Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 64
Ú
tboð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í
LED götulampa í þrjú hverfi í Hafnarfirði. Í
heildina eru þetta 1.750 lampar og verða
tilboð opnuð 21. október kl. 10.
Nánar á:
hafnarfjordur.is
LED götulampar í
Hafnarfirði
Auglýst útboð
Íþróttamannvirki í Búðardal, forval
Sveitafélagið Dalabyggð, auglýsir eftir þátttakendum í forvali til
að taka þátt í lokuðu alútboði, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar
á íþróttamiðstöð í Búðardal. Farið verður yfir allar umsóknir og
hæfi og geta umsækjanda metin út frá þeim upplýsingum sem
þeir leggja fram með umsókn sinni.
Miðstöðin samanstendur af íþróttasal, þjónustukjarna með
búningsklefum og lyftingarsal ásamt útisundlaug.Heildarstærð
íþróttamiðstöðvar er um 1300 m2 og þá er útisvæði sundlaugar
með sundlaugakeri, vaðlaug og heitum pottum um 200m2 . Gengið
verður inn í íþróttamiðstöð á 1. hæð þar sem öll starfsemi hússins
fer fram. Þá verður gert ráð fyrir lagnarými sundlaugar í kjallara
og tæknirými á 2. hæð húss. Í húsinu verður hægt að iðka ýmsar
íþróttir, bæði æfingar og keppni en miðað er við að í því verði
mætt kröfum til keppni í körfubolta.
Verkkaupi hefur sett byggingunni og starfsemi hennar sjálfbærn-
imarkmið sem mikilvægt er að fylgja eftir. Lögð er megináhersla á
að verkið verði unnið á sem hagkvæmastan hátt.
Alútboð þetta nær yfir arkitektahönnun, verkfræðihönnun og
reisingu hússins.
Heiti verkefnisins er: Íþróttamannvirki í Búðardal
Helstu verkþættir eru:
• Arkitektahönnun
• Verkfræðihönnun húss og sundlaugar
• Byggingarleyfisumsókn
• Jarðvinna
• Undirstöður, burðarvirki og ytra byrði
• Frágangur utanhúss, þ.m.t. sundlaugarker
• Frágangur innanhúss, þ.m.t íþróttagólfs og uppsetning
á föstum búnaði
• Uppsetning og fullnaðarfrágangur allra lagna- og rafkerfa
• Frágangur lóðar
Tengiliður verkkaupa mun afhenda forvalsgögn að ósk umsæk-
janda í gegnum tölvupóst, kristan@dalir.is. Gögnin verða afhent
þriðjudaginn 28. september 2021.
Umsókn ásamt umbeðnum gögnum sem talin eru upp í for-
valsgögnum skal skila með tölvupósti fyrir kl. 16:00. þriðjudag-
inn 12. október 2021. Ekki er hægt að skila inn umsókn eftir að
uppgefinn umsóknarfrestur er útrunninn.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsavík, yfirlæknir
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir að ráða yfirlækni til starfa. Gott húsnæði í boði.
Læknar sem starfa hjá HSN eru með aðalstarfsstöð á heilsugæslustöð og sinna móttöku sjúklinga og heilsuvernd ásamt því að sinna
vaktþjónustu í héraði. Starfið felur einnig í sér störf á sjúkra- og hjúkrunarsviði. Störfin fela í sér þverfaglega samvinnu innan sem og
út fyrir stöðina. Góð reynsla hefur verið af teymisvinnu lækna og hjúkrunarfræðinga, sem snýr að móttöku, eftirfylgd og utanumhaldi.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga HSN.
Leitað er eftir sérfræðingi með góða reynslu, stjórnunar- og faglega hæfni til að taka þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu
heilsugæsluþjónustu til framtíðar í samræmi við áherslur heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Starfshlutfall er 100% og um er að ræða framtíðarstarf sem laust er 1. desember eða eftir samkomulagi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti eða staðfestingu á íslensku lækningaleyfi. Mat á hæfni umsækjenda
byggist á innsendum gögnum, meðmælum og viðtölum við umsækjendur.
