Fréttablaðið - 25.09.2021, Side 112
B
ra
n
d
e
n
b
u
rg
|
s
ía
ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.690 KR. EF ÞÚ SÆKIR
62 Lífið 25. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Sænska stórstjarnan Noomi
Rapace fann sálufélaga í leik-
stjóranum Valdimar Jóhanns-
syni og gat ekki annað en
þegið aðalhlutverkið í frum-
raun hans, þótt Dýrið sé mun
smærra í sniðum en hún á
að venjast, enda fékk hún
kærkomið tækifæri til þess
að styrkja djúpstæð tengsl sín
við Ísland.
toti@frettabladid.is
„Þetta er ég. Þetta er ég að finna
rætur mínar aftur. Þannig að mér
fannst næstum eins og ég hefði
ekkert val. Þegar ég las handritið þá
fannst mér ég vera búin að vera að
bíða eftir einmitt þessu lengur en
ég get munað og mér finnst Sjón og
Valdimar hafa boðið mér í ferðalag,“
segir sænska kvikmyndastjarnan
Noomi Rapace um kvikmyndina
Dýrið og ekki síst aðalpersónu
hennar, sauðfjárbóndann Maríu.
Dýrið, sem var frumsýnd á
Íslandi í gær, er frumraun leik-
stjórans Valdimars Jóhannssonar,
gerð eftir grunnhugmynd hans og
handriti eftir Sjón. Myndin gerði
stormandi lukku á kvikmynda-
hátíðinni í Cann es, gagnrýnendur
víða um heim hafa ausið hana lofi
og hún hefur verið nefnd sem líkleg
til stórræða á næstu Óskarsverð-
launahátíð.
Eitthvað sem kemur Noomi ekki
á óvart, þótt bandaríska teymið
hennar hafi rekið upp stór augu
þegar hún sagði þeim að hún „ætl-
aði að fara til Íslands að gera litla,
íslenska mynd sem heitir Lamb, sem
væri lítil framleiðsla og engir pen-
ingar í þessu,“ segir Noomi þegar
Fréttablaðið truflar hana við tökur á
vestraþáttunum Django í Rúmeníu.
Falleg skepna fæðist
„Nei, ég meina, ég vissi alltaf að við
hefðum gert eitthvað of boðslega
djúpstætt, frumlegt, persónulegt
og einkennilega óhugnanlega fag-
urt,“ segir Noomi og hlær. „Þannig
að ég vissi alltaf að við hefðum fætt
skepnu, fallega skepnu,“ heldur leik-
konan áfram og hláturinn verður
enn innilegri.
„Þetta kemur mér því ekki á óvart
en ég er kannski svolítið undarandi
á hversu margir virðist umfaðma
myndina, en mér finnst það hins
vegar hafa verið yfirþyrmandi
hversu breiður hópurinn er sem
hefur tekið myndinni okkar fagn-
andi og ég er mjög þakklát og hissa,“
segir Noomi og bætir við að viðtök-
urnar fylli hana auðmýkt.
„Ég kom til bara til Íslands til þess
að fæða Maríu og stíga inn í heim
Valdimars og Sjóns. Og ég lít bara
á allt sem hefur komið í kjölfarið
sem stóra gjöf til mín. Upplifunin
ein og sér var nóg var nóg fyrir mig,
þannig að ég er mjög þakklát og vil
ekki einu sinni hugsa út í hversu stór
þessi mynd gæti orðið. Allt er bara
plús núna og mér finnst við vera í
klikkaðri og fallegri vegferð saman.“
Íslenskur happafengur
Valdimar hefur áður upplýst í við-
tali við Fréttablaðið að hann hafi
séð Noomi fyrir sér sem Maríu
snemma í framleiðsluferlinu, en
hafi vitaskuld haft áhyggjur af því
að hún hefði hvorki tíma né áhuga á
þessu litla verkefni á Íslandi.
„Nei, ég er svo auðveld,“ segir
Noomi og skellihlær áður en hún
heldur áfram á alvarlegri nótum.
