Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 12
Framkvæmdastjóri SA segir
umræðu um skatta snúið á
haus. Oddviti Sósíalista segir
siðlaust að skattleggja fólk
sem eigi ekki fyrir mat.
arib@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Halldór Benjamín
Þorbergsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segir að í
umræðu um skattkerfið í aðdrag-
anda kosninga sé öllu snúið á
haus. „Vandséð er hvað vakir fyrir
þeim flokkum sem tala með þeim
hætti að skattkerfið sé sérstaklega
ósanngjarnt hér á landi, annað en
einbeittur vilji til að rugla fólk í
ríminu,“ segir Halldór.
Hér á landi séu greidd ein hæstu
lágmarks- og meðallaun í heimi.
Báðar stærðir séu leiðréttar fyrir
kaupmætti og taki þannig tillit
til hás framfærslukostnaðar hér á
landi.
„Lágtekjufólk býr ekki við háa
skattbyrði, enda á það ekki að gera
það. Þeir sem hærra standa í tekju-
stiganum skila sannarlega sínu til
samfélagsins og búa við mun hærri
skattbyrði, hvort sem talið er í pró-
sentum eða krónum. Það blasir við
að tekjuskattskerfið á Íslandi er
öflugt við að jafna kjör í landinu,“
segir Halldór.
Hann segir mikilvægt að skoða
tekjuskatta í samhengi við heildar-
tekjur og vaxta- og barnabætur auk
annarra tekjutilfærslna ríkisins.
„Tekjuskattsgreiðslur, að frádregn-
um vaxta- og barnabótum, leiða
í ljós mikil jöfnunaráhrif. Tekju-
hæstu 10 prósent framteljenda
greiða um 50 prósent af öllum tekju-
skatti til samneyslu og fjárfestinga
ríkisins. Næstu 10 prósent greiða
22 prósent alls tekjuskatts. Lægstu
fimm tekjutíundirnar, sem eru
framteljendur með heildartekjur, að
undanskildum fjármagnstekjum,
undir 490 þúsund krónum á mán-
uði, greiða 1 prósent af öllum tekju-
skatti. Tekjujöfnunaráhrif skatt-
kerfisins eru þannig miklu meiri
en ég held að fólk geri sér almennt
grein fyrir,“ segir hann.
Bæði Sósíalistaf lokkurinn og
Flokkur fólksins vilja gera lágmarks-
laun skattfrjáls. „Lágmarkslaun
duga ekki fyrir framfærslu. Eftir-
laun og örorkulaun enn síður,“ segir
Gunnar Smári Egilsson, oddviti
Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavík-
urkjördæmi norður. „Fyrir þrjátíu
árum var enginn skattur greiddur
af lágmarkslaunum, eftirlaunum
eða örorkulífeyri. Það er siðlaust að
fjármálaráðherra komi og taki fé af
fólki sem á ekki fyrir mat. Það vissi
fólk fyrir þrjátíu árum.“
Halldór segir það alveg rétt að
lægstu laun hafi verið skattfrjáls
þá. „En munurinn er sá að þá voru
lágmarkslaun töluvert lægri en nú.
Á árinu 1992 voru lágmarkslaun 133
þúsund krónur á mánuði á verðlagi
dagsins í dag, en eru nú 351 þúsund
krónur á mánuði, eða næstum þre-
falt hærri. Bætt lífskjör hafa leitt til
þess að á síðustu þremur áratugum
hefur framteljendum, sem greiða
tekjuskatt, fjölgað hlutfallslega. Það
er heilbrigðismerki að fleiri launa-
menn geti tekið þátt í fjármögnun
samneyslunnar,“ segir Halldór.
Gunnar Smári segir að á umliðn-
um árum hafi stjórnvöld, með 25
ára setu ráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins í fjármálaráðuneytinu, lækkað
skatta á þá ríku, en lagt þá á fólk sem
hefur ekki efni á mat út mánuðinn.
„Þetta er alvarlegt siðrof í samfélag-
inu sem almenningur verður að rísa
upp gegn.“
Halldór segir mikilvægt að allar
tillögur um skattkerfisbreytingar,
bæði stórar sem smáar, séu settar í
samhengi. „Tekjur ríkissjóðs myndu
skerðast um 162 milljarða króna ef
lágmarkslaun yrðu gerð skattfrjáls.
Það svarar til um 80 prósenta af
öllum tekjuskattsgreiðslum ein-
staklinga til ríkisins. Slík skatta-
lækkun er óraunhæf nema stefnt
sé að samsvarandi niðurskurði
samneyslunnar, eða að byrðinni
verði velt yfir á millitekjuhópa, sem
raunar enginn hefur lagt til,“ segir
Halldór. n
Umræðu um skatta snúið
á haus fyrir kosningarnar
Halldór
Benjamín
Þorbergsson,
framkvæmda-
stjóri SA
Gunnar Smári
Egilsson, odd-
viti Sósíalista-
flokksins
Gunnar Smári
segir siðlaust
að skattleggja
þá sem eigi ekki
fyrir mat.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
MAREL
VINNSLUTÆKNIR
Fisktækniskólinn í samstarfi
við Marel býður uppá nám
í hátæknivæddri
matvælaframleiðslu.
FISKTÆKNISKÓLINN
ICELANDIC COLLAGE OF FISHERIES
Sviðslistasjóður
Styrkir til
atvinnusviðslistahópa
Sviðslistaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
Sviðslistasjóði fyrir leikárið 2022/23.
Umsóknarfrestur rennur út 4. október 2021 kl. 15:00.*
Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is.
Í umsókn er beðið um lýsingu á verki, verk- og tímaáætlun,
fjárhagsáætlun og upplýsingar um þátttakendur og
umsóknaraðila.
Vakin er athygli á nýju formi fyrir fjárhagsáætlun sem skal
fylgja umsókn. Fylgigögnum skal skila með rafrænni umsókn
til Rannís.
Umsókn atvinnusviðslistahópa getur einnig gilt sem umsókn
í Launasjóð listamanna.
Sviðslistasjóður starfar samkvæmt lögum um sviðslistir
2019 nr.165. Svör til umsækjenda berast í janúar 2022.
Nánari upplýsingar veita Óskar Eggert Óskarsson
og Ragnhildur Zoëga á skrifstofu Rannís,
svidslistasjodur@rannis.is.
*Ath. Sjóðir hjá Rannís loka kl. 15:00.
Umsóknarfrestur 4. október kl. 15.00
Kjarval
Frumsýning
í dag
borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða
10 Fréttir 25. september 2021 FRÉTTABLAÐIÐ