Fréttablaðið - 25.09.2021, Síða 94
Magnús Ólafur Einarsson
lést föstudaginn 10. september sl.
Útför hans fer fram frá Garðakirkju
þriðjudaginn, 28. september kl. 13.00.
Aðstandendur
Móðir okkar og tengdamóðir,
Árnína Hildur
Sigmundsdóttir
Njarðarvöllum 6,
áður til heimilis að Brekkubraut 13,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, laugardaginn
18. september. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
föstudaginn 1. október kl. 13.
Sigrún Einarsdóttir Snorri S. Skúlason
Sigmundur Einarsson Margrét I. Kjartansdóttir
Inga Einarsdóttir Þórarinn E. Sveinsson
Valborg Einarsdóttir Stefán Sæmundsson
Valdemar Einarsson Sif Axelsdóttir
og fjölskyldur.
Móðir okkar,
Bergljót Ingólfsdóttir
Sunnuvegi 29, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 14. september.
Útförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
Vala Friðriksdóttir
Friðrik Friðriksson
Kristján Friðriksson
Kolbrún Friðriksdóttir
Bergljót Friðriksdóttir
og fjölskyldur.
Okkar ástkæra eiginkona,
móðir og tengdamóðir,
Ásdís Ásgeirsdóttir
lést í faðmi fjölskyldunnar á hjartadeild
Landspítalans við Hringbraut,
föstudaginn 3. september sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjartadeildar
Landspítalans, fyrir einstaka alúð og umhyggju.
Guðmundur Helgason
Friðrik Helgi Guðmundsson Rebekka Rún Oddgeirsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Alfred Ekenemchukwu Oduh
Fjörubraut 1228, Ásbrú,
varð bráðkvaddur á heimili
sínu, sunnudaginn 5. september.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimili
Baptistakirkjunnar í Reykjanesbæ, fimmtudaginn
30. september klukkan 13.00.
Victoria Mkechi Anazia
Philip Chidi Oduh Janet Oduh
Kamara Emmanuella Oduh
Ebuka Emmanuel Oduh
Solomon Okolie
Chukwudi Bianca Oduh
Olivia Philip, Bella Philip, Mitchelle Philip
Ástkær eiginmaður,
faðir, tengdafaðir og afi,
Óskar Harry Jónsson
Gerplustræti 16, Mosfellsbæ,
lést 18. september sl. á Landspítalanum
Fossvogi. Jarðsett verður í kyrrþey.
Margrét Jónsdóttir
Ingibjörg Óskarsdóttir Pétur Björnsson
Jón Harry Óskarsson Dóra Guðný Rósudóttir
Sigurðardóttir
Margrét Ósk Óskarsdóttir
Guðrún Anna Magnúsdóttir Hrefna Huld Helgadóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigríður Hanna
Gunnarsdóttir
sérkennari,
Rúgakri 3a, Garðabæ,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann
16. september, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju
í Garðabæ, miðvikudaginn 29. september klukkan 13.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Dagbjartar Vilhjálmsdóttur hjá R.b.st.nr. 8 Rannveig IOOF.
Kt. 620193-2679, banki: 327-13-4678.
Sverrir Gunnarsson
Lára Áslaug Sverrisdóttir Jón Höskuldsson
Davíð Björn Pálsson
Gunnar Sverrisson Þórey Ólafsdóttir
Sverrir Geir Gunnarsson Stefanía Theodórsdóttir
Sigríður Thea Sverrisdóttir
Halldór Árni Gunnarsson Embla Rún Björnsdóttir
Þórunn Hanna Gunnarsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Sveinsson
skipstjóri,
lést miðvikudaginn 15. september á
Hrafnistu, Laugarási. Útför hans fer fram
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
29. september klukkan 13.00.
Valgerður Hjartardóttir
Sigríður Kristjánsdóttir Friðrik Björgvinsson
Þorbjörg Ísafold Kristjánsdóttir
Elína Hrund Kristjánsdóttir
Karítas Kristjánsdóttir Ingólfur Hartvigsson
afa- og langafabörn.
arnartomas@frettabladid.is
„Það verður svaka fjör í Fríkirkjunni
eftir hádegi á morgun,“ segir Lilja Egg-
ertsdóttir söngkona í tríóinu Skel, sem
verður þar með útgáfutónleika kl. 13 í
dag. Áhersla dagskrárinnar er á lög sem
Eggert Thorberg Kjartansson, faðir Lilju,
samdi og sendi inn í danslagakeppni
Skemmtiklúbbs templara árið 1953.
„Þetta voru ein fimm lög sem hann
sendi inn, en nóturnar glötuðust,“ segir
Lilja. „Fyrir nokkrum árum síðan þá
söng hann þau svo inn á símann minn
því hann mundi þau ennþá. Ef hann
hefði ekki munað eftir þeim hefðu þau
alveg glatast.“
Eins og Fréttablaðið greindi frá fór
fram Karolinafund-fjáröf lun á plötu
með lögunum, sem bar heitið Í kvöld
er allt svo undarlega hljótt. Fjáröf l-
unin tókst og platan kom út í sumar, en
þar sem ekki hefur verið umhverfi til
að fagna fyrr en nú er því um síðbúið
útgáfuhóf að ræða.
Ásamt Lilju skipa tríóið Kristín
Sigurðardóttir og Særún Rúnudóttir,
en þeim til halds og trausts verður vel
mönnuð hljómsveit skipuð einvala liði
djassara.
„Þetta eru auðvitað bara fimm lög svo
við munum aðeins fylla upp í með uppá-
haldslögum pabba,“ segir Lilja. „Það eru
bara klassískir samtímaslagarar á borð
við In the Mood eftir Glenn Miller og
Take the A Train eftir Duke Ellington.
Ingrid Örk Kjartansdóttir barnabarn
Eggerts er líka söngkona og mun syngja
með okkur og taka vel valda djassperlu.“
Tónleikarnir hefjast kl. 13 og aðgangs-
eyrir er 3.000 krónur. ■
Endurheimt lög og djassperlur
arnartomas@frettabladid.is
Borgarbókasafnið í Árbæ býður potta-
plöntufólk velkomið á sunnudag með
tilheyrandi plöntur, græðlinga og fræ til
að skiptast á við aðra ræktendur. Inni á
safninu verður pláss fyrir inniblómin,
en á svölunum verður hægt að vera með
garðplöntur.
„Hugmyndin að baki þessum við-
burðum er eiginlega bara tilkomin
út frá auknum áhuga í samfélaginu á
plöntum,“ segir Katrín Guðmunds-
dóttir hjá Borgarbókasafninu í Árbæ.
„Svo hafði ég reyndar heyrt af svipuðum
viðburði á bókasafni í Svíþjóð, svo mér
fannst tilvalið að herma eftir.“
Katrín hvetur lengra og skemur
komna að kíkja við til að kynnast og
skiptast á plöntum.
„Svona viðburðir eru venjulega vel
sóttir, og fólk gerir iðulega góð skipti. Svo
er líka hægt að mæta og gefa ef maður
vill losa sig við eitthvað,“ segir Katrín. ■
Plöntuskipti í Árbænum
Síðbúnir út-
gáfutónleikar
tríósins Skeljar
fara fram í
Fríkirkjunni í
dag.
Skel skipa
Kristín
Sigurðardóttir,
Lilja Eggerts-
dóttir og
Særún Rúnu-
dóttir.
Pottaplöntumanía Íslendinga
stendur enn yfir.
LAUGARDAGUR 25. september 2021 Tímamót 44FRÉTTABLAÐIÐ