Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 14

Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 14
Parket Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14. Komdu við og ræddu við sérfræðinga Parka og fáðu faglega ráðgjöf Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570 Mikil spenna er fyrir þýsku þingkosningarnar á morgun. Nýr kanslari mun taka við af Angelu Merkel, eftir sextán ára kanslaratíð hennar. thorvardur@frettabladid.is ÞÝSKALAND Á sunnudag fara fram þingkosningar í Þýskalandi. Ljóst er að sama hver úrslitin verða eru nýir tímar fram undan í þýskum stjórn- málum þar sem Angela Merkel, sitj- andi kanslari, gefur ekki kost á sér. Kosningarnar marka því endalok sextán ára kanslaratíðar hennar, þar sem Merkel hefur unnið sér sess sem einn merkasti stjórnmálamaður síðari tíma. Samkvæmt skoðanakönnunum er ómögulegt að segja hver úrslit kosninganna verða og útlit er fyrir að flókið verði að mynda ríkisstjórn. Núverandi stjórn mynda Kristilegir demókratar og Jafnaðarmenn. Frambjóðandi Kristilegra demó- krata, f lokks Merkel, er Armin Laschet. Hann tók við formennsku f lokksins í janúar og þótti sigur- stranglegur framan af. Nú er öldin önnur og vinsældir hans hafa minnkað mjög á undanförnum mánuði. Hann sást hlæja á mynd- skeiði sem tekið var upp er hann heimsótti flóðasvæðin í Þýskalandi fyrr í sumar eftir mikil hamfaraflóð og vakti þetta litla kátínu kjósenda. Hann er í öðru sæti í skoðanakönn- unum. Þrír þaulsetnustu kanslarar Þýskalands komu úr röðum kristi- legra demókrata og segir stjórn- málaskýrandinn Carsten Nickel að ef Laschet tapi kosningunum muni það hafa langvarandi áhrif á flokk- inn. Frambjóðandi Græningja er Annalena Baerbock og var hún um tíma vonarstjarna kosninganna og helsti keppinautur Laschet. Gengi hennar í skoðanakönnunum hefur dalað er nær dregur kosningum eftir að hún var sökuð um ritstuld við skrif bókar sem kom út fyrr á árinu. Baerbock neitar ásökunum og er nú í þriðja sæti í skoðanakönnunum og gæti haft mikið að segja í stjórnar- myndunarviðræðum. Óvæntustu tíðindi kosninga- baráttunnar er mikill meðbyr Olaf Scholz, núverandi f jármálaráð- herra og frambjóðanda Jafnaðar- mannaf lokksins. Vinsældir hans tóku mjög að aukast eftir f lóðin í júlí og er hann efstur í skoðana- könnunum. Hneykslismál hafa komið upp í ráðherratíð Scholz en þau hafa þó ekki haft mikil áhrif á fylgi hans. Scholz segir sig vera reynslumesta frambjóðandann í kosningunum, þökk sé ráðherratíð hans og setu í embætti varakanslara. Christian Lindner er formaður Frjálsa lýðræðisf lokksins sem oft hefur gegnt stóru hlutverki við stjórnarmyndunarviðræður. Sam- kvæmt skoðanakönnunum mun þurfa þrjá f lokka hið minnsta til að mynda starfhæfa stjórn og gæti það sett Lindner og f lokk hans í sterka stöðu. Flokkur hans mælist í fjórða sæti í skoðanakönnunum. Lindner hefur lýst því yfir að hann sé reiðubúinn að starfa með Kristi- legum demókrötum, Sósíalistum eða jafnvel Græningjum. Alice Weidel er frambjóðandi hægriöfgaflokksins Valkosts fyrir Þýskaland. Andstaða við innflytj- endur er hornsteinn stefnu hans, en flokkurinn á litla möguleika á að komast í stjórn. Augu margra verða þó á árangri f lokksins í kosningun- um, en hann náði fyrst fólki á þing í síðustu kosningum árið 2017. ■ Sögulegar kosningar í Þýskalandi Angela Merkel Sitjandi kanslari Armin Laschet Kristilegir demókratar Annalena Baerbock Græningjar Olaf Scholz Jafnaðarmannaflokkurinn Christian Lindner Frjálsi lýðræðisflokkurinn Alice Weidel Valkostur fyrir Þýskaland Á kjörskrá fyrir þýsku kosningarnar eru um 60 milljónir manns. Kjörsókn í síðustu þingkosningum árið 2017 var 76,2 prósent. hjorvaro@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Umhverfisverndar- sinnar höfðu í frammi liggjandi mótmæli fyrir utan Gazhane-safnið í Istanbúl í gær. Mótmælin eru ein af rúmlega 1.400 sem haldin eru víðs vegar um heiminn, samhliða Alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Tayyip Erdogan, forseti Tyrk- lands, tilkynnti það fyrr í þessari viku, að til standi að leggja Parísar- samkomulagið til atkvæðagreiðslu í þingi landsins fyrir loftslagsráð- stefnuna sem haldin verður í Glas- gow í Skotlandi síðar í mánuðinum. Tyrkland er eitt sex ríkja heimsins sem fullgiltu ekki loftslagssamn- inginn sem undirritaður var í París, en auk Tyrklands eru Erítrea, Íran, Írak, Líbía og Jemen ekki aðilar að samningnum. „Fullgilding samningsins er upp- hafið en Tyrkir eiga mikla vinnu fyrir höndum. Uppfæra þarf mark- mið um losun gróðurhúsaloft- tegunda í samræmi við 1,5 gráðu markmiðið. Þá þarf að gera stefnu- mótandi áætlanir í umhverfis- málum og Tyrkland ætti að setja sér markmið um að verða kolefnis- hlutlaust,“ segir Emine Ozkan, liðs- maður græna flokksins í Tyrklandi. Mótmælin eru haldin að undir- lagi Gretu Thunberg en hún ávarp- aði mótmælendur í Berlín í gær. Mesta mótmælaaldan er á þýskri grundu þar sem efnt verður til mót- mæla í 420 borgum á sunnudaginn, en þann dag verður gengið til þing- kosninga í Þýskalandi. „Við getum enn snúið við blaðinu og ég finn að fólk er reiðubúið til að taka skref í umhverfismálum,“ sagði Greta. ■ Minnt á nauðsyn þess að stíga stór skref í umhverfismálum  Greta Thunberg ávarpar hér hópinn í Berínarborg. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Kínverjar hafa lagt blátt bann við notkun rafmynta. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA hjorvaro@frettabladid.is VIÐSKIPTI Seðlabanki Kína tilkynnti í gær að viðskipti með dulritunar- gjaldmiðla væru óheimil í landinu. Kína er einn stærsti markaður dul- ritunargjaldmiðla í heiminum. Verð á bitcoin lækkaði um rúmlega 2.000 bandaríska dali í gær. Bannað hefur verið að eiga við- skipti með rafmyntir í Kína síðan 2019, en það hefur verið gert þrátt fyrir bannið, í gegnum erlendar kauphallir. Í september árið 2019 var 75% af rafmyntum heimsins í umferð í Kína en í apríl fyrr á þessu ári var það hlutfall komið niður í 46%. ■ Bannað að nota rafmyntir í Kína hjorvaro@frettabladid.is NÁTTÚRUHAMFARIR Sprengivirkni í eldgosinu á eyjunni La Palma hefur aukist síðustu daga. Íbúar á  La Palma fundu fyrir höggbylgju frá gígnum í eldgosinu í gær en þá opn- aðist einnig nýr gígur í eldstöðinni. Á þeirri viku sem gosið hefur staðið yfir hafa rúmlega 400 íbúðir eyðilagst vegna gossins og um það bil 200 hektarar brunnið. Tæplega sjö þúsund íbúar eyjunnar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldgossins, þar af um 1.000 í gær. ■ Aukinn kraftur í gosinu á La Palma 12 Fréttir 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.