Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 39

Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 39
Með því að taka inn Digest Gold veit ég að líkaminn nær að nýta næringarefnin til fulls, ég er orkumeiri og get borðað áhyggulaus því magaónotin eru horfin. Kristín Sif Björgvinsdóttir Breytingaskeiðið er eitthvað sem engin kona sleppur við en einkenni geta verið afar mismunandi milli kvenna. Magðalena Mortensen, kölluð Lena, er ein af fjölmörgum konum sem nota Femarelle eftir að einkenni breytingaskeiðs gerðu vart við sig. Hér deilir Lena með okkur sinni reynslu, en Femarelle vörurnar eru náttúruleg lausn fyrir konur sem finna fyrir einkennum vegna horm- ónabreytinga. „Ég var búin að vera að glíma við endalaus hitakóf og farin að svitna mikið á nóttunni með tilheyrandi svefntruflunum þegar ég ákvað að prófa Femarelle. Ég fann strax mun á mér eftir fyrsta pakkann sem var alveg magnað en í dag sef ég alla nóttina og mér líður almennt betur. Ég hef notað Femarelle núna í dágóðan tíma og get sagt að þessi vara sé svo sannarlega að virka,“ segir Lena en hún mælir hiklaust með Femarelle fyrir allar konur. Hvað er breytingaskeið? Breytingaskeiðið hefst þegar eggja- stokkar kvenna draga úr fram- leiðslu á kvenhormónum og að lokum hætta. Þetta hefst oftast á aldrinum 45-52 ára en þó eru mörg dæmi þess að ferlið byrji fyrr og jafnvel síðar. Á þessu skeiði kemst ójafnvægi á hormónana sem getur lýst sér á margvíslegan máta en þetta eru einkenni á borð við: n Óreglulegar blæðingar n Hitakóf og nætursvita n Skapsveiflur og andleg þyngsli n Þurra húð og minni teygjanleika n Minni orku, þreyta og slen n Aukinn hjartslátt n Minni kynlöngun Bættur svefn og hitakóf hurfu með Femarelle Ég fann strax mun á mér eftir fyrsta pakkann sem var alveg magnað en í dag sef ég alla nótt- ina og mér líður almennt betur, segir Lena. Femarelle hefur hjálpað fjöl- mörgum konum að takast á við breytingar og öðlast nýtt líf og bætta líðan. Færðu uppþembu þegar þú borðar steik? Óþægilega tilfinningu í magann ef þú færð þér mjólkurvörur? Sumir hverjir kannast við slík óþægindi en vita ekki hvers vegna. Ástæðan gæti verið sú að óþægindi geti tengst skorti á meltingarens- ímum, sem er algengt vandamál. Meltingarensím eru af mörgum tegundum og hafa þau öll mis- munandi hlutverk. Í munninum hefst meltingin og koma þar fram fyrstu ensímin sem fæðan kemst í snertingu við og hefja þau niður- brot á kolvetnum. Í maganum taka svo við f leiri tegundir af ensímum og brjóta meðal annars niður prótein, fitu og laktósa. Þegar við borðum of mikið og/ eða samsetning matarins sem við neytum er slæm getur komið fyrir að líkaminn nái ekki að „lesa skila- boðin rétt“ eða geti ekki fram- leitt nægilega mikið af ensímum. Kvillar sem slíkir geta valdið ýmsum vandamálum á borð við magaónot, þreytu eða fæðuóþol, en að auki getur það gerst að við fáum ekki þá næringu sem fæðan á að skila okkur. Orkumeiri og nærist vel Kristín Sif Björgvinsdóttir íþróttakona hugsar bæði vel um hreyfingu og mataræði. Hún er sannkallaður orkubolti og tveggja barna móðir sem starfar sem útvarpskona á K100 sem og þjálfari í CrossFit Reykjavík, ásamt því að vera meðlimur í landsliði Íslands í boxi. Maga- ónot í kringum máltíðir hafa háð henni um tíma en eftir að hún fór að neyta Digest Gold meltingar- ensímanna frá Enzymedica hafa lífsgæðin aukist til muna. Kristín Sif segir okkur frá sinni reynslu. „Ég fann mikið fyrir orkuleysi í kringum hádegið og fékk oft á tíðum illt í magann eftir máltíðir. Ég fór að taka inn Digest Gold meltingarensím og fann strax mikinn mun, meltingaróþægindi hurfu bókstaflega og orkan kom til baka. Ég borða hollan og góðan mat og vanda mig mjög mikið við að fá rétt hlutföll af næringar- efnum yfir daginn. Með því að taka inn Digest Gold veit ég einnig að líkaminn minn nær að nýta næringarefnin til fulls, ég er orku- meiri og get borðað áhyggjulaus því magaónotin eru horfin“. Einkaleyfisvarin meltingarensím Ensím í bætiefnaformi hafa það að markmiði að draga úr einkennum fæðuóþols og geta haft margvísleg jákvæð áhrif á líkamsstarfsemina, umfram bætta meltingu. Með inntöku ensíma getur fólk skilað meira frá sér en áður og hungurtil- finning minnkar eða hverfur þar sem næringin úr fæðunni nýtist líkamanum mun betur. Digest ensímin eru einstök að því leyti að þau eru gerð með einkaleyfisvar- inni aðferð sem heitir Therablend, en við slíka aðferð er blandað mörgum stofnum ensíma sem vinna á mismunandi pH-gildum og ná þau þar af leiðandi að melta hvert orkuefni fyrir sig mun betur og hraðar. Ensím sem unnin eru með slíkri aðferð hafa mælst á bilinu 5 til 20 sinnum öflugri og vinna meira en sex sinnum hraðar en önnur leiðandi meltingar- ensím. Af fjórum tegundum er Digest Gold þróaðasta varan og hentar afar vel fyrir fólk með fjölþætt meltingarvandamál. Aðeins 1 hylki með mat getur skipt sköpum. n Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og heilsuhillur verslana. Magavandamálin hurfu og orkan kom til baka Kristín segir að meltingaró- þægindi hafi bókstaflega horfið og orkan komið til baka. Meltingarensím eru ávallt tekin rétt fyrir eða með mat. Fyrir konur frá 40 ára aldri Femarelle vörurnar eru fáanlegar í þremur gerðum sem henta konum á mismunandi stigum tíðahvarfa en þau hefjast yfirleitt upp úr þrí- tugu þó svo að einkenna verði ekki vart strax. Í ljósi þess að beinþéttni fer minnkandi um svipað leyti og hormónabreytingar hefjast, getur inntaka á Femarelle verið ágætis forvörn fyrir einkenni breytinga- skeiðs ásamt því að geta minnkað líkur á beinþynningu. Femarelle inniheldur einstakt efni sem kallast DT56a en þetta er efna- samband unnið úr óerfðabreyttu soja og viðurkenndar rannsóknir sýna að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum. n Útsölustaðir: Öll Apótek, heilsu- verslanir og heilsuhillur stór- markaðanna. ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 25. september 2021
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.