Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.09.2021, Qupperneq 88

Fréttablaðið - 25.09.2021, Qupperneq 88
Ólafur Darri Ólafsson, leikari Hvað var það sem fékk þig upp á svið? Ég held ég geti ekki sagt að það sé einhver einn atburður, en frekar blanda af mörgu, til dæmis kennararnir mínir í grunnskóla. Svo er ég miðjubarn svo það er ákveðin athyglissýki líka. Seinna meir er það svo gleðin að vera listamaður sem gefur svo mikið til baka. Að vera listamaður er erfitt, því þú ert í flestum tilfellum að vinna með sjálfan þig og þú notar líkama þinn sem verkfæri, hvort sem þú ert leikari, tónlistarmaður eða dansari. Þetta getur líka oft verið vanþakklát vinna og ekki alltaf mikil veraldleg gæði sem fylgja henni, en hún gefur margfalt til baka. Að lokum heldur það að minnsta kosti mér við efnið, að fá að starfa við áhugamál mitt. Birna Hafstein er formaður Félags íslenskra leikara og sviðslistafólks. Félagið fagnar áttatíu ára afmæli í ár og segir Birna að þótt margt hafi áunnist á þeim tíma sé enn mikið verk óunnið. Félag íslenskra leikara og sviðslistafólks (FÍL) fagnar áttatíu ára stórafmæli í ár. Síðan félagið var stofnað hefur sviðslistasamfélagið á Íslandi vaxið til muna. Félagið var upphaflega stofnað í kringum leik- ara, en er í dag stærsta stéttarfélag sviðslistafólks á Íslandi. „Það er stórmerkilegt að lista- fólk hafi komið saman fyrir átta- tíu árum, þegar það var ekki einu sinni starfandi alvöru atvinnu- leikhús á landinu, og ákveðið að stofna stéttarfélag fyrir leikara,“ segir Birna Hafstein, formaður FÍL. „Þetta voru framsýnir einstakling- ar, ástsælir listamenn þjóðarinnar og frumkvöðlar á sínu sviði.“ Í dag eru bæði f lytjendur og höfundar innan raða félagsins – leikarar, dansarar, söngvarar, leik- myndahöfundar, búningahöfund- ar, danshöfundar og svo framvegis. „Þetta hefur undið upp á sig,“ segir Birna „Það er ósérhlífinni baráttu margra að þakka að félagið er það sem það er í dag og það er vert að þakka því fólki sem hefur tekið þátt í þessari baráttu á undanförnum áttatíu árum.“ Að eldast með reisn Talsverðar takmarkanir voru settar á sviðslistastarf í faraldrinum, sem Birna segir að hafi vegið þungt og varpað ljósi á erfiðleika stéttarinn- ar. Birna bendir á að stærstur hluti listamanna á Íslandi, hvort sem um er að ræða sviðslistafólk eða aðra listamenn, er sjálfstætt starfandi og búi við lítið starfsöryggi alla sína tíð. Lögmálið í starfsumhverfi lista- manna passi illa inn í þau kerfi sem við sem samfélag höfum búið til. „Þetta þarf að laga og við þurfum að styrkja stöðu þessara einstakl- inga og sjá til þess að listamenn hér á landi geti elst með reisn,“ segir hún. „Þetta eru búnir að vera ansi snúnir tímar en það er mikið að gerast og þegar við lítum fram á veginn þá er ég þokkalega vongóð,“ segir hún. „Það er oft þannig með listamenn að þeir búa til tækifæri upp úr vandamálum og í erfiðum aðstæðum. Það er ekki annað hægt en að taka að ofan fyrir listafólki á þessum tímum. Við eigum skemmtilegt og fram- sækið sviðslistaumhverfi á Íslandi,“ segir hún. „Það er auðvitað pólitísk ákvörðun að setja fjármagn í að byggja upp sviðslistir svo það má hrósa því sem vel hefur verið gert, en það þarf samt að styrkja stöðu þessa geira betur.“ Vannýttur vaxtarbroddur Félagið hefur í gegnum tíðina unnið ötullega að því að ef la hagsmuni sviðslistafólks og segir Birna að margt hafi áunnist þar á undan- förnum misserum. Hún lítur þó vonaraugum til stjórnvalda um að hægt verði að styrkja umgjörð um listir, menningu og skapandi greinar enn frekar, því þar liggi vaxtarbroddurinn í nýjum störfum til framtíðar. „Það hef ur farið lítið f y rir umfjöllun um listir, menningu og skapandi greinar í aðdraganda kosninganna,“ segir Birna. „Ég veit ekki hvort þetta sé áhugaleysi eða skortur á fagþekkingu stjórn- málanna á þessum málaf lokki, en hvort heldur sem er þá er klárt mál að þetta þarf að bæta og þess vegna er það áskorun okkar í menn- ingargeiranum til þeirra sem fara í að mynda nýja ríkisstjórn að setja þetta upp á borðið.