Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 65
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir
árið 2022
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða ármagnar framkvæmdir
á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón
sveitarfélaga og einkaaðila
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
• Öryggi ferðamanna.
• Náttúruvernd og uppbyggingu.
• Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
• Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
Sjóðnum er ekki heimilt:
• Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
• Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru
og menningarsögulegum minjum.
Hvar ber að sækja um
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is en
hlekkur á umsókn er á vefsíðu Ferðamálastofu
www.ferdamalastofa.is/umsoknir.
Umsóknarfrestur
Umsóknartímabil er frá og með 27. september til
kl. 13 þriðjudaginn 26. október. Umsóknir sem
berast eftir þann tíma koma ekki til álita.
Gæði umsókna
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna.
Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn,
skilyrði lánveitenda og umsóknarferlið, sem finna má á vefsíðu Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is/umsoknir.
Geirsgötu 9, 101 Reykjavík
Hafnarstræti 91, 600 Akureyri
www.ferdamalastofa.is
upplysingar@ferdamalastofa.is
ÚTBOÐ
Verkfræðistofan Víðsjá fyrir hönd
Félagsbústaða óskar eftir tilboðum í verkið:
Njálsgata 65, eNdurbætur iNNaNhúss.
Verkið felur m.a. í sér endurnýjun neysluvatns- og raflagna
auk loftræsingar og frágang innanhúss.
Ósk um útboðsgögn skal senda á vidsja@vidsja.is og verða
þau til afhendingar frá og með 29. september 2021.
Tilboðum skal skila til verkfræðistofunnar Víðsjár að
Tryggvagötu 11, 101 Reykjavík, eigi síðar en föstudaginn
15.október 2021 kl.10:00. Tilboð verða opnuð á sama tíma í
húsakynnum Víðsjár.
Verkinu skal að fullu lokið þann 1.mai 2022
Staðan er ætluð fræðafólki
er sinnir rannsóknum á sviði
íslenskrar myndlistar og
menningar sögu. Rannsóknar-
staðan, sem unnin er í sam starfi
við listfræði við HÍ, hlaut þriggja
ára öndvegisstyrk Safnaráðs
og verður auglýst árlega, næstu
þrjú ár. Um er að ræða hálfa
stöðu til eins árs í senn sem
vinna má eftir samkomulagi.
Nú er auglýst eftir rann sakanda
fyrir árið 2022 og skal verk efninu
lokið með útgáfu og sýningu í
Listasafni Reykjavíkur á Kjarvals-
stöðum í ársbyrjun 2023.
Stefnt skal að því að niður-
stöður rannsókna verði birtar
á fræðilegum vettvangi en auk
þess skulu þær kynntar með
fyrirlestri og miðlun til almenn-
ings á meðan á sýningum
stendur. Rannsóknargögn og
niðurstöður skulu varðveittar
í Listasafni Reykjavíkur.
Í umsókn skal verkefnið skil-
greint og gerð grein fyrir því
á hvern hátt rannsóknin sé
líkleg til að varpa nýju ljósi á
hlut kvenna í íslenskri mynd-
listarsögu. Umsókn skal fylgja
greinargerð um menntun
og reynslu af fræðistörfum,
útgáfu og/eða gerð mynd-
listarsýninga. Fræðimaður
mun hafa vinnuaðstöðu hjá
Listasafni Reykjavíkur.
Umsókn sendist
Listasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 17,
101 Reykjavík, eða á netfangið
listasafn@reykjavik.is –
í síðasta lagi 1. nóvember 2021.
Nánari upplýsingar
Ólöf Kristín Sigurðardóttir
safnstjóri í síma 411 6400
eða í tölvupósti olof.kristin.
sigurdardottir@reykjavik.is
Rannsóknarstaða
Hlutur kvenna í
íslenskri listasögu
Listasafn Reykjavíkur auglýsir til umsóknar
nýja tímabundna rannsóknarstöðu sem fjalla
skal um hlut kvenna í íslenskri listasögu
intellecta.is
RÁÐNINGAR
ATVINNUBLAÐIÐ 21LAUGARDAGUR 25. september 2021