Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 26

Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 26
Hver er ástæðan fyrir slíku ójafnrétti? Til marks um það má nefna að líf- og starfsaldur lögreglu- manna er styttri en annarra. Ástu í Kassanum Saga hinnar ögrandi listakonu, Ástu Sigurðardóttur, er túlkuð á fallegan en um leið heiðarlegan hátt í Kassa Þjóðleikhússins. Saga hennar á erindi við okkur öll enda samfélags- breytingarnar frá miðbiki síðustu aldar magnaðar. Handritshöfundur túlkar tíðarandann af næmni, en eins innri baráttu listakonunnar. Kokteil á Veður Whiskey Sour, Espresso Martini, Negroni eða Moscow Mule? Skiptir ekki máli, barþjónarnir á Veður Bar á Klapparstíg hrista þá alla af kost- gæfni. Notuð eru fersk hráefni og Happy Cocktail Hour er frá 19-21. Ekki skemmir fyrir skemmtileg stemning og fallegt umhverfi, þar sem stóllinn Skatan, fyrsti fjölda- framleiddi íslenski stóllinn, er í fyrirrúmi. ■ ■ Í vikulokin Við mælum með BJORK@FRETTABLADID.IS Kjósendur sem búa sunnan við Hval- fjarðargöngin hafa eitt atkvæði hver í þingkosningum. Hvalfjarðargöngin eru innan við sex kílómetrar að lengd. Norðan megin við göngin hafa kjósendur tvö atkvæði hver. Hver er ástæðan fyrir slíku ójafnrétti? Þau rök hafa verið færð fyrir mis- miklu vægi atkvæða milli höfuð- borgarsvæðis og landsbyggðar, að öll stjórnsýslan – mest öll þjónustan – sé einmitt í höfuðborginni og því sé sanngjarnt að atkvæði landsbyggð- arinnar vegi þyngra en atkvæði kjós- enda höfuðborgarsvæðisins. Hver skyldi vera munurinn á fjar- lægð til Reykjavíkur, annars vegar frá Kjósinni og hins vegar Akranesi? Akranes er raunar nær Reykjavík en Kjósin, eftir að Hvalfjarðargöngin voru tekin í notkun. Akstursleiðin er styttri. En Akranes er í Norð- vesturkjördæmi á meðan Kjósin er í Suðvesturkjördæmi. Hver kjósandi á Akranesi er því með tvö atkvæði á við hvern kjósanda í Kjósinni. Kjósendur á Þórshöfn á Langanesi og Höfn í Hornafirði eru með minni atkvæðisrétt en kjósendur á Akra- nesi, þrátt fyrir að Akranes teljist nú nánast til úthverfa Reykjavíkur. Séu það rök, að fjarlægð frá höfuð- borginni réttlæti aukinn atkvæðis- rétt í kosningum, hví er þá jafnt vægi atkvæða í forsetakosningum? Í for- setakosningum hefur hver kjósandi eitt atkvæði. Kjósendur í dreifbýlis- kjördæmum eru fjær forseta Íslands en kjósendur á höfuðborgarsvæðinu. Ber þá ekki að jafna þann mismun með misvægi atkvæða? Í ljósi misvægis atkvæða í þing- kosningum mætti enn fremur skoða ólíka aðstöðu kjósenda í sveitar- stjórnarkosningum. Hví eru kjós- Fá Akurnesingar tvo atkvæðaseðla í dag? Ólafur Arnarson endur í Kvosinni, Þingholtunum og Vesturbænum í Reykjavík með jafnt vægi atkvæða á við kjósendur sem búa í Breiðholtinu, Árbæ, Grafar- vogi, Grafarholti og Norðlingaholti? Kjósendur í miðbænum eru með Alþingi og Stjórnarráðið í sínu hverfi. Þeir eru með fjölda veit- ingahúsa og vínstofa í göngufæri á meðan kjósendur í úthverfum Reykjavíkur verða að taka leigubíl sem kostar 7.000 krónur niður í bæ til að fá sér máltíð og vínglas í mið- bænum, og svo kostar annan 7.000 kall að komast heim aftur. ■ Þau Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkis-lögreglustjóri og Fjölnir Sæmunds-son, formaður Landssambands lögreglumanna, skrifuðu í vikunni undir samkomulag um að verja orku og fjármagni í að fyrirbyggja kulnun í starfi lögreglunnar. Hér síðar í blaðinu segja þau frá starfsumhverfi lögreglunnar sem vitað er að veldur ólíku álagi en við hin eigum að venjast í starfi. Til marks um það má nefna að líf- og starfsaldur lögreglumanna er styttri en annarra. Og að minnsta kosti annað hvert ár styttir lögreglumaður sér aldur. Á tímum heimsfaraldurs hefur starfssvið lögreglu víkkað út og lýsir Fjölnir því hvernig hann hafi þurft að senda fullorðið fólk heim í háttinn, út úr líkamsræktarstöðvum og þar fram eftir götunum. Eins þreytandi og tak- markanir hafa verið fyrir almenning þá bara getur ekki annað verið en að löggan sé við bug- unarmörk. Ég mæli því með að þú gefir næstu löggu sem verður á vegi þínum háa fimmu – í hönskum! ■ Löggur undir álagi Stjórnmálaflokkarnir reyna að halda sínu striki og stefna á að drekka sorgum og sigrum á fordæmalausum kosninga- vökum, á meðan Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sér fram á hefðbundið laugar- dagskvöld. Vinstri græn halda lokað partí, en hætt er við að Þorgerður Katrín verði þvinguð til að halda eftir- partí. odduraevar@frettabladid.is toti@frettabladid.is Þótt enginn f lokkur verði með kosningavöku í