“ „Það þarf að skilgreina þennan geira mun betur svo við vitum öll sem eitt um hvað við erum að tala og hvert við erum að stefna þannig að allir séu á sömu blaðsíðu,“ segir Birna. Sem dæmi bendir Birna á að Áttatíu ára barátta sviðslistafólks Birna varð formaður FÍL árið 2013 og hefur gegnt stöðunni síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Stjórn félagsins samankomin: Ólafur Darri Ólafsson, Eva Signý Berger, Halldóra Geirharðsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Katrín Gunnarsdóttir. Á myndina vantar Hjört J. Jónsson, Bjarna Thor Kristinsson og Hrafnhildi Theodórsdóttur framkvæmdastjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Arnar Tómas Valgeirsson arnartomas @frettabladid.is Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, dansari og danshöfundur Hvað var það sem fékk þig upp á svið? Það var nú ekki merki- legra en svo að ég var fjögurra ára gömul þegar vinkona mín byrjaði í dansi og ég elti hana. Sviðslistir hafa alltaf heillað mig frá því að ég var lítil og dansinn var sterkur til að byrja með. Síðan þá hefur leikhúsið eiginlega átt mig og maður hefur búið þar nánast allt sitt líf. Þetta er auðvitað mjög krefjandi en líka skapandi og skemmtilegt. En þetta er ekki eitthvað sem maður gerir nema maður hafi brennandi ástríðu fyrir þessu. Stjórn Bandalags íslenskra lista- manna, sem hún situr í, hafi til margra ára talað um að það þurfi að skipta upp ráðuneyti mennta- og menningarmála. Okkar dýrmætasti auður „Menntamálin eru svo svakalega umfangsmikil í ráðuneyti mennta- og menningarmála að menningin á það til að drukkna þar innanborðs, þótt vissulega hafi margt verið vel gert,“ segir Birna. „Við höfum talað fyrir því að listir, menning og skapandi greinar þurfi sína sértæku rödd við ríkisstjórnarborðið og að í því samhengi verði skoðað hvað hafi verið gert í okkar nágranna- löndum – að við stígum inn í fram- tíðina og uppfærum okkur þegar kemur að þessum geira, því þarna leynist okkar dýrmætasti auður, í skapandi fólki.“ Þar sem hjartað slær Birna hefur nú sinnt starfi formanns FÍL í um átta ár, en með fram því hefur hún sinnt ýmsum trúnaðar- störfum innan menningargeirans. Hún er forseti sviðslistasambands Íslands, situr í stjórn Bandalags íslenskra listamanna, stjórn Sam- taka skapandi greina og stjórnum og ráðum innan Íslandsstofu. Áður sat hún meðal annars í stjórnum Leik- listarsambands Íslands, Hörpu, í Þjóðleikhúsráði og var formaður sjálfstæðu leikhúsanna í nokkur ár og svo lengi mætti telja. „Það er þarna sem hjartað slær,“ segir hún. „Í umbótum og hags- munabaráttu fyrir sviðslistafólk og listafólk almennt, til hagsbóta fyrir samfélagið.“ Aðspurð um hvort ábyrgðin sem fylgi þessum stöðum hafi staðið í vegi fyrir verkefnum sem hún hefði annars tekið að sér, er svar Birnu: „Já og nei. Ég starfaði sem leikkona og fram- leiðandi í mörg ár og naut þess þá, en þegar ég eignaðist mörg börn á skömmum tíma þá tók ég þá ákvörð- un að hætta í leikhúsinu um tíma og menntaði mig í stjórn fyrirtækja,“ segir hún. „Starfið hefur verið það krefjandi og umfangsmikið að það hefur ekki verið tími fyrir neitt annað. Verk- efnin sem ég sinni núna eru fjöl- breytt og þeim fylgir mikil áskorun. Og meðan það er og það er gaman og ég geri eitthvað gagn af viti, þá er ég bara góð. En annars er aldrei að vita hvað maður tekur sér fyrir hendur þegar maður er orðin stór. Lífið er svo geggjað og ófyrirsjáanlegt. n 38 Helgin 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.