Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.09.2021, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 25.09.2021, Qupperneq 54
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Vestmannaeyjabæjar Laust er til umsóknar starf skipulags- og umhverfisfulltrúa Vestmannaeyjabæjar. Um er að ræða 100% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í skipulags- og umhverfismálum sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Skipulags –og umhverfisfulltrúi hefur umsjón með skipulags-, umhverfis- og náttúruverndarmálum sveitarfélagsins, þjónus- tu við íbúa og ráðgjöf fyrir bæjarstjórn, fagráð og nefndir og vinnur skv. samþykktum þeirra. skipulags- og umhverfisfulltrúi hefur eftirlit og ábyrgð með því að lögum og reglugerðum um umhverfis- og skipulagsmál sé framfylgt. Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið skipulags- og umhverfisfulltrúa Vestmannaeyjabæjar: • Skipulagsgerð og útgáfa framkvæmdaleyfa. • Umsjón með umferðar- og samgöngumálum. • Umsjón með umhverfis- og hreinlætismálum sveitar- félagsins. • Umsjón með náttúruverndarmálum í sveitarfélaginu. • Umsjón með opnum svæðum, gróðursetningu og upp- græðslu. • Umsjón með merkingu og kortlagningu útivistarsvæða og gönguleiða í sveitarfélaginu. • Umsjón verkefna er varða gróðurvernd. • Gerð starfs- rekstrar-, og framkvæmdaáætlana fyrir þá málaflokka sem undir hann heyra. Skipulags- og umhverfisfulltrúi ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða. Skipulags- og umhverfis- fulltrúi er starfsmaður Umhverfis- og skipulagsráðs. Skipulags- og umhverfisfulltrúi starfar á umhverfis- og fram- kvæmdasviði og lýtur stjórn framkvæmdastjóra. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun og viðeigandi réttindi til að annast skipu- lagsgerð skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er skilyrði. • Þekking og reynsla af skipulags- og umhverfismálum er æskileg. • Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur. • Reynsla af þátttöku í stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg. • Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Góð tölvu og enskukunnátta Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs á net- fanginu olisnorra@vestmannaeyjar.is Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkom- andi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðning- ur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á netfangið olisnorra@vestmannaeyjar.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2021. Laus er til umsóknar staða aðstoðarsaksóknara við embætti ríkissaksóknara. Starfshlutfall er 100%. Hæfniskröfur Umsækjendur skulu hafa lokið embættis- eða meistaraprófi í lögfræði og er einkum leitað eftir lögfræðingum sem hafa lagt sig eftir námsefni á sviði refsiréttar og sakamálaréttarfars í laganámi sínu. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi reynslu af lögfræðistörfum. Einnig er nauð- synlegt að umsækjendur hafi mjög gott vald á íslensku og gott vald á ensku. Lögð er á það áhersla að viðkomandi hafi skipulagshæfileika, geti viðhaft öguð og sjálfstæð vinnubrögð og eigi auðvelt með mannleg samskipti. Lýsing á starfi: Meginverkefni starfsmannsins eru: a. Meðferð réttarbeiðna frá erlendum yfirvöldum og mál vegna kröfu um fram- sal/afhendingu erlendra ríkisborgara, þ.m.t. beiðnir á grundvelli Norrænu- og Evrópsku handtökuskipunarinnar. b. Meðferð kærumála vegna ákvarðana héraðssaksóknara og lögreglustjóra um að vísa kæru frá, hætta rannsókn, fella mál niður eða falla frá saksókn, sbr. 52. gr., 145. gr., 146. gr. og 147. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. • Starfsmaður á samskipti við lögreglumenn, lögmenn, dómstóla og ýmis embætti og stofnanir, þ.m.t. erlendar stofnanir, í tengslum við mál sem honum eru falin til meðferðar og afgreiðslu. • Starfsmaður tekur þátt í gæðastarfi ríkissaksóknara eftir því sem óskað er eftir. • Starfsmaður sinnir öðrum verkefnum sem ríkissaksóknari felur honum. Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Stéttarfélags lögfræðinga. Nánari upplýsingar veitir: Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari – sjf@saksoknari.is, S:444-2900 Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil, skal senda til embættis ríkissaksóknara, Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík, eða á netfangið saksoknari@saksoknari.is. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum skulu umsækjendur gefa upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2021. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2022. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Aðstoðarsaksóknari við embætti ríkissaksóknara. EMS 518325 Toyota Kauptúni Kauptúni 6 570-5070 BÍLAMÁLARI Toyota Kauptúni leitar að reyndum bílamálara sem getur hað störf sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða í frábæru starfsumhver STARFSSVIÐ: · Almenn störf bílamálara HÆFNISKRÖFUR: · Próf í bílamálun · Starfsreynsla er skilyrði · Góð þekking á bílum · Vandvirkni og stundvísi · Hæfni í mannlegum samskiptum Vinnutími er mán-‹m 08:00-17:00 og fös 08:00-15:30 Umsókn, ásamt ferilskrá og kynningarbré‹, óskast fyllt út á vef félagsins www.toyotakauptuni.is Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir, fanny@toyota.is Umsóknarfrestur er til 1. október. Kauptúni intellecta.is RÁÐNINGAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.