Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 22
Það verður háspenna í
lokaumferð Íslandsmóts karla
í dag, þar sem kemur í ljós
hver verður Íslandsmeistari
og hvaða lið fylgir Fylki niður
í næstefstu deild. Víkingar eru
með pálmann í höndunum
en sigur Víkinga færir liðinu
fyrsta Íslandsmeistaratitil
félagsins í þrjátíu ár.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Eins og síðast þegar Vík-
ingur og Breiðablik urðu Íslands-
meistarar í karlaflokki, fer það eftir
úrslitum á lokadegi mótsins hvort
Íslandsmeistaratitillinn endar í
Víkinni eða í Smáranum. Breiðablik
þarf að treysta á hagstæð úrslit úr
leik Víkings og Leiknis í dag, ásamt
því að klára eigið verkefni gegn
nágrönnum sínum í HK, til þess að
eygja möguleika á öðrum Íslands-
meistaratitli karlaliðs félagsins, en
leiðin að titlinum er einfaldari fyrir
lærisveina Arnars Gunnlaugssonar
í Víkingi.
Sigur á Leikni og þá kemur ekkert
í veg fyrir að Víkingur verði Íslands-
meistari í sjötta sinn og styrki stöðu
sína sem sjötta sigursælasta lið
Íslandsmóts karla frá upphafi, með
forskot á Keflvíkinga.
Víkingar stóðust stærðarinnar
próf þegar þeir unnu 2-1 sigur á KR
á dögunum þar sem dramatíkin var
í fyrirrúmi á lokamínútum leiksins.
Þeir fá nú að glíma við Leiknislið
sem hefur aðeins fengið tvö stig á
útivelli í sumar og aðeins eitt stig í
síðustu fimm umferðum, en þurfa
að gæta þess að vanmeta ekki and-
stæðinga sína eins og fyrir þremur
mánuðum þegar Leiknir vann leik
liðanna í Breiðholti. Landsliðsmið-
vörðurinn Kári Árnason er fjar-
verandi í liði Víkings vegna leik-
banns, en Víkingar þekkja það vel
að fara inn í slíkan leik með Kára
fjarverandi, eftir að hann meiddist
í aðdraganda bikarúrslitanna 2019.
Á sama tíma mætast nágrannalið-
in Breiðablik og HK þar sem bæði lið
eru að leika úrslitaleiki. Á sama tíma
og Breiðablik berst til endaloka um
Íslandsmeistaratitilinn geta HK-ing-
ar tryggt veru sína í deildinni með
sigri á erkifjendum sínum. Annars
þarf HK að treysta á hagstæð úrslit
úr leik Keflavíkur og ÍA.
Breiðablik hefur áður verið í þess-
ari stöðu, að þurfa að treysta á úrslit
úr öðrum leik fyrir lokaumferðina
og þar enduðu þeir með Íslands-
meistaratitilinn í höndunum fyrir
ellefu árum síðan. n
ÍA, HK og Keflavík geta
öll fallið í dag. Til þess
að Keflavíkingar falli
þurfa þeir að tapa með
tveimur mörkum eða
meira og HK að fá stig.
KR og KA eru í harðri
baráttu um þriðja
sætið sem veitir sæti
í Evrópu ef Víkingar
verða bikarmeistarar.
Nikolaj Hansen, fram-
herji Víkinga, er með
fimm marka forskot í
baráttunni um marka-
konungstitilinn.
Það munar sextán
mörkum á marka-
tölu Blika, sem eru
með bestu markatölu
deildarinnar, og Vík-
ings.
Víkingar hafa unnið
sjö leiki í röð í öllum
keppnum. Fimm
þeirra í deild og tvo í
bikarkeppninni.
Það eru tæplega ellefu
þúsund dagar liðnir frá
því að Víkingur varð
síðast Íslandsmeistari á
haustdögum árið 1991
með sigri á Víði í Garði.
Ef Almarr Ormarsson
kemur við sögu í dag
ýtir hann Heimi Guð-
jónssyni út af listanum
yfir þá tíu leikjahæstu í
efstu deild karla.
Ef Víkingur og Breiða-
blik enda jöfn að
stigum verður Breiða-
blik Íslandsmeistari á
markatölu líkt og árið
2010.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI KSÍ hefur hugað að því til
hvaða ráðstafana verði gripið ef sú
staða kemur upp að þegar skammt
er til leiksloka sé enn óvíst hvort
Íslandsmeistarabikarinn fari á loft
í Víkinni eða í Kópavogi. Þetta stað-
festi Birkir Sveinsson, yfirmaður
mótsstjórnar KSÍ, í samtali við
Fréttablaðið.
Fjarlægðin á milli leikvallanna
gerir það að verkum að ferðalagið
ætti að verða fremur stutt ef svipt-
ingar verða á síðustu stundu og
þannig ekki verða þörf á því aftur
að þyrla komi með Íslandsmeistara-
bikarinn líkt og á KR-vellinum árið
2002.
Birkir staðfesti í samtali við
Fréttablaðið að búið væri að ákveða
staðsetningu fyrir bikarinn og að
bíll yrði til staðar til að færa bikar-
inn á áfangastað. Um er að ræða
tæplega tíu mínútna keyrslu á milli
valla. n
KSÍ undir það búið ef sviptingar eiga
sér stað á lokamínútum leikjanna
Arnar og Óskar hafa unnið frábært starf með lið sín það sem af er tímabils.
Víkingar þurfa að standast eitt próf til viðbótar til þess að landa langþráðum Íslandsmeistaratitli. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ræðst á lokametrunum
KR-ingar voru
síðasta liðið til
að fá Íslands-
meistaratitil
karla afhentan
árið 2019. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ANTON
Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem
úthlutað verður árið 2022 í samræmi við ákvæði laga
nr. 57/2009.
Umsóknarfrestur rennur út 4. október 2021.
Umsóknarkerfi lokar kl. 15:00.*
Úthlutað verður úr eftirfarandi sjóðum:
launasjóður hönnuða
launasjóður myndlistarmanna
launasjóður rithöfunda
launasjóður sviðslistafólks
launasjóður tónlistarflytjenda
launasjóður tónskálda
Í umsóknum er óskað eftir upplýsingum um verk- og
tímaáætlun, listrænt gildi verkefnis og feril umsækjenda.
Þessir þættir liggja að jafnaði til grundvallar ákvörðunar um
úthlutun starfslauna.
Umsóknir eru einstaklingsumsóknir.
Í vinnuáætlun er hægt að tilgreina samstarf sérstaklega.
Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er
tekið við rafrænum fylgigögnum.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn
aðeins tekin til umfjöllunar ef áfangaskýrslu/lokaskýrslu hefur
verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr. ákvæði
4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.
Áfram verður hægt að fella starfslaun sviðslistafólks inn
í umsókn í Sviðslistasjóð.
Aðgangur að umsókn, eyðublöðum fyrir skýrslur,
matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn,
stefnu stjórnar o.fl., er að finna á vefslóðinni:
www.listamannalaun.is.
Nánari upplýsingar veita Óskar Eggert Óskarsson
og Ragnhildur Zoëga á skrifstofu Rannís,
listamannalaun@rannis.is.
*Ath. Sjóðir hjá Rannís loka kl. 15:00.
Umsóknarfrestur 4. október kl. 15.00
Listamannalaun
2022
20 Íþróttir 25. september 2021 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 25. september 2021 LAUGARDAGUR