Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 86

Fréttablaðið - 25.09.2021, Page 86
ur hann áfram en brúðkaupið fór fram á Búðum á Snæfellsnesi. „Þau voru heppin að presturinn var ekki farinn bara.“ „Svavar hefur gengið með mér í gegnum f lestar barneignirnar,“ segir fimm barna faðirinn Svali. „Þeir hafa báðir verið stór hluti af lífi barnanna og eru guðfeður þess yngsta.“ Svavar segir vináttuna hafa þróast. „Við erum vinahjón og eiginlega er þetta orðið meira en fjölskylda.“ Í desember 2017 f lutti Svali út til Tenerife og hefur boðið upp á róm- aðar styttri ferðir fyrir ýmsa hópa, aðallega Íslendinga. Hvaða áhrif höfðu f lutningarnir á vináttuna? „Sko, Svavar talar allan daginn í vinnunni, og honum leiðist geð- veikt að vera einn,“ segir Svali og Svavar bætir við: „Við tölum saman á hverjum degi. Á leiðinni heim úr vinnunni hringi ég fyrst í Svala, svo Evu Laufey, svo mömmu og svo er ég kominn heim.“ En Svavar hringir ekki bara í hann úr bílnum. „Já, já, svo hringir hann líka í mig þegar hann er á klósettinu!“ bætir Svali við. Þetta er sem sagt alvöru vinátta. Ævintýrin á Tenerife Næsta ævintýri vinanna er að stofna ferðaskrifstofu. Svali hefur um árabil rekið ferðaþjónustu sem þjónustar fólk þegar það er komið til Tenerife. „Munurinn á því sem við erum að gera saman og því sem ég er byrjaður á úti á Tenerife er að þessi ferðaskrifstofa býður upp á að bóka allan pakkann – flug, gistingu og ferðir. Fram að þessu mátti ég gera allt úti á Tenerife en ég mátti ekki koma fólkinu þangað. Svo förum við að ræða þetta, og þá segir Svavar: „Djöfull væri ég til í að vera með þér í þessu,“ og svo fer þetta að þróast. Fyrir Covid-ið stækkuðum við hratt og svo var næsta skref að víkka út starfsemina, búa til ferða- skrifstofu á Íslandi til að flytja far- þegana út og við sjáum svo alveg um þá,“ segir Svali. „Við vildum hafa þetta töfrandi – Trip Oz. Ferða- töfrar. Og nú er það orðið að veru- leika, ferðaskrifstofan er komin af stað á vefsíðunni Tripoz.is og svo eru Tenerifeferdir.is líka enn vel sprikl- andi,“ segir Svavar. „Samhliða þessu verðum við svo með þjónustuskrif- stofu sem þjónustar alla sem á þurfa að halda – ekki bara okkar farþega.“ Svavar rekur hárgreiðslustofuna Senter auk þess að stjórna vikuleg- um útvarpsþætti, Bakaríinu, ásamt Evu Laufeyju Kjaran á Bylgjunni alla laugardagsmorgna, svo einhver gæti haldið að það væri nú þegar nóg að gera. „Mig langaði að tengjast þeim, og inn í þennan bransa. Ég trúi á þetta. Það er alls ekki planið að fara að flytja út á næstunni. Mig langaði bara að vera memm. Og svo er ég að spjalla við fólk í stólnum hjá mér – þau eru í saumaklúbbum, eiga fyrir- tæki, eru í golfhópum. Þetta er allt fólk sem er spennt fyrir því sem við erum að gera.“ Fólk vill meira út úr ferðunum Blaðamaður er sjálfur nýkominn frá Tenerife, og var sú ferð farin með það fyrir augum að gera sem allra minnst. Heilalaust frí. Er það ekki það sem við viljum í sólarlöndum? Bara slaka eins og rostungurinn Wally á bakkanum? Svali segir að þetta sé að breytast. „Ég hef þjónustað yfir 5.000 manns nú þegar, og margir hafa oft komið til Tenerife en upplifa eitthvað allt annað þegar þeir koma til mín. Svo vill fólk fá meira út úr utanlands- ferðum nú, þegar við sjáum að þær eru ekki sjálfgefinn lúxus. Sérstak- lega þegar til dæmis fjölskyldur fara saman, þegar afi er sjötugur – þá vill fólk gera sér dagamun. Þessar matar- og vínferðir sem við höfum boðið upp á eru tilvaldar fyrir slíkt. Fólk vill stuttar hálfsdagsferðir – alltaf smá mat, alltaf smá vín,“ segir Svali. Svavar hefur komið oft í heim- sókn. „Fyrst þegar ég kom vildi ég ekkert gera, þjáðist bara af ofsaleti. Svo fór ég að fara í svona einkaferðir, kynnast sögunni og matarmenn- ingunni. Það kom mér á óvart hvað það er hár standard á öllu, sérstak- lega, gistingu, þrifnaði og mat,“ segir Svavar. Allt þetta Tenerife-tal er kærkomið þegar haustlægðin geisar fyrir utan. Svali verður úti á Tenerife og Svavar verður á Íslandi. „Hann er svo mikill sölumaður. Hann getur malað um þetta þegar hann er að dúllast í hárinu á tilvonandi við- skiptavinum.