiða fórnarlömb í gildru. Að tengjast vinnustaðnum gegnum VPN-tengingu getur hjálpað en veit- ir samt ekki fullkomna vernd,“ út- skýrir McMurdie og bætir við að net- tenging heimilisins sé ekki endilega örugg enda notuð bæði af fullorðnum og börnum sem kunna ekki alltaf að varast hætturnar og gætu fyrir slysni opnað tölvuþrjótum leið að tölvubúnaði og gögnum heimilisfólks. Fyrirtæki og stofnanir geta fylgt vissum stöðlum til að gera tölvuþrjót- um lífið leitt. McMurdie segir marga ólíka staðla í boði og að hvert fyrir- tæki verði að velja sér staðla og við- mið sem hæfi sínum rekstri, í sam- ræmi við þær hættur sem vinnustaðurinn kann að standa frammi fyrir og með tilliti til þess skaða sem tölvuárás gæti valdið. Ekki sé nóg að tryggja að rétti vél- búnaðurinn og hugbúnaðurinn sé til staðar heldur þurfi að gæta vel að þjálfun starfsfólks svo það t.d. kunni að vara sig á gildrum tölvuþrjótanna. Er mannauðsstjórinn auðvelt skotmark? Þegar hún er spurð um glufur í vörnum fyrirtækja sem rekja má til mannlegra mistaka nefnir McMurdie mikilvægi þess að hafa góða yfirsýn yfir hverjum er hleypt inn í sameig- inleg kerfi. „Starfsfólk kemur og fer og einnig er algengt að ráðgjafar og verktakar séu fengnir til að sinna af- mörkuðum verkefnum, og fái á með- an aðgang að hinum ýmsu kerfum. Ef gleymist að loka fyrir aðgang þessa fólks þegar það hættir störfum er verið að gera kerfi vinnustaðarins berskjölduð fyrir árás.“ McMurdie segir líka algengt að vanmeta hvaða starfsmenn eru lík- legastir til að verða fórnarlömb tölvuárása og þannig sé það ekki endilega forstjórinn eða fjármála- stjórinn sem tölvuþrjótarnir hafa í sigtinu. „Deildin sem sér um starfs- mannahald er t.d. í þeim sporum að fá mikið af tölvupósti með viðhengj- um, frá fólki í atvinnuleit. Er ekki alltaf auðvelt fyrir starfsmanna- stjóra að átta sig á hvaða viðhengi á að varast, en ekki nóg með það held- ur hafa starfsmannastjórar oft að- gang að alls konar mikilvægum kerf- um innan fyrirtækisins,“ útskýrir hún. „Sömu sögu er að segja um að- stoðarmann forstjóra eða fram- kvæmdastjóra sem tekur við tölvu- póstum af öllu mögulegu tagi og þarf oft að hafa aðgang að öllum gögnum og kerfum til að geta sinnt starfi sínu sem best.“ Mikið er í húfi og segir McMurdie að jafnvel fyrir lítið hagkerfi eins og Ísland sýni opinberar tölur að tjón vegna tölvuárása valdi verulegum efnahagslegum skaða. „Er líka vert að hafa í huga að það skiptir æ meira máli í alþjóðlegum viðskiptum að treysta megi á tölvuöryggi þeirra fyrirtækja og stofnana sem verslað er við.“ Veiran eykur líkur á árásum AFP Skotmark Þýskur tölvunarfræðingur í fjarvinnu. Veirufaraldurinn kom róti á líf fólks og tölvuþrjótar sæta færis. - Breskur sérfræðingur segir viðbúið að tölvuþrjótar gangi á lagið nú þegar sér fyrir lokin á veirufaraldri - Fjarvinnu fylgja ákveðnar tölvuöryggishættur flugi muni torvelda flugfélögum að byggja rekstur sinn upp að nýju eftir skakkaföll kórónuveirufaraldursins. Þá segir hún það ekki skjóta skökku við að ríkið styðji Air France en setji innanlandsflugi skorður á sama tíma. Umhverfisverndarsinnar hafa gagnrýnt frönsk stjórnvöld fyrir að ganga ekki nógu langt og vilja að bannað verði að fljúga á milli borga ef lestarferðalagið á milli þeirra tek- ur minna en fjórar klukkustundir. Áður en nýju lögin taka gildi verða þau lögð fyrir efri deild þingsins og síðan aftur fyrir neðri deildina. Verði frumvarpið að lögum má t.d. reikna með að flug leggist af á milli Parísar og Bordeaux sem og á milli Parísar og Lyon en með háhraðalest má ferðast þar á milli á um tveimur tímum. ai@mbl.is Neðri deild franska þingsins sam- þykkti á laugardag frumvarp sem bannar flugfélögum að fljúga á milli áfangastaða innanlands ef ferðast má sömu leið með lest á innan við tveimur og hálfum klukkutíma. Að sögn Reuters er þetta gert til að draga úr kolefnislosun og er hluti af metnaðarfullri áætlun franskra stjórnvalda um að árið 2030 verði kolefnislosun landsins 40% lægri en hún var árið 1990. Er stutt síðan franska ríkið ákvað að verja 4 milljörðum evra til endur- fjármögnunar ríkisflugfélagsins Air France og með því tvöfalda eignar- hlut sinn í félaginu. Agnes Pannier- Runacher, iðnaðarráðherra Frakk- lands, hefur vísað á bug gagnrýni hagsmunaaðila í fluggeiranum sem segja að takmarkanir á innanlands- AFP Deila Fluggeirinn kvartar en um- hverfisverndarsinnar vilja meira. Frakkar skrefi nær banni við innanlandsflugi á styttri leiðum Nýlega bárust fréttir af því að tölvuþrjótar hefðu komist yfir mikið magn upplýsinga um notendur Facebook. Settu tölvuþrjótarnir gögnin á netið og birtu t.d. símanúmer, fæðingardag og tölvupóstföng um 533 milljóna notenda samfélagsmiðilsins. McMurdie segir gögn eins og þau sem stolið var frá Facebook ekki geta gert mikinn óskunda ein og sér en tölvuþrjótar viði að sér gögnum úr ýmsum áttum og geti þannig reynt að finna höggstað á fólki. „Þetta minnir t.d. á mikilvægi þess að nota ekki sama lykilorðið alls staðar. Ef t.d. tölvuþrjótar gætu komist að því að ég notaði tiltekið lykilorð á Face- book, og ef þeir hefðu í annarri tölvuárás komist að því hvaða netbanka ég nota, þá gætu þeir tengt þessar upplýsingar saman og freistað þess að athuga hvort að Facebook-lykilorðið virkar líka til að komast inn í net- bankann minn.“ Tölvuþrjótar púsla gögnum saman HÆTTULEGT AÐ ENDURNÝTA LYKILORÐ Charlie McMurdie

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.