Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 44
arionbanki.is *Skv. MMR 2021
Ef þú ert ekki með Arion appið getur þú sótt það í App Store
eða Google Play. Í appinu tekur enga stund að:
Ert þú með besta
bankaappið?
• Dreifa greiðslum
• Stýra yfirdrætti
• Sækja um Núlán
• Finna PIN númer
• Kaupa og selja hlutabréf og í sjóðum
• Stofna viðbótarlífeyrissparnað
• Byrja grænan sparnað
• Borga reikninga
• Frysta kort
Már Elíson fluttist alfarið
búferlum til Spánar fyrir
tæpum þremur árum. Hann
á hús á Valencia-svæðinu á
Spáni þar sem hann unir sér
vel í félagsskap fjölda ann-
arra íslenskra eftirlaunaþega.
sandragudrun@frettabladid.is
Már vinnur fyrir Félag húseigenda
á Spáni og aðstoðar því fjölda
Íslendinga sem flytja þangað
alfarið eða dvelja þar löngum
stundum.
„Hér hafa verið allt að 5.000
Íslendingar en við tölum oft um
að þeir séu um 3.000, sem er tæpt
eitt prósent af þjóðinni. Ég er íbúi
hér, f lutti úr Kópavogi og er með
heimilisfesti hér á Spáni. Þeir
Íslendingar sem eru með heimilis
festi hér á svæðinu skipta hund
r uðum. Þeir gætu jafnvel verið
1.000. Svo eru það farfuglarnir
sem flykkjast hingað með f lugvél
unum í september og fara ekkert
fyrr en í maí. Þeir eru örugglega
1.000 líka og svo er fjöldinn allur
af fólki sem dvelur hér yfir sumar,“
segir Már sem er staddur á lög
mannsskrifstofu Félags húseig
enda á Spáni þar sem hann var að
ljúka við að aðstoða hjón við að
gera erfðaskrá.
„Spænska ríkið krefst þess að
við gerum erfðaskrá ef við eigum
eign hér. Annars gengur eignin
bara til spænska ríkisins. Við
erum á fullu hér að aðstoða fólk
við að koma því á réttan kjöl hér,
koma því fyrir í heilbrigðiskerfinu
hér, sem er eitt það besta í heimi.
Við erum að vinna baki brotnu
hér allan daginn að hjálpa fólki,“
segir Már.
Ókeypis heilbrigðisþjónusta
Már segir að lífið á Spáni sé allt
öðruvísi en á Íslandi, það þarf ekki
að nota yfirhafnir vegna veður
blíðu og meira verður úr pening
unum.
„Hér á elliárunum þá dugar
okkur betur þessi smán sem við
fáum frá Tryggingastofnun heima
og skertur lífeyrissjóður. Við fáum
meira fyrir peninginn hér. En
þegar evran er komin í 152 krónur
þá töpum við. Við fáum færri
evrur út af háu gengi,“ útskýrir
hann.
„En það er þannig að annað
hvort áttu mikið af peningum og
þolir skerðingar, eða þú átt lítið
af þeim og þolir þær þá síður. En
við erum hér af því peningarnir
okkar duga miklu betur hér í öllu
tilliti. Við borgum ekki krónu
í heilbrigðiskerfið hér. Hvort
sem við förum á heilsugæslu eða
sjúkrahús. Það er allt baktryggt af
íslenska heilbrigðiskerfinu. Líka ef
þú ert með lögheimili á Íslandi, þá
máttu dvelja á Spáni í sex mánuði
og þarft bara bláa evrópska
sjúkratryggingakortið til að fá
ókeypis heilbrigðisþjónustu. Við
höfum það bara eins og blómi í
eggi.“
Öflugt félagslíf
Már segir að mikill samgangur sé
á milli Íslendinganna á Valencia
svæðinu. Þar er auk húseigenda
félagsins starfrækt Íslendingafélag.
Reglulega eru haldnir ýmsir fundir
og mannfagnaðir.
„Ég er til dæmis að fara á eftir á
fund fyrir Íslendinga á þekktum
sundlaugarbar hér. Við höldum
alls kyns mannfagnaði, veislur og
árshátíðir. Þetta er gott samfélag.
Í október verður nokkur hundruð
manna veisla hjá Félagi húseig
enda hér. Við höfum það mjög
gott hér, það er enginn neikvæður
punktur,“ segir hann.
„Við erum með allt sem við
þurfum hér og okkar eigin ræðis
mann sem sér um okkar mál. Fólk
getur verið alveg öruggt hér.“ n
Peningurinn dugar
lengur á Spáni
Við höldum alls
kyns mannfagnaði,
veislur og árshátíðir.
Þetta er gott samfélag.
Már er ánægður með lífið á Spáni þar sem fjöldi Íslendinga býr. MYND/AÐSEND
4 kynningarblað 25. september 2021 LAUGARDAGUREFRI ÁRIN