“ Svavar bætir við: „Já, ég er góður í því. En ekki láta mig fá prókúruna, ég er ekki góður í svona „spara pening“ og þannig.“ Þannig að þeir vega hvor annan upp í komandi rekstri? „Absalút,“ segja þeir samtaka að lokum. n Og já, eftir nokkra hittinga þá fannst mér ég þurfa að segja Svavari að því miður væri ég ekki sam- kyn- hneigður, svo við yrðum aldrei meira en bara vinir. Svali Sigvaldi Kaldalóns, Svali, og Svavar Örn, hafa verið vinir hátt í aldarfjórðung. Vináttan hófst í gegnum vinnu og er nú sterk sem aldrei fyrr. Þeir eru að stofna saman ferða- skrifstofu og segjast vega hvor annan upp. Það er við hæfi að hitta vin-ina Svala og Svavar í Kvos-inni. „Jómfrúin er eina frúin sem ég fer á,“ segir Svavar og Svali skellir upp úr. Vinskapur þessara ólíku manna hófst hér í næsta húsi. „Ég og Jón Gunnar Geirdal vorum að skipu- leggja gamlárspartí ’97/98 á Skugga- barnum. Og þarna var landsliðinu í bænum boðið – Skjás eins klíkunni og þessu fólki,“ segir Svali og minn- ist dýrðarljóma liðinnar tíðar. „Ein- hver stakk upp á Svavari …“ bætir hann við. „Og svo voru sko ég og Emilíana Torrini veislustjórar!“ segir Svavar. Tuttugu og þriggja ára vinskapur Vinskapurinn þróaðist í gegnum skipulagið á þessu partíi. „Og já, eftir nokkra hittinga þá fannst mér ég þurfa að segja Svavari að því miður væri ég ekki samkynhneigður, svo við yrðum aldrei meira en bara vinir,“ segir Svali. Tuttugu og þremur árum, nokkrum hundum og fimm börnum síðar, er vináttan sterk sem aldrei fyrr. „Ég var að vinna á Jóa og félögum, og þar var að vinna með mér Jóhanna (Katrín Guðnadóttir) sem síðar varð konan hans Svala – og Daníel (Örn Hinriksson) sem er maðurinn minn í dag, þannig að við unnum þar þrjú saman,“ og Svali skýtur inn í: „Sjúklega vinnutengt!“ Þegar Svali giftist Jóhönnu voru aðeins tveir gestir viðstaddir, það voru Svavar Örn og Daníel. „Svali var klukkan eitt á brúðkaupsdaginn í Kringlunni að kaupa sér föt. En við Daníel græjuðum allt: snitturnar, kókostoppana og brúðarvöndinn … alveg tvær Muriel. Þetta hefði verið nokkuð sorglegt ef við hefðum ekki verið með,“ segir Svavar og hlær. Svaramenn og guðfeður Svali segist bara hafa ætlað að hafa þetta mjög auðvelt: „Ég ætlaði bara að bruna og hitta prestinn… Jóhanna fann kjólinn kvöldið áður, hann var lagaður um morguninn og ég keypti mér skyrtu og bindi.“ „Ein- mitt,“ segir Svavar og hlær. „Þú stillir ekki klukkuna eftir þessu fólki, þau eru ekkert mikið að koma á undan áætlun, þessi hjón. Og ekki hjálp- aði að þegar við lögðum af s t a ð – þá var verið að þrífa göngin, o g g ö n g i n lokuð,“ held- Félagarnir Svali og Svavar kynntust á Skuggabarnum fyrir rúmum tuttugu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vega hvor annan upp Margrét Erla Maack margret @hringbraut.is Lengi vel stjórnuðu þeir útvarpsþætti saman og nú hafa þeir stofnað ferðaskrifstofu. Daníel og Svavar eru guðfeður Sigurðar Kára, yngsta sonar Svala og eiginkonu hans, Jóhönnu Katrínar. Þegar Svali og Jóhanna giftu sig var aðeins Svavari og Danna boðið en þeir voru bæði vottar og græjuðu allt saman að sögn Svavars. 36 Helgin 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.