Fréttablaðið - 25.09.2021, Síða 38

Fréttablaðið - 25.09.2021, Síða 38
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Stefán er sterkasti maður Íslands árið 2021. Hann stundar stífar æfingar á hverjum degi og þegar hann er ekki að æfa er hann að hugsa um næstu æfingu, hvernig hún geti verið sem best. „Ég set rosalega mikið álag á hnén á mér, olnboga og mjaðmir í öllum þessum þungu lyftingum og barsmíðum sem maður er að setja líkamann á sér í gegnum. Ég finn mikinn mun á fótleggjunum á mér og olnbogum. Ég þjáðist mikið af bólgum sérstaklega í olnbogum og þær hafa minnkað alveg rosa- lega. Þetta er í raun að halda mér gangandi, ég get æft af miklum ákafa eftir að ég fór að taka Active JOINTS reglulega,“ segir Stefán. „Það var móðir mín sem kynnti mig fyrir þessum bætiefnum frá Eylíf. Ég prófaði þau fyrst hjá henni, svo var ég í Krónunni ein- hvern tímann og sá þau og keypti þau þar. Ég hef ekki hætt að taka þau inn síðan. Mér finnst þau virka vel fyrir mig, mér finnst ég finna mun þegar ég er ekki að taka þau inn. Þetta kemur sér vel í þessu sporti sem ég er í.“ Stefán velur að nota vörurnar frá Eylíf af því þær eru íslensk fæðubótarefni. Auk Active JOINTS tekur Stefán inn Happier GUTS sem hann segir einstakt efni fyrir mann eins og hann, sem þarf að borða rosalega mikið. „Ég er að lyfta alls konar grjóti, keppa í réttstöðulyftu og draga vörubíla. Ég þarf að borða nánast 7.000 kaloríur á dag. Það er ekki hollt fyrir þig til lengdar. Þú verður þrútinn og uppblásinn, þér getur verið bumbult allan daginn. En eftir að ég fór að taka inn Happier GUTS, sem er fyrir meltinguna, þá líður mér miklu betur í líkam- anum. Það hefur svo mikil áhrif á svo margt þegar þú ert ekki svona þungur á þér og þér er ekki illt í maganum. Þú ert bara glaðari yfir daginn,“ útskýrir Stefán. „Aflraunir eru mjög óheilbrigt sport fyrir líkamann en ég vil auðvitað stunda það á sem heil- brigðastan hátt. Þá verður maður að hugsa um allar hliðar næringar- lega séð. Ef maður finnur einhver svona bætiefni sem hjálpa þá notar maður þau hiklaust.“ Stefán segist hiklaust mæla með Happier GUTS og Active JOINTS. „Þetta er ekki bara fyrir fólk eins og mig sem stundar lyftingar. Móðir mín hefur líka tekið þetta inn í dálítinn tíma og hún finnur mikinn mun á sér. Þetta er í raun fyrir alla.“ Úr hreinum íslenskum hráefnum Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar vörur, Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR, og Happier GUTS, allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hrá- efnum, engum aukefnum er bætt við og framleiðslan er á Íslandi. „Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf Rún Tryggvadóttir, stofnandi vörulínunnar. Active JOINTS er sérhönnuð blanda sem inniheldur kalk- þörunga, smáþörunga, GeoSilica kísil og birkilauf. Margra ára rann- sóknir sýna fram á jákvæð áhrif næringarefnanna á bein, liði, melt- ingu og húð. Auk þess inniheldur bætiefnið C- og D3-vítamín. Happier GUTS inniheldur einn- ig fjögur íslensk hráefni, þau eru: Kítósan, unnið úr rækjuskel, það eru náttúrulegar trefjar sem reyn- ast vel fyrir meltinguna og draga í sig fituefni úr meltingarveginum. Kalkþörungar, sem eru mjög kalkríkir og innihalda 74 stein- og snefilefni úr náttúrunni. GeoSilica kísillinn sem hefur reynst vel og rannsóknir staðfesta virkni og að lokum fjallagrös sem eru vel þekkt fyrir sín góðu áhrif á meltinguna. Blandan er styrkt með meltingar- ensímum, C-vítamíni, krómi, joði og sinki. Ólöf Rún stofnaði Eylíf vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á Íslandi á sjálf- bæran hátt frá náttúrulegum auð- lindum landsins og auka þannig aðgengi fólks að þeim hráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálf bærar auðlindir úr Stefán segir mikið álag á liði við æf- ingarnar en Active JOINTS hjálpar mikið. Hann þarf líka að borða mjög mikið vegna æfinganna en tekur inn Happier GUTS til að bæta meltinguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar vörur úr hreinum íslenskum hráefnum. Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR og Happier GUTS. MYND/AÐSEND En eftir að ég fór að taka inn Happier GUTS, sem er fyrir meltinguna, þá líður mér miklu betur í líkam- anum. Stefán Torfason sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, hrein hrá- efni sem ekki eru erfðabreytt og stuðla að sveigjanlegri líkama, þá erum við færari til að takast á við verkefnin í dagsins önn. Við vitum að heilsan er dýrmætust, því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsuvandamál. Heilbrigð melting er grunnurinn að góðri heilsu, þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á gæða- vöru fyrir meltinguna,“ segir Ólöf Rún. n Eylíf vörurnar fast í öllum apó- tekum, Fjarðarkaupum, Hag- kaup, Krónunni, Heilsuhúsinu, Melabúðinni og Nettó. Ókeypis heimsending af eylif.is Fæðubótarefni koma ekki í stað- inn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. 2 kynningarblað A L LT 25. september 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.