Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 92
Það sem ég hafði upphaf-
lega í hyggju kom ekki
náttúrulega til mín, en
þessar vatnslitateikningar
gerðu það.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
Ingigerðar K. Gísladóttur
Sigurður Hallgrímsson Guðbjörg Magnúsdóttir
Kristinn Hallgrímsson Helga Birna Björnsdóttir
Hulda Hallgrímsdóttir Ingi Þór Hermannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts
okkar ástkæra
Sigurðar Eggertssonar
fyrrum hljóðmeistara
Þjóðleikhússins,
Hvassaleiti 58.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar
Landspítala fyrir góða umönnun.
Elín Sigurvinsdóttir
Jónína Sigurðardóttir Rafn Ingólfsson
Sigrún Sigurðardóttir Helgi Daníelsson
Sigurður Sigurðsson Elín Ólafsdóttir
Sigurvin Sigurðsson Kristrún Daníelsdóttir
barnabörn, langafabörn og langalangafabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Dýrley Sigurðardóttir
(Dedda)
Flatahrauni 1, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 19. september sl.
á Landspítalanum, Fossvogi. Útförin fer
fram miðvikudaginn 29. september frá
Garðakirkju kl. 13.00. Hægt er að nálgast streymi á slóðinni
youtu.be/ARek5HjKIJw
Karl Danielsson Ragnheiður Jónsdóttir
Lára Danielsdóttir Sigurður Harðarson
Þórey Danielsdóttir
Reynir Danielsson Valgerður Sveinsdóttir
Anna Kathrina Næs
barnabörn og barnabarnabörn.
Margrét Bjarnadóttir opnar
sýninguna Veik um sumar, í Gall-
erí Kverk í dag.
arnartomas@frettabladid.is
Listakonan Margrét Bjarnadóttir opnar
sýningu sína Veik um sumar í Gallerí
Kverk í dag. Margrét hefur fengist við
ýmis listform í gegnum tíðina en verður
í þetta skipti með vatnslitaverk til sýnis.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég sýni
vatnslitateikningar, en ég hef ekki mikið
unnið með vatnsliti áður,“ segir Margrét.
„Þessi sýning hefur staðið til síðan í vor
þegar ég var beðin að vera með sýningu
og ég var með einhverjar hugmyndir
um hvað mig langaði að gera en ekkert
fastmótað. Ég hef mikið unnið með litað
gler upp á síðkastið og sá fyrir mér að
halda áfram að vinna með þann efnivið
í skúlptúrum. Svo er ég að verða fertug á
næstu dögum svo ég held að ég hafi séð
fyrir mér einhvers konar þungavigtar-
fertugs-sýningu.“
Þegar sumarið tók við veiktist Mar-
grét, sem hafði í fyrstu áhyggjur af að
hún væri komin með Covid og væri búin
að smita alla fjölskylduna, þótt síðar hafi
komið á daginn að svo var ekki.
„Ég fékk ansi mikinn kvíða í þessum
veikindum og byrjaði að vatnslita til að
róa sjálfa mig,“ segir hún. „Þetta var ein-
hvers konar náttúrulegt viðbragð til að
finna kvíðanum einhvern farveg, en ég
var ekki neitt að hugsa um það í sam-
hengi við þessa fyrirhuguðu sýningu.“
Tilfinningin leiddi
Eftir að hafa komið sér í gegnum veik-
indin með endalausum teikningum,
stóð skyndilega eftir sýningin sem
verður opnuð í dag.
„Það sem ég hafði upphaflega í hyggju
kom ekki náttúrulega til mín, en þessar
vatnslitateikningar gerðu það,“ segir
Margrét. „Maður stýrir þessu ekki alltaf,
því þetta smyglaði sér aðeins fram fyrir.“
Margrét segir sýninguna óhjákvæmi-
lega ansi tilvistarlega og fyrir vikið
kannski svolítið viðkvæma og ber-
skjaldaða.
„Það er einhver þráður sem maður
getur séð eftir á.“ „Ég vissi ekkert alltaf
af hverju ég var að teikna það sem ég var
að teikna. Ég ákvað það ekki beint, það
var miklu frekar tilfinning sem leiddi. En
stundum var ég líka að reyna að gefa mér
einhver verkefni: Teiknaðu gleraugu,
teiknaðu hurð – en eftir á þá er einhver
frásögn og ástand í þessu sem fólk getur
upplifað þegar það skoðar verkin.“ n
Vatnslitað í gegnum veikindin
Margrét hefur unnið með mörg listform í gegnum tíðina en er nú hugfangin af vatnslitum. MYND/AÐSEND
Sýningin er tilvistarleg og þar af leiðandi svolítið viðkvæm, segir Margrét.
1066 Haraldur harðráði fellur í orrustunni við Stafnfurðu-
bryggju.
1513 Vasco Núñez de Balboa sér Kyrrahafið frá vestur-
strönd Panama.
1850 Fyrsta heildarlöggjöf um erfðir gengur í gildi á Ís-
landi og samkvæmt henni skulu dætur njóta sama
réttar til arfs og synir.
1903 Íslandsbanki er settur á stofn.
1939 Bresk njósnaflugvél nauðlendir á Raufarhöfn.
1975 Ný Lagarfossvirkjun er vígð og tvöfaldast þá raf-
orkuframleiðsla í Austfirðingafjórðungi.
2000 Vala Flosadóttir hlýtur bronsverðlaun í stangar-
stökki á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu.
2009 Eldur kemur upp í Höfða í Reykjavík.
Merkisatburðir
42 Tímamót 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 25. september 2021 LAUGARDAGUR