Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 59

Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 59
Félagsmálaráðuneytið auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar Embætti forstjóra Barna – og fjölskyldustofu. Félagsmálaráðuneytið leitar að framsæknum stjórnanda sem hefur þekkingu á málefnum barna og hæfni til að leiða innleiðingar- og breytingaferli. Barna- og fjölskyldustofu er ætlað að vinna að farsæld barna í samræmi við bestu þekkingu og reynslu hverju sinni. Stofnunin mun sinna verkefnum sem tengjast þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Þar á meðal eru verkefni á sviði barnaverndar en við stofnun Barna- og fjölskyldustofu verður Barnaverndarstofa lögð niður. Barna- og fjölskyldustofa mun jafnframt gegna lykilhlutverki við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og fara með tilgreind verkefni í þágu barna sem nánar er kveðið á um í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Barna- og fjölskyldustofu er ætlað að vera verkfærakista ríkisins vegna samþættrar þjónustu við börn og fjölskyldur. Í því felst meðal annars að vera stuðningur við sveitarfélög og ríkisstofnanir vegna þjónustu í þágu barna, með ráðgjöf, leiðbeiningum, fræðslu og þróun gagnreyndra aðferða og úrræða í þágu barna. Í því felst jafnframt að hafa yfirumsjón með úrræðum á vegum ríkisins, þar á meðal Stuðlum, Barnahúsi og öðrum meðferðarúrræðum og fóstri. Meðal verkefna Barna- og fjölskyldustofu verður yfirumsjón með upplýsingakerfum samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna og gagnagrunni og stafrænum lausnum fyrir barnavernd á landsvísu. Forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála Félagsmálaráðuneytið leitar að framsæknum stjórnanda sem hefur áhuga á að byggja upp nýja stofnun. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála mun hafa eftirlit með gæðum þjónustu sem er veitt á grundvelli laga um barnavernd, laga um Barna- og fjölskyldustofu, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, laga um málefni aldraðra, laga um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Helstu verkefni stofnunarinnar er útgáfa rekstrarleyfa, frumkvæðiseftirlit með gæðum þjónustu, afgreiðsla kvartana yfir þjónustu, beiting viðurlaga við brotum á reglum og þróun gæðaviðmiða. Stofnunin mun taka við gæða- og eftirlitsverkefnum frá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar og eftirlitsverkefnum frá Barnaverndarstofu. Félagsmálaráðuneytinu, 4. september 2021. Umsóknarfrestur er til 4. október 2021. Nánari upplýsingar um störfin má finna á starfatorgi Stjórnarráðsins, www.starfatorg.is Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í 50 ár RÁÐNINGAR Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings að vel takist til.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.