Starfsstöðin á Húsavík sinnir Húsavík og nágrenni. Unnið er í teymisvinnu í nánu samstarfi hjúkrunarfræðinga og lækna. Á svæðinu búa
um 2.400 manns, helstu atvinnugreinar eru iðnaður, þjónusta við ferðamenn, sjávarútvegur og verslun. Leik-, grunn- og framhaldsskólar
eru í héraðinu. Í héraði heilsugæslunnar í S-Þingeyjarsýslu búa um 3.900 manns, bæði í blómlegri sveit og í þéttbýli í Mývatnssveit og
Húsavík. Náttúra og menning er lifandi og fjölbreytileg og atvinnuuppbygging í fullum gangi. Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norður-
lands nær því frá Blönduós í vestri til Þórshafnar í austri. Á upptökusvæðinu HSN búa um 36.000 manns og starfsmannafjöldi er um
600 talsins. Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu auk öldrunarþjónustu í formi hjúkrunar- og
dvalarrýma.
Nánari upplýsingar veita:
Unnsteinn Ingi Júlíusson - unnsteinn.ingi.juliusson@hsn.is - 464 0500 og Örn Ragnarsson - orn.ragnarsson@hsn.is - 432 4200
Umsóknarfrestur er til og með 04.10.2021 - Sótt er um starfið á Starfatorgi.is og á heimasíðu HSN undir Laus störf.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Almennar lækningar og heilsuvernd
• Vaktþjónusta
• Læknisþjónusta á heilsugæslusviði
• Yfirlæknir er leiðtogi starfstöðvar sinnar og hefur þríþætta
ábyrgð; faglega og fjárhagslega ábyrgð sem og starfsmanna-
ábyrgð.
Hæfniskröfur
• Íslenskt lækningaleyfi
• Góðrar íslenskukunnáttu er krafist
• Reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
• Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og
breytingar
• Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki
• Sérfræðiviðurkenning í heimilislækningum kostur
• Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Ökuleyfi
• Óskað er meðmæla
Rangárþing eystra óskar eftir
tilboðum í framkvæmdina:
NÝR LEIKSKÓLI Á HVOLSVELLI,
VALLARBRAUT - HÚSBYGGING
Lýsing á verkinu:
Verkið felst í byggingu og fullnaðarfrágangi nýs leikskóla á
Hvolsvelli. Þegar verktaki kemur að verki verður búið að jarðvegs-
skipta undir húsi og girða vinnusvæðið. Byggingin er á staðsteypt-
um sökklum. Staðsteyptur kjallari er að hluta til undir húsinu.
Útveggir eru úr forsteyptum samlokueiningum og innveggir úr
forsteyptum veggeiningum. Hluti útveggja er klæddur með lóðréttri
viðarklæðningu úr rauðum sedrusviði. Þak verður staðsteypt plata,
einangrað að ofan, vínildúkur og malarlag. Vindföng á suðurhliðum
og útigeymsla á lóð eru úr timbri.
Frárennslis, regn- og drenlagnir eru PVC pípur ásamt tilheyrandi
brunnum. Neysluvatnslagnir eru rör í rör með tilheyrandi deili-
kistum. Húsið er hitað með gólfhita. Stofnlagnir að deilikistum
neysluvatns- og gólfhita eru rör í rör lagnir.
Helstu magntölur eru áætlaðar:
• Birt flatarmál 1.650 m²
• Heildar rúmmál 5.590 m3
• Steypumót 2.300 m²
• Steinsteypa 600 m3
• Bendistál 40.000 kg
• Forsteyptar útveggjaeiningar 1.000 m²
• Forsteyptir innveggir 1.400 m²
• Utanhúss klæðning 365 m²
• Þakfrágangur 1.650 m²
• Gólfdúkur 1.375 m²
• Frárennsli/Neysluvatn/Gólfhiti 900 m/ 2.000 m / 7.900 • Loftræstikerfi 19.200 m3/klst
Upphaf framkvæmda: Framkvæmd hefst þegar verkkaupi hefur
með formlegum hætti tekið tilboði bjóðanda.
Lok framkvæmda: Verkinu skal skila eins og því er lýst í útboðs-
gögnum, en loka skiladagur verksins er 28. febrúar 2023.
Útboðsgögn verða afhend í útboðskerfinu Ajour þar sem bjóðendur
geta sótt gögn frá og með miðvikudeginum 22. september 2021 kl. 14:00. Bjóðendur skrá sig inn á vef og hlaða niður gögnum:
https://mannvit.ajoursystem.is
Notkunarleiðbeiningar um kerfið má sjá hér:
https://help.ajoursystem.com/astopic/tender/
Fyrirmælum varðandi skil gagna er nánar lýst í útboðsgögnum.
Bjóðendum verður tilkynnt eftir lok tilboðsfrests um nöfn bjóðenda
og heildartilboðsfjárhæð.
Erum við
að leita
að þér?