Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 20

Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 20
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun n Gunnar Lýðræðis- andinn er fólginn í því að virða skoð- anir ann- arra enda þótt maður kunni að vera mót- fallinn þeim. Komi fólk eða flokkar sér of þægilega fyrir í kjörlendi sínu er það samfélaginu sjaldnast til góðs. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is Hvað eiga pólitíkusar og pandabirnir sameiginlegt? Pandabirnir eru á barmi þess að teljast í útrýmingarhættu. Náttúruverndar- samtök hafa róið að því öllum árum að búa pöndum hið fullkomna kjörlendi. Ný rannsókn sýnir hins vegar að velmegun pöndunnar gæti orðið hennar bani. Pöndur sem hafa komið sér of þægilega fyrir á búsvæði halda ekki á nýjar slóðir í leit að mökum og mat. Í dag er kjördagur. Kjósendur standa frammi fyrir hlaðborði loforða. Matvöru- verslun ein fékk forystufólk f lokkanna til að fanga stefnu sína á bókstaflegu veislu- borði. Hver f lokkur deildi með kaup- endum uppáhaldsuppskriftinni og má nú kjósa á milli þeirra á netinu. Framsókn býður upp á „framsækna lambaskanka“, Píratar „banana-lýðveldis-splitt“ og Við- reisn „evrópsk brauðréttindi“ svo fátt sé talið. Rannsókn á pandabjörnum sýnir að hæfilega mikið af óþægindum og erfið- leikum hjálpar til við að varðveita teg- undina. Sé áreiti til staðar þurfa pöndur að hafa fyrir tilveruréttinum og horfa í nýjar áttir. Slíkt leiðir til aukinnar erfða- fræðilegrar fjölbreytni, sem er lykillinn að því að þær lifi af. Sömu lögmál ríkja í pólitík. Komi fólk eða f lokkar sér of þægilega fyrir í kjör- lendi sínu er það samfélaginu sjaldnast til góðs. Fjölmiðlar eru stjórnmálafólki oft óþægur ljár í þúfu. Þeir eru hins vegar óþægindin sem tryggja að pólitíkusar séu á tánum. Ef fjölmiðlar fengju pláss á hinu bókstaflega pólitíska veisluborði væru þeir sítrónukaka, súrt og sætt, dæmi um fullkomið samspil áreitis og ánægju. Eftir- farandi er uppskrift að sítrónuköku súra pistlahöfundarins, tilvalin með kosninga- kaffinu. Pólitíkusar og pandabirnir Sítrónukaka súra pistlahöfundarins 225 g smjör 225 g strásykur, fínn 275 g sjálflyftandi hveiti 1 tsk. lyftiduft 4 egg 4 msk. af mjólk Rifinn börkur af tveimur sítrónum Í glassúrinn 175 g strásykur Safi úr tveimur sítrónum 1. Hitið ofninn í 160°C. Smyrjið 20 sm hring- laga, djúpt kökuform að innan með smjöri og setjið smjörpappír í botninn. 2. Hrærið hráefninu í kökuna saman í hræri- vél í tvær mínútur. Setjið blönduna í formið og bakið í ofni í 1 klst. eða 1 klst. og 10 mín. 3. Hrærið saman hráefninu í glassúrinn í skál. 4. Þegar kakan er tilbúin, takið hana úr ofn- inum og hellið glassúrnum yfir. 5. Leyfið kökunni að standa í fimm mínútur og takið hana svo úr forminu. Gleðilegan kjördag. Þín borg Í fasteignaviðskiptum fylgjum við þér alla leið 519 5500 · FASTBORG.IS Kjördagur er runninn upp. Einn sá mikilvægasti á seinni tímum, að sagt er. En samt sem áður er sannreyndin sú að allar kosningar í landinu eru okkur þær mikilvægustu. Kosningar eru nefni- lega spegill þjóðarinnar. Þær vega og meta stefnur og strauma í samfélaginu, sýna okkur í raun og sann hvert við viljum halda og hvernig við viljum komast þangað. Kosningar eru líka hátíð lýðræðisins, fögnuður þess að búa í samfélagi sem trúir á mannréttindi og frelsi – og vill umfram allt að fólkið ráði. Og þótt lýðræðið geti á stundum verið ófullkomið, að ekki sé talað um óráðið og misvísandi, fyrir nú utan hvað það er oft og tíðum málamiðlanalega mar- flatt, er það líklega sanngjarnasta leiðin til að leggja línurnar í regluverki þjóðarinnar. En það er á svona dögum, kjördögum, sem mikilvægt er að rýna í inntak lýðræðis- ins og hugsa um raunverulega merkingu þessa orðs. Kemur þar tvennt til. Fólkið kýs og f lokkarnir finna um leið hvort þeir eiga erindi í þjóðmálaumræðunni, en svo er hitt – og það er umhugsunarefni: Fyrst við viljum búa í lýðræðissamfélagi þar sem margvíslegar skoðanir eiga að fá að njóta sín, verðum við að gera ráð fyrir þeim öllum, altso, ólíkum skoðunum. Lýðræðisandinn er fólginn í því að virða skoðanir annarra enda þótt maður kunni að vera mótfallinn þeim. Lýðræðisástin er öðru fremur þeirrar gerðar að elska skoð- anaskipti – og vilja framar öllu að kröftugt og málefnalegt samtal fari fram í samfélag- inu. Þar er lykil lýðræðisins að finna, þann hinn sama og opnar samfélagið og lýkur upp öllum gáttum þess. Lýðræðið á nefni- lega að lofta út – og það á að sýna okkur samfélagið eins og það er í raun og veru á breiddina, einmitt hvernig fjölbreytni þess er alltaf mikilvægari en einsleitnin. Þess vegna er mikilvægt að á löggjafar- samkundu þjóðarinnar veljist fólk af öllu tagi á þessum kjördegi sem nú er runninn upp, fólk á öllum aldri, af öllum kynjum, af hvaða menntun sem er, búsett hvarvetna á landinu – og með hvaða skoðanir sem er, skrýtnar líka og óvenjulegar, innan um hefðbundnar skoðanir og vanalegar. Og um leið og við virðum skoðanir hvers annars eigum við líka að virða það fólk sem er reiðubúið að leggja þinghaldið á sig. Það á það skilið. n Kjördagur SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 25. september 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.