Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 8
Sumir fæðast gamlir,
aðrir geta haldið sér
ungum í anda.
Af hverju
krefjast lög
og reglur
þess að
ekki sé
byrjað að
telja fyrr en
búið er að
loka kjör-
stöðum?
Á námskeið
Endurmenntunar
eru allir velkomnir!
Kynntu þér málið á endurmenntun.is
Hvað langar þig að læra?
Úrval stað- og fjarnámskeiða verða á dagskrá hjá
ENDURMENNTUN í haust þar sem flestir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Stjórnandi kosningavöku
RÚV, Bogi Ágústsson, býr
sig undir allt að sólarhrings
langa, samfellda vakt um
helgina. Hann er spenntur
fyrir kosninganóttinni en
kallar fyrirkomulag atkvæða-
talningarinnar rugl.
KOSNINGAR Heil 44 ár eru liðin
síðan Bogi Ágústsson hóf störf á
skjáum landsmanna. Árið 1977
stimplaði hann sig inn sem frétta-
maður í erlendum fréttum. Fyrsta
þátttaka hans í kosningasjónvarp-
inu var 1978. Hann varð leiðandi
andlit á kosningavöku eftir að hann
varð fréttastjóri árið 1988. Síðan
hefur hann meira og minna tekið
þátt í öllum kosningasjónvörpum
RÚV. Í seinni tíð með Ólaf Harðar-
son stjórnmálafræðiprófessor sér
þétt við hlið.
„Við getum sagt að þróun graf-
ískrar framsetningar í kosninga-
sjónvarpi sé helsta byltingin frá
fyrri tímum. Svo hefur orðið sú
mikla breyting að kosningasjón-
varpið var lengi framan af ekki síður
skemmtiþáttur en kosningavaka.
Við vorum með hljómsveitir inni í
stúdíói og aðra listamenn sem fylltu
upp milli þess sem tölur bárust og
mikið skemmtiefni tilbúið á mynd-
böndum. Núna er þetta aftur á móti
mestmegnis pólitík,“ segir Bogi sem
man tímana tvenna.
Atkvæðatalningin algjört rugl
Honum er þó það sem hefur ekki
breyst ofar í huga.
„Illu heilli er það talningin.
Það hefur orðið gríðarleg þróun á
f lestum öðrum sviðum, allt gerist
hraðar, en talningin er jafn sein og
illa skipulögð og hún hefur alltaf
verið. Ég tek fram að ég er ekki að
kenna starfsfólki kjörstjórna um,
heldur hefur löggjafinn ekki viljað
gera neinar breytingar. Af hverju í
fjáranum erum við með kjörstaði
opna til klukkan 10 á kvöldin á
frídegi og af hverju krefjast lög og
reglur þess að ekki sé byrjað að telja
fyrr en búið er að loka kjörstöðum?
Og af hverju má bara telja á einum
stað innan kjördæmis?“ segir Bogi.
Hann bendir á að Færeyingar,
nágrannar okkar, telji á mörgum
stöðum og sendi svo tölurnar
áfram. Augljóst sé að talning
atkvæða gæti gengið miklu hraðar
fyrir sig. Oft séu kosningar að
vetri, eða í veðri sem hamli för
atk væðanna milli landshluta.
Eyjar gætu lokast. „Hvaða rugl er
að ekki megi bara telja atkvæðin
þar og senda svo tölurnar til yfir-
kjörstjórnar í kjördæminu?“ spyr
Bogi Ágústsson.
Bogi Ágústsson gagnrýnir atkvæðatalninguna
Frá vinstri:
Guðjón Einars-
son, Sigrún
Stefánsdóttir,
Bogi og Ágústa
Kristinsdóttir
heitin, á fyrstu
kosningavöku
Boga á áttunda
áratug síðustu
aldar.
MYND/AÐSEND
Kunnuglegt þríeyki, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir í miðið. MYND/AÐSEND
Ólafur Harðarson og Bogi, stundum kallaðir Knold og Tot.
vera „grand old man“ eða „grumpy
old man“, grautfúlt gamalmenni. Ég
vil síður falla í seinni hópinn.“
Um Ólaf Harðarson prófessor sem
stendur venju samkvæmt kosninga-
vaktina líka, segir Bogi að samband
þeirra tveggja sé gott, þeir eigi mjög
gott með að vinna saman þrátt
fyrir að annar styðji FH en hinn
KR. Stundum séu þeir tveir kallaðir
Knold og Tot eða gömlu karlarnir
í Prúðuleikurunum en það sé allt í
lagi.
„Það er nefnilega frekar stutt
síðan ég fór að átta mig á að það
er ekki verið að tala um mig þegar
orðið æskudýrkun ber á góma,“
segir Bogi sem verður sjötugur á
næsta ári. n
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
Vill vinna sem lengst hjá RÚV
Mikil dramatík getur skapast
á kosninganótt, ekki síst þegar
líf ríkisstjórna hangir á örfáum
atkvæðum. Miklar vendingar verða
stundum frá fyrstu tölum og segir
Bogi að vel megi kalla komandi nótt
„nótt hinna löngu hnífa“.
Ef talning dregst úr hömlu gæti
hann þurft að vera á skjáum lands-
manna til klukkan níu á sunnudags-
morgun. Það myndi þýða 24 stunda
vinnutörn, því stífar æfingar verða
hjá RÚV í dag og hefjast snemma.
Spurður hvernig slík maraþon-
vinna, þar sem allt liggur undir að
halda andlitinu í beinni útsendingu,
rífi ekki í heilsu manns á hans aldri,
svarar Bogi að hann sé í þokkalega
góðu formi og vilji vinna hjá RÚV
eins lengi og RÚV vill hafa hann,
það er að segja ef áhugi hans sjálfs
og heilsa leyfi.
„Það er nú þetta með aldurinn og
hve afstæður hann er, að ef heilsan
er góð getur fólk haldið sér ungu
andlega. Sumir fæðast gamlir,
aðrir geta haldið sér ungum í anda.
Maður á mínum aldri á val um að
6 Fréttir 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