Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 30
saman. „Þetta sló algerlega í gegn
og maður var allt í einu orðinn nafn
yfir nóttu,“ segir Hilmir Snær sem á
þessum tíma var 25 ára gamall.
„Það var mjög skrítið að vakna
einn daginn og allt í einu vita allir
hver maður er, en þetta var rosalega
mikið sótt sýning,“ segir Hilmir.
„Þarna var ég líka að byrja í Þjóð-
leikhúsinu og lék stundum sýningu
þar og svo miðnætursýningu á
Hárinu, þetta byrjaði með bangi og
hefur eiginlega bara verið þannig
síðan.“
Hrokafullur á tímabilum
Fyrir ungan mann breyttist lífið
mikið eftir velgengni Hársins og
leikur blaðamanni því forvitni á að
vita hvort Hilmir Snær hafi hugað
sérstaklega að því að halda sér niðri
á jörðinni.
„Sko, ég man alveg eftir því að
hafa verið hrokafullur og leiðin-
legur á tímabilum,“ segir hann og
hlær. „Ég var náttúrulega bara mjög
ungur og þetta gerist mjög hratt.
Ég fann alveg dálítið til mín, allt í
einu orðinn frægur, en svo þroskast
maður og þróast og kemst yfir það,“
bætir hann við.
„Svo fattar maður að leikhúsinu
er ekki haldið uppi af einum leikara
eða að engu er haldið uppi af einni
manneskju.“
Þá segir Hilmir bransann á Íslandi
lítinn og að fljótt spyrjist út ef ein-
hver er hrokafullur. „Ég held að það
hafi nú alveg verið sagt um mig,
en þetta hefur breyst og nú reynir
maður líka að vera fyrirmynd og
styðja við þá yngri, það eru nefni-
lega forréttindin við þetta starf
að maður fær að vinna með öllum
kynslóðum, ég á vini sem eru jafn-
vel yngri en dóttir mín og eldri en
mamma,“ segir Hilmir en hann á
tvær dætur, önnur þeirra er 12 ára
og hin 26.
Hann segir gott að eldast í heimi
leiklistarinnar. Leikarar verði flestir
betri með aldrinum og til séu hlut-
verk fyrir leikara á öllum aldri. „Þar
hallar reyndar á konur að mínu mati
og þær hrekjast oft úr þessu starfi
fyrr en karlar. Ungar konur leika
frekar eldri konur en karlar leika
sinn eigin aldur,“ segir Hilmir.
„Ég hef séð margar frábærar leik-
konur hætta allt of snemma í leik-
húsinu.“
#Metoo
Spurður hvort hann upplifi mis-
rétti milli kynja í leiklistinni í ljósi
umræðunnar sem uppi hefur verið
í samfélaginu undanfarið, líkt og
#Metoo, segir hann ójafnrétti að
finna alls staðar.
„Maður hefur alltaf séð þetta alls
staðar í kringum sig, en samt var ég
steinhissa á hvaða stig umræðan
fór,“ segir Hilmir.
„Ég upplifði það ekki þannig að
þetta væri meira innan leikhússins
en annars staðar og það kom mér á
óvart.“
Hann segir að að sínu mati hafi
umræðan á tímabilum farið út í
öfgar, en að byltingar þurfi að fara
yfir strikið svo að mark sé á þeim
tekið og af þeim sé lært. „Mér finnst
skrítið að dæma menn án þess að
vita hvað stendur að baki og er
hlynntur dómstólaleiðinni.
Það á að trúa þolendum en það
má ekki dæma áður en búið er að
sanna eitthvað,“ segir Hilmir.
„Það eru manneskjur á bak við
alla og ef fólk tekur ábyrgð, þiggur
hjálp og gengst við því sem það
hefur gert, þá verður það að eiga
afturkvæmt í samfélagið en ekki
vera útskúfað að eilífu,“ segir hann.
„En í grunninn er þetta ekkert
f lókið, lykillinn er bara að ef fólk
hegðar sér ekki svona þá koma þessi
mál ekki upp,“ segir hann yfirveg-
aður.
