Morgunblaðið - 12.04.2021, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. APRÍL 2021
- heimili, hönnun, tíska
og samkvæmislífið
Lífstílsvefurinn okkar
- fylgt landsmönnum í 10 ár
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU
Vertu með
á nótunum
40 ára Benedikt Bóas
er Mývetningur en býr í
Reykjavík. Hann er
stúdent frá Keili og er
blaðamaður á Frétta-
blaðinu.
Maki: Sandra Hlín
Guðmundsdóttir, f.
1995, starfs- og námsráðgjafi í Borgar-
holtsskóla.
Dætur: Matthildur Embla, f. 2006, og
Kolfinna Katla, f. 2010. Stjúpdóttir er
Hrafnhildur Sunna, f. 2018.
Foreldrar: Guðbjörg Ásdís Ingólfsdóttir,
f. 1954, vann í Kirkjuhúsinu, og Hinrik
Árni Bóasson, f. 1954, vélstjóri. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Benedikt Bóas
Hinriksson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ert uppfullur af hugmyndum og
fleiri streyma að þér úr öllum áttum. Forð-
astu margmenni og settu mörk í fé-
lagslífinu.
20. apríl - 20. maí +
Naut Hugmyndir þínar um skemmtun eru
þínar eigin, ekki vera hissa þótt þú gerir
eitthvað allt annað en vinir þínir. Sýndu
þeim sem eru á öndverðum meiði við þig
fulla sanngirni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Afslöppun er lykilorð dagsins.
Ekki trúa öllu gagnrýnislaust. Hurð skellur
nærri hælum í umferðinni, farðu varlega.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert í rómantískum hugleið-
ingum og ættir að gera þér glaðan dag
með ástvini þínum. Láttu aðra ekki hafa
áhrif á ákvarðanir þínar.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Oft getur saklaus umræða breyst í
deilur og rifrildi. Segðu fólki frá og þú munt
skilja að frásögn þín og framlag skipta
máli.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Frestaðu því ekki til morguns sem
þú getur klárað í dag. Gæfuhjólið snýst þér
í hag á næstunni.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Svo virðist sem þú hafir ekki komið
öllum þínum persónulegu málum í höfn. Þú
ert eins og vængbrotinn fugl þegar makinn
er ekki nálægur, en það stendur ekki lengi.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Gerðu eitthvað sem er óvenju-
legt og ólíkt því sem þú hefur áður tekið
þér fyrir hendur. Vertu opin/n og þú gætir
rekist á nýja hlið á þér.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ert eitthvað óráðin/n í fjár-
málunum. Ekki hafa áhyggjur af því sem þú
ætlar að gera eða segja, það kemur af
sjálfu sér. Ekki sýna á þér veikan blett.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er mikill ábyrgðarhluti að
gefa öðrum ráð sem þeir eiga að fara eftir.
Einhver pirringur er milli heimilisfólks.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Óöryggi gerir vart við sig, en
ekki láta á neinu bera út á við. Brjóttu upp
gráma hversdagsins og settu lit á dag
þinna nánustu, bjóddu í kaffi eða farðu í bíl-
túr með heldra fólkið.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er tímabært að þú ráðist í til-
tekt og viðgerðir heima. Þér verður svara-
fátt í kvöld.
en lengst hjá Ríkisútvarpinu, en þar
hefur rödd mín hljómað í rúma þrjá
áratugi nánast á hverjum morgni og
gerir enn.
Þrátt fyrir ys og þys úti um grund-
ir og gróanda voru börnin og fjöl-
skyldan mitt meginviðfangsefni og
áhugamál. Ég tók þau að sjálfsögðu
með mér á skíði en þau fengu reynd-
ar fremur útrás í annarri fótamennt.
Börnin spiluðu fótbolta og dæturnar
ætluðu aldrei að hætta boltasparki
og sú yngsta er enn að. Við tók er-
ilsamur tími að fylgja þeim eftir á
æfingar, í leiki og á fótboltamót. Þeir
eru orðnir ansi margir leikvellirnir
skammt frá þar sem fjallaskáldið
Stefán G. Stefánsson hafði sest að
allnokkru áður.“
Líkamsrækt og andleg rækt
Eftir fjögurra ára nám hélt Hall-
dóra heim á leið og stofnaði fjöl-
skyldu. „Tækifærum til þess að skíða
fækkaði mjög, vinnumarkaðurinn
kallaði til mín og næstu áratugi var
ég á kafi í líkamsmennt og heilsu-
rækt af ýmsum toga. Ég kenndi í
grunnskóla, á heilsuræktarstöðvum
og hingað og þangað þar sem ég gat
mögulega kallað fram hreyfingar!
Ég staldraði mismunandi lengi við,
H
alldóra Nikolína
Björnsdóttir er fædd
12. apríl 1961 í
Reykjavík og ólst upp
í Sæviðarsundinu í
„Lengjunni“ svokallaðri. „Ung að
aldri var ég fótafim og haldin mikilli
hreyfiþörf. Helgi Hóseasson, hinn
kunni borgari, hafði a.m.k. orð á
þessu, þegar hann var að vinna við
húsgrunn foreldra minna,“ segir
Halldóra. „Ég var snemma send á
júdóæfingar og síðar í fimleika en
varð fljótlega gagntekin af því að
renna mér á skíðum og allar frí-
stundir fóru í að komast upp í fjall og
bruna um brekkur. Þar átti ég mínar
sælustundir og tengdist traustum
böndum krökkum, sem áttu sömu
áhugamál.
