Fréttablaðið - 25.09.2021, Síða 40

Fréttablaðið - 25.09.2021, Síða 40
Albert Eiríksson Albert Eiríksson hefur haldið úti einu vinsælasta matarbloggi landsins, Albert eldar, í næstum áratug. Honum finnst innmatur vera herramannsmatur sem mætti vera oftar á borðum landsmanna. „Ekki bara að hann er ódýr heldur er hann bráð- hollur – stútfullur af hollustu. Þó fólk eigi misgóðar minningar frá innmat úr æsku er ástæðu- laust að láta það trufla sig. Úrval krydda og grænmetis í nútím- anum er í hæstu hæðum og því er auðvelt að útbúa veislumat úr innmatnum.“ Albert gefur hér uppskrift að steiktum kryddlegnum hjörtum. Steikt kryddlegin hjörtu fyrir 5-6 manns, passlegt að miða við eitt hjarta á mann 5-6 lambahjörtu 1 stórt grænt epli 1 b sveskjur 1 msk. timian ⅓ tsk. chili Salt og pipar ½ rauðlaukur, saxaður gróft Olía til steikingar ½ b vatn 2-3 dl. rjómi Kjötkraftur Snyrtið hjörtun og skerið þvert inn í þau (þar sem hólfin eru). Skerið epli og sveskjur smátt og blandið saman ásamt kryddum. Fyllið hjörtun vel. Steikið í olíu í háum potti (fitan getur frussast út um allt). Kryddið með salt og pipar. Brúnið á öllum hliðum. Bætið lauk og síðan vatni. Sjóðið í að minnsta kosti 2 tíma á lágum hita. Þegar hjörtun eru tilbúin þá hellið rjóma í soðið (og smá sósujafnara) og sjóðið í nokkrar mínútur. Það passar vel að bera fram rabarbarasultu og kartöflu- mús með lambahjörtum. Innmatur er bæði hollt og ódýrt hráefni sem hægt er að matreiða á ýmsa vegu. Nokkrir sælkerar gefa lesendum spennandi upp- skriftir. starri@frettabladid.is Lambakjöt af nýslátruðu er komið í verslanir landsins sem er mikið tilhlökkunarefni fyrir margan sælkerann. Innmatur féll lengi í skuggann af dýrari hlutum lambsins en undanfarin ár er hann farinn að sækja í sig veðrið og þar spila fjölbreytt krydd, betra úrval af grænmeti og almenn hug­ mynda auðgi stóran þátt. Innmatur er auk þess mjög járnauðugur og því hin hollasta fæða og miðað við aðra matvöru er hann líka mjög ódýr. Hér gefa nokkrir sælkerar spenn­ andi uppskriftir þar sem innmatur leikur aðalhlutverkið. n Innmatur í nýjum og spennandi búningi Gísli Matt Gísli Matt, eigandi veitingastað- anna Skál! og Slippsins, gefur út nýja matreiðslubók um miðjan október. Bókin er gefin út af Phaidon og verður seld um allan heim. Hann segist elska að mat- reiða úr innmat yfir sláturtíðina. „Mér finnst gaman að gera rétti úr nýrum, lifur, hjörtum, blóðinu sjálfu og meira segja hóstarkirtli þegar maður getur komist í hann. Þetta er frábært hráefni þegar það er meðhöndlað rétt og af virðingu.“ Grilluð lambahjörtu með sölvum og rauðrófugljáa fyrir fjóra 4 lambahjörtu 1 hvítlauksgeiri, pressaður 10 ml jómfrúarólífuolía 40 ml sojasósa eða tamari (glú- tenlaus) 5 g söl Sósan: 125 g rauðrófusafi (hægt að kaupa tilbúinn) 25 g birkisíróp (má nota púður- sykur í staðinn) 10 ml eplaedik 10 ml fiskisósa ½ tsk. xanthan gum (eða kart- öflu- eða maíssterkja) 10 g rifin piparrót 10 g villtar jurtir (estragon, kerf- ill, súrur) Smá jurtaolía Lambahjörtun eru skorin til helminga. Takið sinina sem liggur þar, skerið svo aftur til helminga svo hvert hjarta er í fjórum bitum. Hjörtun eru lögð í vökva úr sojasósu með söxuðum sölvum og pressuðum hvítlauks- geira ásamt ólífuolíu. Leyfið að marinerast í 6 klst. Fyrir sósuna er öllu blandað saman og gott er að þykkja með xanthan gum með því að setja það saman við og setja í blandara. Þannig þykknar sósan örlítið. Ef það er ekki til þá má setja eina tsk. af kartöflusterkju og sjóða upp á vökvanum og kæla svo. Lambahjörtun eru grilluð á heitu grilli í um mínútu á hvorri hlið og gott er að krydda með smá svörtum pipar. Hjörtunum er leyft að hvíla í 3-4 mínútur áður en þau eru borin fram. Gott er að hafa þau á einhvers konar prjónum en ekki nauð- synlegt. Berið fram með rifinni piparrót og villtum kryddjurtum, til dæmis estragon, kerfli eða skógarsúrum. Áslaug Harðardóttir Áslaug Harðardóttir gaf fyrr á árinu út matreiðslubókina Undir 1000 kr. fyrir tvo. Eins og nafnið gefur til kynna inni- heldur hún uppskriftir fyrir tvo þar sem hráefnið kostar undir 1.000 krónum. „Ég og Sverr ir maðurinn minn erum tvö í heim ili og ég fór að kanna hvort það væri hægt að elda góðan og holl an mat fyr ir tvo und ir þúsund krón um. Það reynd ist vel mögu legt án þess að slegið væri af þeim kröf um að mat ur inn yrði bæði góður og gerður úr alvöru hrá efn um.