Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 4

Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 4
Pétur Óskar Sigurðsson, eða Oscar Leone eins og hann kallar sig á tónlistarsviðinu, spilar á formlegri opnunar­ athöfn nýja þjóðarleik­ vangsins í Lúxemborg. Pétur er öllum hnútum kunnugur í Lúxemborg enda ólst hann þar upp til 10 ára aldurs. benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG Í kvöld verður nýr 15 þúsund manna þjóðarleikvangur í Lúxemborg opnaður með pompi og prakt. Aðeins boðsgestir verða við­ staddir athöfnina og má þar nefna borgarstjóra Lúxemborgar Lydie Polfer, stórhertogann og stórher­ togaynjuna af Lúxemborg og for­ sætisráðherra, auk annarra fyrir­ menna. Íslenski tónlistarmaðurinn og leikarinn Pétur Óskar Sigurðs­ son, eða Oscar Leone eins og hann kallar sig á sviðinu, mun þenja radd­ böndin, en lögin Lion og Superstar urðu að smellum í landinu í sumar. Pétur f lytur þrjú lög á hátíðinni en hann er fæddur í Lúxemborg árið 1984. Hann f lutti til Íslands ásamt fjölskyldu sinni þegar hann var 10 ára gamall. Hann var efni­ legur fótboltamaður, stefndi á atvinnumennsku og lék með liðum á Íslandi, í Lúxemborg og síðast í Boston á skólastyrk, allt til ársins 2005 þegar hann meiddist og lagði skóna á hilluna. Pétur segir að völlurinn sé sann­ kallað augnayndi. Eitthvað sem KSÍ mætti alveg skoða en eins og flestir vita er verið að skoða og hugsa út í nýjan Laugardalsvöll. „Ég hlakka til að reyna að blása smá eldmóði í fólkið sem mætir. Held að við höfum öll gott af því að snúa bökum saman eftir þetta ástand.“ Hljómsveitina sem er úti með honum skipa Jón Valur Guðmunds­ son, Hálfdán Árnason, Kristófer Nökkvi Sigurðsson, Rósa Björg Ómarsdóttir og Helgi Stefánsson. Pétur Óskar hyggst í framhaldinu dvelja erlendis næsta mánuðinn, halda tónleikaröð í Lúxemborg og fara í frí til Grikklands í tíu daga. „Bandið er orðið þétt þannig að mögulega er þetta ekkert að fara að klikka. Þetta kemur svolítið snemma til manns. Það verður gaman að athuga hvort maður getur dansað á þessu sviði. Þetta er auðvitað eins og fót­ boltaferð að vera hérna með hljóm­ sveitinni. Ég er aðeins að uppskera og ætla að leyfa mér að lifa eins og rokk­ stjarna í mánuð og njóta. Svo sjáum við til. Það er ágætis áminning því ég er alltaf með þetta „en“ í hausn­ um. Að eitthvað sé flott, en… þetta sé vel gert, en… og svo framvegis. Nú ætla ég að vera í núinu og hugsa að þetta sé æðislegt og hafa gaman.“ n Ég er aðeins að upp- skera og ætla að leyfa mér að lifa eins og rokkstjarna í mánuð. Pétur Óskar Sigurðsson Lúxemborg fær Pétur til að vígja nýjan þjóðarleikvang Stade de Luxembourg var þrjú ár í byggingu. Hann tekur 15 þúsund manns í sæti og kostaði sem nemur 12 milljörðum króna. MYNDIR/WIKIPEDIA Millimál í fernu VÍTAMÍN & STEINEFNI PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA ÁN ÁN Næring+ er á lista Sjúkratrygginga Íslands yfir niðurgreidd næringarefni fyrir þá sem eiga gilda innkaupaheimild. Spilin á borðið Leiðtogar framboðanna til Alþingis mættust í sjónvarpssal í gærkvöldi og sátu þar fyrir svörum um stefnu og ýmis höfuðmál þeirrar kosningabaráttu sem nær hámarki í dag, þegar landsmenn ganga að kjörborðinu og velja fulltrúa sína fyrir komandi kjörtímabil. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vakti nokkra kátínu með kjól sínum með lakkrískonfektmynstri. Fleiri myndir frá kosningaundirbúningnum eru á síðu 16. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK arib@frettabladid.is STJÓRNMÁL Meirihluti landsmanna er ekki mótfallinn því að mynduð verði fjölf lokka ríkisstjórn með f leiri en þremur f lokkum eftir kosningar, það eru heldur ekki margir hlynntir því. Þetta kemur fram í könnun Prósents sem gerð var fyrir Fréttablaðið. Þar kemur fram að 35,5 prósent eru hlynnt myndun slíkrar ríkisstjórnar, f leiri eru því andsnúin eða 37,1 prósent. 27,4 prósent eru hvorki hlynnt því né mótfallin. Meirihluti stuðningsfólks Sjálf­ stæðisflokksins er mjög mótfallinn myndun slíkrar ríkisstjórnar, aðeins sex prósent þess eru hlynnt því. Þá er meirihluti Framsóknarmanna einnig mótfallinn myndun slíkrar ríkisstjórnar en ekki jafn afgerandi, 42 prósent þeirra eru frekar mót­ fallin, 19 prósent mjög mótfallin og 15 prósent eru hlynnt. Meirihluti stuðningsfólks Sam­ fylkingarinnar og Pírata er hlynnt myndun fjölflokkastjórnar. Fleira stuðningsfólk Vinstri grænna er mótfallið slíkri stjórn en er því hlynnt. 36 prósent eru mótfallin á móti 31 prósenti sem er því hlynnt, 34 prósent segja hvorki né. n Meirihluti landsmanna opinn fyrir ríkisstjórn fjögurra eða fleiri flokka 36% stuðningsfólks Vinstri grænna eru mótfallin ríkisstjórn fjögurra eða fleiri flokka. ritstjorn@frettabladid.is KOSNINGAR Fréttablaðið mun halda lesendum sínum vel upplýstum í allan dag og fram á rauðanótt á vef sínum frettabladid.is. Ritstjórn færir lesendum nýjustu tölur úr öllum kjördæmum um leið og þær berast, viðbrögð spekinga, stjórn­ málaleiðtoga, nýrra þingmanna og þeirra sem sitja eftir með sárt ennið. Líka er hægt að fylgjast með á Facebook, Twitter og Insta­ gram­reikningi Fréttablaðsins fram eftir nóttu. Miðað við könnun Gallup fyrir RÚV frá í gær, fá ríkis stjórnar­ f lokkarnir þrír 50 prósenta fylgi og 35 þing menn í kosningunum. Mælist Sjálf stæðis f lokkurinn með 23,4 prósenta fylgi, Fram sókn 14,9 prósent og VG 12,6 prósent. Sam fylkingin er stærst stjórnar­ and stöðu flokka með 12,6 prósent, Við reisn með 9,2 prósenta fylgi og Píratar með 8,8 prósenta fylgi. Mið­ f lokkurinn 6,8 prósent, Flokkur fólksins með 6,4 og Sósíal istar með 5,3 prósent. n Á kosningavakt fram á rauðanótt Á ritstjórn Fréttablaðsins í gær. 2 Fréttir 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.