Á unglingsárum fékk ekkert ham-
ið mig. Fjöllin soguðu mig til sín, all-
ar helgar voru nýttar og sérhver laus
stund. Veturnir dugðu mér ekki því
ég réð mig í fimm sumur í Kerlingar-
fjöll, þar sem ég renndi mér í gríð og
erg og nú sem skíðakennari. Þarna
mættum við sumar eftir sumar sömu
krakkarnir og á milli okkar mynd-
uðust einstök tengsl. Við leystum
hvers manns vanda og gengum
lengst í því, held ég, þegar við skóf-
um ösku reglulega úr brekkunum í
Heklugosinu 1980 svo hægt væri að
halda skíðakennslu gangandi. Í
Kerlingarfjöllum starfaði ég m.a.
undir stjórn Valdimars Örnólfs-
sonar, morgunleikfimifrömuðar í út-
varpinu, án nokkurra grunsemda um
það, að ég ætti síðar eftir að feta í
hans fótspor á þeim vettvangi!
Utanlandsferðir voru tíðar á þessum
mótunarárum og fór ég t.a.m. utan
til þess að skíða um hver jól í sam-
fleytt 9 ár. Lét þar með foreldrum
mínum og systur eftir jólasteikina!“
Að loknu stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands hélt Halldóra utan
til Austurríkis og gerðist skíðakenn-
ari í Neukirchen am Grossvenediger
í Ölpunum. Hún hélt þaðan til Kan-
ada þar sem sjálf Klettafjöllin voru
skammt undan, og gerðist hún nem-
andi í íþróttafræðum við Háskólann í
Edmonton, í Alberta-fylki. „Mér
tókst að prófa fjölmargar brekkur í
stórbrotinni náttúru fjallanna,
vítt og breitt um landið og einnig ut-
anlands, þar sem fjölskyldan hefur
varið tíma sínum. Mikil tengsl
mynduðust á þessum árum við
áhugasama foreldra og einstaklega
dugmikla þjálfara og starfsfólk fé-
lagsliðanna. Fjölskyldan er stærsta
gjöfin sem lífið hefur fært mér.“
Á aldamótaárinu 2000 gerðist
Halldóra starfsmaður Beinverndar,
sem beitti sér fyrir bættri beina-
heilsu landsmanna. Hún var eini
starfsmaður félagsins, en vann jafn-
hliða á Rannsóknarstofu í öldrunar-
fræðum og síðar sem íþróttakennari
við Starfsbraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti.
„Starfsemin í Beinvernd var ein-
staklega fjölþætt og yfirgripsmikil.
Ég kynnti baráttumál félagsins í rit-
uðu sem töluðu máli, innanlands sem
utan, á fundum og mannamótum, í
útvarpi og sjónvarpi, í fréttabréfum,
dagblöðum, tímaritum og stafræn-
um miðlum. Í 18 ár var ég vakin sem
sofin við að koma baráttumálum fé-
lagsins til landsmanna.“ Fyrir fram-
lag Halldóru til heilsuverndar og
lýðheilsu var hún sæmd fálka-
orðunni árið 2018.
„Til fjölda ára hef ég ræktað
mannvit mitt og visku og sótt and-
lega næringu hjá Alþjóðlegri frí-
múrarareglu karla og kvenna, Le
Droit Humain. Ég hef mikla þörf til
þess að bæta mig og styrkja ekki
síður andlega eins og ég hef alltaf
gert líkamlega. Ég reyni að skilja
við hvern dag þannig, að ég sé á ein-
hvern hátt betri en ég var deginum
áður og stefni jafnframt að enn betri
morgundegi. Markmið mín eru
skuldbinding við sjálfa mig, sem ég
vil ég standa við á hverju sem dynur.
Ég lít á undantekningar og und-
anlátssemi sem svik við mig sjálfa.
Frímúrarareglan hjálpar mér til
þess að ganga þessa leið í lífi og
starfi.“
Halldóra stundar jóga reglulega
og kennir og síðastliðin 10 ár hefur
hún hjólað til og frá vinnu í Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti, sem tek-
ur að jafnaði 35-40 mín. hvora leið.
„Ég nýt útiverunnar og finn til frels-
is að vera ekki föst inni í bíl í umferð-
inni. Þá geng ég á fjöll nánast á
Halldóra N. Björnsdóttir, íþróttafræðingur og framhaldsskólakennari – 60 ára
Í Mosfellsbænum Birgir og Halldóra ásamt dætrunum.
Morgunleikfimi í þrjá áratugi
Í Noregi Halldóra ásamt móður sinni, syni og fjölskyldu hans.
30 ára Arnar er
Borgnesingur en býr í
Reykjavík. Hann er
stúdent frá Mennta-
skólanum í Borgar-
nesi og er sölu- og
þjónusturáðgjafi hjá
Sjóvá.
Maki: Íris Hrund Ormsdóttir, f. 1993,
ferðamálafræðingur.
Sonur: Huginn Haukstein, f. 2020.
Foreldrar: Þórdís Brynja Aðalsteins-
dóttir, f. 1960, d. 2013, rak blómabúð í
Borgarnesi ásamt móður sinni, og Odd-
ur Haukstein Knútsson, f. 1961, rafvirki
og múrari. Hann er búsettur í Kópa-
vogi.
Arnar Haukstein
Oddsson
Til hamingju með daginn
Reykjavík Huginn Haukstein Arnars-
son fæddist 12. október 2020 kl.
16.44 á Landspítalanum. Hann vó
4.156 g og var 54,5 cm langur. For-
eldrar hans eru Arnar Haukstein
Oddsson og Íris Hrund Ormsdóttir.
Nýr borgari