“ Lambalifur í rjómakarrísósu með kartöflumús fyrir tvo 400 g lambalifur 1 tsk. red curry paste 4 stk. hvítlauksrif 1 rauðlaukur 1 banani 3 msk. kókosmjöl 2 dl. rjómi 1 sæt kartafla Salt og pipar Hreinsið lifrina og skerið í sneiðar. Saxið hvítlaukinn og skerið ávextina í sneiðar. Létt- steikið laukinn, hvítlaukinn og ávextina. Setjið síðan til hliðar í skál. Saltið og piprið lifrina og steikið í 1 mínútu á hvorri hlið. Bætið red curry paste og rjóma út í og hrærið í 2 mínútur. Síðan er banananum bætt við ásamt kókosflögunum og látið malla í um 3 mínútur. Skerið í lifrina til að athuga hvort hún sé tilbúin. Gætið þess að elda hana ekki of lengi, hún á að vera ljósrauð. Kartöflumús: Afhýðið sætu kartöfluna og sjóðið. Stappið hana með smjöri og kryddið með salti og pipar. Nanna Rögnvaldardóttir Matgæðingurinn Nanna Rögn- valdardóttir er þeirrar skoðunar að ef maður borðar kjötmeti á annað borð eigi að nýta það eins og hægt er, ekki bara velja dýrustu bitana af skepnunni. „Innmaturinn, fimmti fjórðung- urinn, er spennandi hráefni sem gefur ótrúlega mikla möguleika og ef ég sé hann á matseðli á veitingahúsi erlendis panta ég hann gjarna, ef um er að ræða rétt sem ég hef ekki smakkað áður.“ Kryddlegin hjörtu á pítubrauði fyrir 4 600 g lambahjörtu 3 msk. olía 1 hvítlauksgeiri, pressaður ½ tsk. kummin 1 tsk. óreganó Cayenne-pipar á hnífsoddi Pipar og salt 1 avókadó, vel þroskað ½-1 hvítlauksgeiri, pressaður ½-1 límóna eða ½ sítróna Pipar og salt Kóríanderlauf 2 laukar 4 pítubrauð 3-4 tómatar, vel þroskaðir, skornir í báta Snyrtið hjörtun, skerið mestalla fituna ofan af þeim og fjar- lægið æðar ef þarf. Skerið þau í þunnar sneiðar (½ cm) þvert yfir. Blandið olíu, hvítlauk og kryddi saman í skál, setjið hjörtun út í og hrærið vel. Best er að leggja hjörtun í olíuna með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara eða jafnvel daginn áður en 15-20 mínútur duga. Flysjið á meðan avókadóið og stappið það með gaffli. Hrærið hvítlauk og lím- ónu- eða sítrónusafa, bragðbæt- ið með pipar og salti eftir smekk og hrærið að lokum smátt söxuðu kóríanderlaufi saman við. Skerið laukinn í helminga og síðan í þunnar sneiðar. Hellið dálitlu af olíunni af hjörtunum á pönnu 10-15 mínútum áður en á að steikja þau, látið laukinn krauma við vægan hita og hrærið oft. Takið svo af pönnunni. Hitið grillpönnu mjög vel (má nota venjulega pönnu), raðið hjarta- sneiðunum á hana og steikið við háan hita í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Hitið á meðan pítubrauðin á pönnu eða undir grillinu í ofn- inum. Setið pítubrauðin á diska, skiptið avókadómaukinu jafnt á þau og raðið hjartasneiðunum ofan á. Dreifið tómatbátum, lauk og kóríanderlaufi í kring eða yfir. Salat með lambalifur, vínberjum og fetaosti fyrir 3-4 150 g vínber 1 tsk. ólífuolía 1 lambalifur, 500-600 g 3-4 msk. rúgmjöl (eða hveiti) 1 tsk. paprikuduft 1 tsk. kummin Pipar og salt 2 msk. olía 1 rauðlaukur 100-150 g salatblanda 150 g fetaostur, grófmulinn eða í teningum E.t.v. rauðrófuspírur eða aðrar spírur (eða kryddjurtir eftir smekk) Hitið ofninn í 210°C. Takið vín- berin af greinunum, setjið í eld- fast mót, ólífuolíu yfir og bakið berin í 10-12 mínútur. Takið þau svo út og látið kólna. Hreinsið og snyrtið lifrina, skáskerið hana í þunnar sneiðar og hverja sneið í 2-4 bita. Blandið mjöli og kryddi saman í skál, setjið lifrarbitana í skál og blandið mjög vel. Hitið olíuna vel á stórri pönnu, raðið lifrarbitunum á hana og steikið þá í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Takið þá svo af pönnunni. Skerið rauðlaukinn í helminga og svo í mjög þunnar sneiðar. Setjið salatið á fat eða diska. Dreifið lifrinni yfir og síðan ostinum og vínberjunum. Skreytið e.t.v. með spírum eða kryddjurtum. MYNDIR/AÐSENDAR 4 kynningarblað A L LT 25. september 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.