Töfrar og skírskotun í náttúruna
Hilmir Snær fer með aðalhlutverk í
kvikmyndinni Dýrið sem var frum-
sýnd í gær, ásamt dönsku stórleik-
konunni Noomi Rapace. Myndin
fjallar um bændahjónin Maríu og
Ingvar sem búa í afskekktum dal.
Þegar dularfull vera fæðist á bænum
ákveða hjónin að ala hana upp sem
sína eigin. Hamingja færist yfir litlu
fjölskylduna en hún varir skammt.
Myndin er ólík mörgu sem áhorf-
endur hafa séð áður. Í henni er lítið
talað, sögupersónurnar upplýsa
um tilfinningar sínar í gegnum
svipbrigði og mikil dulúð er yfir
henni. Dýrið hefur hlotið lof gagn-
rýnenda um allan heim og hafa yfir
10 milljónir manna horft á stiklu
myndarinnar.
„Fyrst þegar ég las handritið
vissi ég ekkert um hvað þessi mynd
væri,“ segir Hilmir og skellir upp úr.
„En svo fékk ég mér kaffibolla og
las handritið aftur og ákvað strax
að segja já.
Ég varð strax svo hrifinn af sög-
unni og þessu töfraraunsæi og svo
fannst mér þetta eiga svo mikla skír-
skotun í náttúruna,“ segir Hilmir,
sem sjálfur er mikill náttúruunn-
andi. Hann nýtur þess að vera úti,
fara í útreiðartúra og veiða.
„Þessi mynd er eins og ævintýri
en bændahjónin taka eitthvað úr
náttúrunni og aðlaga sér, en aðlaga
sig ekki náttúrunni. Þau taka hana
til sín eins og manneskjan almennt
gerir. Við leyfum okkur að taka og
taka frá náttúrunni til að láta okkur
líða betur, en á endanum refsar
náttúran, alveg eins og er að gerast
í veröldinni með hlýnun jarðar,
hærra hitastigi, skógareldum og svo
framvegis.“
Veiðir eins og indíáni
Hilmir veiðir rjúpur og lax ásamt
því að vera mikill hestamaður.
Hann segist gegnum tíðina hafa
breytt venjum sínum þegar kemur
að veiði. Hann beri meiri virðingu
fyrir náttúrunni og hugsi veiði út frá
eðli indíánans.
„Indíáninn fer á veiðar og biður
einhver æðri máttarvöld að blessa
veiði sína þannig að hann fái eitt-
hvað, en hann hættir þegar hann er
kominn með nóg,“ útskýrir hann.
„Núna þarf ég bara fjórar rjúpur á
jólaborðið og þá veiði ég bara fjórar
rjúpur og fer svo niður af fjallinu.
Einu sinni snerist þetta bara um að
skjóta sem mest,“ segir Hilmir.
„Sama með laxveiðina, ég vil helst
koma heim með einn fisk þegar ég
fer í veiði, nenni ekki að sleppa öllu,
maður er náttúrlega að borga tugi
þúsunda fyrir veiðina en þarf ekki
meira en einn.“
Eins gott að þú sért duglegur að
vinna með svona dýr áhugamál?
„Já, ég veit,“ segir Hilmir og skelli-
hlær. „Ég hef ekkert efni á laxveiði,
ég er stundum leiðsögumaður og fæ
jafnvel að fara, í staðinn fyrir það,
maður verður að redda sér fyrir
horn í svona dýru sporti,“ bætir
hann við.
Keypti hestinn sem hann lék á
Hilmir kynntist hestum fyrst þegar
hann var lítill strákur, Benedikt
Erlingsson leikari og Hilmir Snær
hafa verið vinir frá því að þeir voru
tíu ára og fjölskylda Benedikts átti
hesta. „Ég fékk svo að fara með þeim
í hesthúsið og kynntist þessu þann-
ig.“
Hestamennskunni varð Hilmir
Hilmir varð
ástfanginn af
hestamennsk-
unni þegar hann
lék í sinni fyrstu
kvikmynd,
Agnesi.