Ásmundarsal ætlar enginn þeirra að taka sénsinn á því að styggja sóttvarnalækni, þannig að vökurnar verða óvenjustuttar í annan endann. Flestum lýkur þeim klukkan eitt í nótt með tilliti til sótt- varnareglna en ljóst er að þá eiga lokatölur enn langt í land, kosninga- nóttinni sjálfri verður hvergi nærri lokið og frambjóðendur væntanlega enn að detta inn og út um þing- gluggann. „Já, já, það er engin breyting á því,“ segir Þórólfur, þegar hann er spurður hvort sóttvarnareglur haldi örlaganóttina sem fram undan er. Samkvæmt núgildandi reglum verður gleðskap þar sem er vín- veitingaleyfi að ljúka klukkan eitt, auk þess sem ekki má hleypa nýjum mannskap inn eftir miðnætti. „Og ég held að fólk þurfi að passa sig hvort sem er kosningakvöld eða ekki og fara eftir reglugerðinni eins og hún er og ef menn eru í vafa um túlkun á henni þarf að spyrja ráðuneytið að því,“ heldur Þórólfur áfram. „En ég held að fólk þurfi að passa sig og fara varlega á kosninga- kvöldinu eins og bara allar aðrar nætur.“ ■ Fordæmalausar kosningavökur Stysta vakan hjá VG Vinstri græn halda kosningavöku sína í í Iðnó og hún verður sú stysta og stendur formlega til miðnættis og er auk þess lokuð almenningi. „Það verður ekki galopin kosn- ingavaka, en við höldum hópinn í Iðnó til að byrja með, og hver veit nema einhver haldi áfram sjálf heima hjá sér. Ekki ólíklegt,“ segir Anna Lísa Björnsdóttir, kosninga- stjóri VG. Miðflokkurinn út um allt Miðflokkurinn verður með sína kosningavöku til 01.00 á Natura hótelinu í Öskjuhlíðinni, auk þess sem kosningavökur munu fara fram á kosningaskrifstofum flokksins um land allt. Flokkurinn hvetur alla til að fjölmenna og gleðjast saman. „Samkvæmt sóttvarnareglum þarf að slútta gleðinni klukkan eitt, það er rétt en við það verður ekki ráðið og við förum að sjálfsögðu eftir þeim fyrir- mælum.“ Sósíalistakex Sósíalistar verða með kosninga- vöku á KEX Gym and Tonic frá klukkan 22.00 til 01.00. „Þá förum við yfir í Bolholt 6,“ segir sósíalistinn Jökull Sólberg en ekki fylgdi sögunni hvort Gunn- ar Smári Egilsson ætli að leiða fylkinguna frá Kexinu að skrif- stofum flokksins. Viðreisn í Skor í JL-húsinu Helga Lind Mar, starfsmaður Viðreisnar, segir flokk sinn hlýða Þórólfi og Víði, í skriflegu svari sínu til blaðsins. „Við fylgjum reglum og verðum til eitt, en við skemmtum okkur bara enn betur, og verðum með karókíherbergi og píluspjöld,“ skrifar Helga. „En ef við vinnum einhvern sturlaðan kosningasigur þá verður formaðurinn píndur til að halda áfram partíi,“ bætir hún við á léttari nótunum. Einhvers staðar í Árskógum Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn sendi Fréttablaðinu stutt og ein- falt svar þess efnis að kosninga- vakan standi milli 22 og 01 og verði í sal í Árskógum í Breiðholti. Ivermectinpizza Ábyrg framtíð verður á skrifstofunni í Skútu- vogi 3 en ætlar að mæta á Castello í Lágmúla klukkan 20, borða saman og fjöl- menna síðan á vökuna 21.30. Samfylkingarbíó Samfylkingin verður með kosningakaffi og kvöldvöku í Gamla bíói og verður gleðin eða sorgin, eftir því hvernig gengur, opin almenn- ingi. „Skemmtanaleyfið þar er til klukkan 1. Enginn bömmer hér. Gerum ráð fyrir góðri skemmtun þegar úrslitin birtast,“ skrifar Kristján Guy Burgess, kosninga- stjóri flokksins. Píratar lóna við Ægisgarð Píratar verða á Ægisgarði úti á Granda til 01.00 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Að sögn Stefáns Óla Jónssonar, starfs- manns þingflokks Pírata, eru uppi áform um að vera með stórt tjald fyrir utan húsið en verið er að meta stöðuna vegna slæmrar veðurspár. X-B Online Framsóknarflokkur- inn var síðastur til að skila inn stað- setningu þannig að á þeim bænum virtist nokkur óvissa ríkja um partí- staðinn framan af en samkvæmt lokaákvörðun er sennilega bara best að vera við Grandagarð 8. Í gömlu höfuðstöðvum tölvu- leikjaframleiðandans CCP, fyrir ofan Barion, svona nánar til- tekið, ef einhverjir eiga eftir að uppfæra Google Maps í gamla sveitasímanum. Amen! Flokkur fólksins hyggst verða í Grafar- vogskirkju og ekki lengur en til 01.00. Samræmd tímasetning Sjálfstæðisflokkur- inn verður með sína kosningavöku á Nordica hotel við Suðurlands- braut og eftir því sem Frétta- blaðið kemst næst eru Sjálf- stæðisflokkurinn og VG í takt með lokatölur í tímasetningu þannig að gleðskapurinn stendur til miðnættis og nær því varla í dagbók lögreglunnar. 24 Helgin 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ 25. september 2021 LAUGARDAGURHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.