Fréttablaðið - 25.09.2021, Síða 39
Með því að taka
inn Digest Gold
veit ég að líkaminn nær
að nýta næringarefnin til
fulls, ég er orkumeiri og
get borðað áhyggulaus
því magaónotin eru
horfin.
Kristín Sif Björgvinsdóttir
Breytingaskeiðið er eitthvað
sem engin kona sleppur við
en einkenni geta verið afar
mismunandi milli kvenna.
Magðalena Mortensen, kölluð Lena,
er ein af fjölmörgum konum sem
nota Femarelle eftir að einkenni
breytingaskeiðs gerðu vart við sig.
Hér deilir Lena með okkur sinni
reynslu, en Femarelle vörurnar eru
náttúruleg lausn fyrir konur sem
finna fyrir einkennum vegna horm-
ónabreytinga.
„Ég var búin að vera að glíma við
endalaus hitakóf og farin að svitna
mikið á nóttunni með tilheyrandi
svefntruflunum þegar ég ákvað að
prófa Femarelle. Ég fann strax mun
á mér eftir fyrsta pakkann sem
var alveg magnað en í dag sef ég
alla nóttina og mér líður almennt
betur. Ég hef notað Femarelle núna
í dágóðan tíma og get sagt að þessi
vara sé svo sannarlega að virka,“
segir Lena en hún mælir hiklaust
með Femarelle fyrir allar konur.
Hvað er breytingaskeið?
Breytingaskeiðið hefst þegar eggja-
stokkar kvenna draga úr fram-
leiðslu á kvenhormónum og að
lokum hætta. Þetta hefst oftast á
aldrinum 45-52 ára en þó eru mörg
dæmi þess að ferlið byrji fyrr og
jafnvel síðar. Á þessu skeiði kemst
ójafnvægi á hormónana sem getur
lýst sér á margvíslegan máta en
þetta eru einkenni á borð við:
n Óreglulegar blæðingar
n Hitakóf og nætursvita
n Skapsveiflur og andleg þyngsli
n Þurra húð og minni teygjanleika
n Minni orku, þreyta og slen
n Aukinn hjartslátt
n Minni kynlöngun
Bættur svefn og hitakóf hurfu með Femarelle
Ég fann strax
mun á mér eftir
fyrsta pakkann
sem var alveg
magnað en í dag
sef ég alla nótt-
ina og mér líður
almennt betur,
segir Lena.
Femarelle hefur
hjálpað fjöl-
mörgum konum
að takast á við
breytingar og
öðlast nýtt líf og
bætta líðan.
Færðu uppþembu þegar þú
borðar steik? Óþægilega
tilfinningu í magann ef þú
færð þér mjólkurvörur?
Sumir hverjir kannast við slík
óþægindi en vita ekki hvers vegna.
Ástæðan gæti verið sú að óþægindi
geti tengst skorti á meltingarens-
ímum, sem er algengt vandamál.
Meltingarensím eru af mörgum
tegundum og hafa þau öll mis-
munandi hlutverk. Í munninum
hefst meltingin og koma þar fram
fyrstu ensímin sem fæðan kemst í
snertingu við og hefja þau niður-
brot á kolvetnum. Í maganum
taka svo við f leiri tegundir af
ensímum og brjóta meðal annars
niður prótein, fitu og laktósa.
Þegar við borðum of mikið og/
eða samsetning matarins sem við
neytum er slæm getur komið fyrir
að líkaminn nái ekki að „lesa skila-
boðin rétt“ eða geti ekki fram-
leitt nægilega mikið af ensímum.
Kvillar sem slíkir geta valdið
ýmsum vandamálum á borð við
magaónot, þreytu eða fæðuóþol,
en að auki getur það gerst að við
fáum ekki þá næringu sem fæðan
á að skila okkur.
Orkumeiri og nærist vel
Kristín Sif Björgvinsdóttir
íþróttakona hugsar bæði vel um
hreyfingu og mataræði. Hún
er sannkallaður orkubolti og
tveggja barna móðir sem starfar
sem útvarpskona á K100 sem
og þjálfari í CrossFit Reykjavík,
ásamt því að vera meðlimur í
landsliði Íslands í boxi. Maga-
ónot í kringum máltíðir hafa háð
henni um tíma en eftir að hún fór
að neyta Digest Gold meltingar-
ensímanna frá Enzymedica hafa
lífsgæðin aukist til muna. Kristín
Sif segir okkur frá sinni reynslu.
„Ég fann mikið fyrir orkuleysi
í kringum hádegið og fékk oft á
tíðum illt í magann eftir máltíðir.
Ég fór að taka inn Digest Gold
meltingarensím og fann strax
mikinn mun, meltingaróþægindi
hurfu bókstaflega og orkan kom
til baka. Ég borða hollan og góðan
mat og vanda mig mjög mikið
við að fá rétt hlutföll af næringar-
efnum yfir daginn. Með því að
taka inn Digest Gold veit ég einnig
að líkaminn minn nær að nýta
næringarefnin til fulls, ég er orku-
meiri og get borðað áhyggjulaus
því magaónotin eru horfin“.
Einkaleyfisvarin meltingarensím
Ensím í bætiefnaformi hafa það að
markmiði að draga úr einkennum
fæðuóþols og geta haft margvísleg
jákvæð áhrif á líkamsstarfsemina,
umfram bætta meltingu. Með
inntöku ensíma getur fólk skilað
meira frá sér en áður og hungurtil-
finning minnkar eða hverfur þar
sem næringin úr fæðunni nýtist
líkamanum mun betur. Digest
ensímin eru einstök að því leyti að
þau eru gerð með einkaleyfisvar-
inni aðferð sem heitir Therablend,
en við slíka aðferð er blandað
mörgum stofnum ensíma sem
vinna á mismunandi pH-gildum
og ná þau þar af leiðandi að melta
hvert orkuefni fyrir sig mun betur
og hraðar. Ensím sem unnin eru
með slíkri aðferð hafa mælst á
bilinu 5 til 20 sinnum öflugri og
vinna meira en sex sinnum hraðar
en önnur leiðandi meltingar-
ensím. Af fjórum tegundum er
Digest Gold þróaðasta varan og
hentar afar vel fyrir fólk með
fjölþætt meltingarvandamál.
Aðeins 1 hylki með mat getur skipt
sköpum. n
Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og
heilsuhillur verslana.
Magavandamálin
hurfu og orkan
kom til baka
Kristín segir að
meltingaró-
þægindi hafi
bókstaflega
horfið og orkan
komið til baka.
Meltingarensím eru ávallt tekin rétt
fyrir eða með mat.
Fyrir konur frá 40 ára aldri
Femarelle vörurnar eru fáanlegar í
þremur gerðum sem henta konum
á mismunandi stigum tíðahvarfa
en þau hefjast yfirleitt upp úr þrí-
tugu þó svo að einkenna verði ekki
vart strax. Í ljósi þess að beinþéttni
fer minnkandi um svipað leyti og
hormónabreytingar hefjast, getur
inntaka á Femarelle verið ágætis
forvörn fyrir einkenni breytinga-
skeiðs ásamt því að geta minnkað
líkur á beinþynningu. Femarelle
inniheldur einstakt efni sem
kallast DT56a en þetta er efna-
samband unnið úr óerfðabreyttu
soja og viðurkenndar rannsóknir
sýna að það örvar estrógennema
í staðbundnum vef, án þess að
hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í
móðurlífi eða brjóstum. n
Útsölustaðir: Öll Apótek, heilsu-
verslanir og heilsuhillur stór-
markaðanna.
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 25. september 2021