„En það er fyndið og gerist stund-
um, mjög sjaldan, að þú finnur
hvernig allt í líkama þínum segir
þér að eitthvað sé rétt. Ég tengdi
svo sterkt við Maríu, sorg hennar,
missi og þrár, þannig að hún yfirtók
Nomi gersamlega heilt sumar,“ segir
leikkonan, sem rann saman við per-
sónuna þegar á hólminn var komið
á Íslandi.
„Við Valdimar gengum síðan
saman með Maríu. Þetta var svo
mikil samvinna og á hverjum degi
fannst mér að við værum að upp-
götva nýjan sannleika saman. Mig
langar gjarnan að vinna aftur með
Valdimar og við höfum verið að
ræða dálítið saman um hvað við
getum gert. Mér finnst hann vera
fjölskyldan mín. Hann er bróðir
minn. Hann er systir mín,“ segir
Noomi og hlær.
„Og ég og Sjón erum að
vinna saman að verk-
efni þannig að ég er
mjög, mjög þakklát og
finnst ég hafa kynnst
tveimur mönnum sem
ég mun halda áfram að
starfa með.“
Dýrsleg tenging
Noomi tók hlut-
verkinu í Dýrinu
ekki síst fagnandi
þar sem römm
er u þau stjúp-
tengsl sem tengja
ha na Ísla nd i.
„Ég bara elska
Ísland. Ísland er
hjartað mitt. Mér fannst ég alltaf
tengdari Íslandi en Svíþjóð, eins
undarlega og það hljómar,“ segir
Noomi sem bjó hérna þegar hún
var fimm til átta ára.
Eftir að fjölskyldan flutti aftur til
Svíþjóðar eyddi hún öllum sumrum
á Íslandi þangað til hún varð fjór-
tán ára. „Mér finnst ég hafa fundið
hjarta mitt og sál á Íslandi sem barn.
Mig langar að koma oftar til Íslands
og mig langar að byggja mér hús á
Íslandi. Þannig að Dýrið var ekki
aðeins bíómynd fyrir mér heldur ég
að tengjast aftur hluta af sjálfri mér
sem ég vil hafa meira í lífi mínu.“
Ólíkar persónur í einni konu
Hilmir Snær Guðnason leikur
eiginmann Maríu og Björn Hlynur
Haraldsson kemur síðan einnig að
málum sem mágur hennar, en Dýrið
hverfist um afdrifaríkar afleiðingar
þess að hjónin ákveða að ættleiða
lamb, ef svo má að orði komast.
„Þeir voru magnaðir. Við vorum
eins og fjölskylda og ég hálf partinn
gleymdi að við vorum að leika per-
sónur,“ segir Noomi um íslensku
mótleikarana. „Þetta var eitt af
þessum himnesku verkefnum þar
sem persóna og manneskja runnu
saman í eitt. Mér fannst þetta svo
auðvelt þannig að þetta varð aldr-
ei þvingað. Þetta var eins og við
værum að dansa saman. Þetta var
svo flæðandi og mikil leikgleði.“
Noomi braust til heimsfrægðar
í krafti persónu Lisbeth Salander
sem hún gerði ógleymanleg skil í
þríleiknum kenndum við Karla
sem hata konur og aðspurð
segir hún stúlkuna með dreka-
tattúið enn dvelja með sér.
„Málið er að allar persónur
sem ég hef leikið lifa enn
innra með mér. Vegna þess að
þær eru allar mismunandi
útgáfur af mér. Þannig
að Lisbeth er klár-
lega enn með mér
vegna þess að hún
var alltaf ég.“ ■
Noomi Rapace fæddi
fallega skepnu á Íslandi
Noomi Rapace
fann það strax
í hverri taug
líkama síns
að Dýrið væri
mynd sem hún
einfadlega yrði
að leika í.
MYND/SÆRÚN
NORÉN
Noomi tengdi
svo sterk
við Maríu að
persóna og
leikkona runnu
saman og voru
sem eitt á
meðan á tökum
Dýrsins stóð.
MYND/AÐSEND
Noomi sló
hressilega í
gegn sem Lis-
beth Salander.