Í grunninn er þetta
ekkert flókið, lykillinn
er bara að ef fólk
hegðar sér ekki svona
þá koma þessi mál
ekki upp.
svo ástfanginn af þegar hann lék í
sinni fyrstu kvikmynd, Agnesi. Þar
voru hestar notaðir í myndinni. Í
pásum fékk Hilmir að ríða hest-
unum út, hann reið yfir tún og engi
og naut þess svo, að hann keypti
hestinn sem hann lék á í myndinni.
Síðan þá hefur hestamennskan
verið stór hluti af lífi hans, hann
járnar sína hesta sjálfur, nýtur þess
að ríða út og fara í hestaferðir. „Það
er svo geggjuð stemning í þessum
ferðum,“ segir Hilmir sem er mikill
stemningsmaður.
„Mér f innst mjög gaman að
skemmta mér með góðu fólki, sama
hvort það er að fara út að borða eða
bjóða í matarboð og ég vil alltaf
hafa eitthvað að hlakka til, ég er
hálf krakkalegur í því,“ segir hann
og bætir við að það eigi ekki vel við
sig að vera heima uppi í sófa.
Eltihrellir frá Þýskalandi
Hann segist ekki upplifa mikið
áreiti þegar hann fari út að skemmta
sér, Íslendingar séu afar kurteisir.
„Ég fer yfirleitt á sömu staðina og
er orðinn hálfgert húsgagn þar svo
fólk er ekki mikið að pæla í mér,
það er kannski aðallega ef ég fer á
einhverja nýja staði, en ég hef bara
gaman af því. Fólkið sem vil fá selfí
með mér eða spjalla við mig, er nátt-
úrulega fólkið sem borgar launin
mín. Fólkið sem kaupir sig inn í
leikhús og bíó, og ég tek því bara
fagnandi ef það vil spjalla við mig.“
Þrátt fyrir að Hilmir hafi ekki lent
í miklu áreiti frá íslenskum aðdá-
endum hefur hann lent í því að eiga
eltihrelli. „Þetta er saga sem mikið
er hlegið að í leikhúsinu.“
Fyrir rúmlega tíu árum fékk
Hilmir SMS frá þýskri konu sem
sagðist vera á Íslandi, gaman væri að
hittast í kaffi. „Hún hét sama nafni
og kona sem hafði leikið með mér í
erlendri bíómynd og ég gerði bara
ráð fyrir að þetta væri hún.“
Hilmir bauð konunni á sýningu
sem hann var að leika í í Borgarleik-
húsinu, setti hana á annan bekk í
annað sæti frá hægri. „Svo þegar ég
er að hneigja mig þá sé ég konuna,
en fatta að ég veit ekkert hver hún
er.“
Hilmir hugsaði með sér að konan
hlyti að hafa unnið með honum í
einhverju verkefni og vildi ekki vera
dónalegur svo hann bauð henni
upp á vínglas að sýningu lokinni og
spjallaði við hana í klukkustund.
„Þá sagði hún: Gaman hvað þú ert
vingjarnlegur svona þar sem við
þekkjumst ekkert,“ segir hann.
„Ég kom mér út úr þessu og sagð-
ist þurfa að fara í partí. Hún mætti
aftur á sýninguna daginn eftir, svo
kom hún heim til mín einn daginn
með morgunmat og svo elti hún
okkur með sýningu til London, sem
betur fer fjaraði þetta að lokum út
en ég veit ekkert hver þessi kona er.“
Aðspurður hvað sé fram undan
segir Hilmir Snær rólegan mánuð
næst á dagskrá. „Ég er í fríi í mánuð
en er ekki góður í að slaka á svo ég
er auðvitað búinn að finna mér
eitthvað að gera, ætla að skella mér
í seinni leitir upp í sveit, svo er það
bíó í nóvember.“ n
28 Helgin 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