Fréttablaðið - 25.09.2021, Qupperneq 15
Áminning um
framtalsskil lögaðila
Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa
ekki staðið skil á skattframtali 2021
ásamt ársreikningi, eru hvattir til að
annast skil hið allra fyrsta.
Skráður lögaðili skal ætíð skila
skattframtali vegna undangengins
reikningsárs, jafnvel þó að engin
eiginleg starfsemi eða rekstur hafi
átt sér stað á reikningsárinu.
Félög eiga jafnframt að skila
ársreikningi til ársreikningaskrár.
Skattframtali og ársreikningi ber
að skila rafrænt á skattur.is
Álagning opinberra gjalda á lögaðila
árið 2021 vegna rekstrarársins 2020
fer fram 29. október nk.
Lokaskiladagur
skattframtals lögaðila
er 1. október
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
birnadrofn@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL ADHD-greiningar
fullorðinna munu nú heyra undir
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
(HH), áður fóru þær fram hjá ADHD-
teymi Landspítalans. Heilsugæslan
mun annast þjónustuna í samvinnu
við heilsugæslu og geðheilsuteymi í
heilbrigðisumdæmum um allt land.
Óskar Reykdalsson, forstjóri HH,
segir breytingarnar ekki krefjast
mikils undirbúnings, strax hafi
verið auglýst eftir starfsfólki.
Heilsugæslunni hafi verið veittar
100 milljónir á ársgrundvelli til að
sinna greiningunum, um framför
sé að ræða.
„Við þurfum auðvitað að fá geð-
lækni og annað starfsfólk inn, ef það
gengur vel þá ættu þessi mál að fara
í miklu betra stand.“
Biðtími hefur verið allt að þrjú og
hálft ár hjá ADHD-teyminu og rúm-
lega 650 manns eru á biðlista.
Hjámar Vilhjálmsson, formaður
ADHD-samtakanna segist taka
breytingunum fagnandi.
„Ef rétt reynist og með þessu
fylgir viðeigandi fjármagn, þá eru
þetta gleðifréttir og mun væntan-
lega stytta biðlista.“
Heilsugæslan hlaut í gær einnig
sérstakt 75 milljóna króna viðbótar-
fjármagn frá heilbrigðisráðherra til
að stytta biðtíma barna á Þroska- og
hegðunarstöð, þar fara meðal ann-
ars fram ADHD-greiningar barna.
„Geðteymi barna, sem er eftir-
fylgd með börnum sem glíma við
andlega erfiðleika, er líka ný fjárveit-
ing til heilsugæslunnar, þar fengum
við 150 milljónir,“ segir Óskar. ■
Færa greiningar á ADHD til Heilsugæslunnar
Óskar Reykdals-
son, forstjóri
Heilsugæslu
Höfuðborgar-
svæðisins
bth@frettabladid.is
FJÁRMÁLAMARKAÐUR Neytenda-
samtökin hafa miklar áhyggjur af
vaxtahækkunum. Greiðslubyrði
heimilis sem skuldar 40 milljónir
í húsnæðislán eykst um 400.000
krónur á ári fyrir hvert hækkað pró-
sentustig.
„Það er eins og bankarnir taki sér
sjálfsvald í hækkun vaxta,“ segir
Breki Karlsson hjá Neytendasam-
tökunum, en nokkur umræða hefur
orðið um síðustu vaxtahækkanir í
kosningabaráttunni.
Samtökin telja að f lestöll lán á
Íslandi sem beri breytilega vexti séu
ólögleg. Þau undirbúa því málsókn
gegn bönkunum. Stofnað hefur
verið vefsvæðið vaxtamálid.is þar
sem 1.200 lántakar hafa þegar skráð
sig. Um 5.000 lán liggja þar undir, að
sögn Breka.
„Við teljum að bankarnir hafi
ofrukkað neytendur, meira að segja
umfram eigin skilmála svo jafn-
vel nemur tugum milljarða,“ segir
Breki.
Máli Neytendasamtakanna til
stuðnings bendir Breki á hæsta-
réttardóm sem féll árið 2017, þar
sem Íslandsbanka var gert að end-
urgreiða um 3.000 lántökum um
milljarð króna. Einnig nefnir hann
úrskurð Evrópudómstólsins í fyrra
gegn tveimur spænskum bönkum.
Innan nokkurra vikna munu
samtökin velja þrjú mál sem talin
verða lýsandi fyrir hagsmuni flestra.
Farið verður í fordæmisgefandi lög-
sókn, eina gegn hverjum banka. ■
Mikill áhugi fyrir
hópmálsókn gegn
bönkunum
tsh@frettabladid.is
ORKUMÁL Bæjarstjórn Grundar-
fjarðar hefur farið í samstarf til að
skoða hvort mögulegt sé að hita-
veituvæða Grundarfjarðarbæ með
fjarvarmaveitu.
Grundarfjörður er á svoköll-
uðu köldu svæði, þar sem ekki er
aðgangur að jarðhita. Þar er því
kynt með með raforku og olíu.
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri
Grundarfjarðar, segir því skipta
miklu fyrir bæjarbúa að finna aðra
leið til upphitunar.
„Það er verið að leita fjölbreyttra
leiða til að búa til orku til þess að
hita upp vatn sem húsin eru kynt
með,“ segir Björg.
Verkefnið hefst á forhönnun og
fýsileikakönnun á hitaveituvæð-
ingu bæjarins með varmadælum
þar sem varminn yrði sóttur bæði
úr umhverfinu og í glatvarma frá
fyrirtækjum í Grundarfirði. Er
það nýjung á Íslandi, en vel þekkt
í hringrásarhagkerfum erlendis. ■
Grundarfjörður
fái hitaveitu
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri.
MYND/GUNNHILDUR HANSDÓTTIR
Breki Karls-
son, formaður
Neytendasam-
takanna
LAUGARDAGUR 25. september 2021 Frettir 13FRÉTTABLAÐIÐ