Morgunblaðið - 22.04.2021, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 2. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 93. tölublað . 109. árgangur .
KOM Á ÓVART
AÐ VERA VALINN
Í LANDSLIÐIÐ
HRAUNÁIN
Á FULLRI FERÐ
FYRSTA OG
SÍÐASTA PLATA
DODDA
EKKI DREGUR ÚR FLÆÐI 4 ǼSKUDRAUMUR 28ELVAR ÁSGEIRSSON 26
Þörf er á fleiri golfvöllum á höfuð-
borgarsvæðinu á næstu árum til að
anna eftirspurn. Agnar Már Jóns-
son, framkvæmdastjóri Golfklúbbs
Kópavogs og Garðabæjar, áætlar
að nýjan 18 holu golfvöll þurfi á
sjö ára fresti til að anna eftir-
spurn.
Agnar segir brýnt að golf-
klúbbar og sveitarfélög hugi að
frekari mannvirkjagerð og hefjast
verði handa sem allra fyrst, annars
stefni í óefni og nýliðun í íþróttinni
verði þrautin þyngri. Hann áætlar
að um þúsund manns séu nú á bið-
listum eftir aðild að golfklúbbum á
höfuðborgarsvæðinu.
Á síðustu árum hefur gróska
verið í golfinu og iðkendum fjölgað
hratt, en eftir að kórónufarald-
urinn skall á fyrir rúmu ári hefur
orðið sprenging í íþróttinni, að
sögn Agnars. Skýringarnar segir
hann m.a. öflugt unglingastarf,
rúman tíma fólks í faraldrinum og
að færri leiki golf í útlöndum þessa
mánuðina. Hann segir að golf sé á
margan hátt sniðið að sóttvörnum
þar sem aðgangi að útiveru sé
stýrt, aldrei séu fleiri en fjórir í
hópi og auðvelt að halda nauðsyn-
legri fjarlægð. »10
18 holu golfvöll
þarf á sjö ára fresti
- Biðlistar eftir aðild að golfklúbbum
Morgunblaðið/Hari
Sumar Leikið á golfvelli GKG, fugl-
ar eru vinsælir meðal kylfinga.
Vetur samkomutakmarkana, veirufregna og
fjarfunda er liðinn og við tekur sumar sem
landsmenn vona flestir að muni einkennast af
frelsi og samveru. Þessar mæðgur tóku þó
forskot á sæluna á dögunum, þegar enn var
tæknilega vetur, og settust saman fyrir utan
daga enda verið skaplegt þó enn verði vart
við stöku él. Ekki er víst að sólin láti sjá sig í
dag, spáð er þungbúnu veðri um land allt.
hið sögufræga Mokka-kaffi í miðbænum,
drukku kakó og gæddu sér á vöfflum. Á höf-
uðborgarsvæðinu hefur veðrið undanfarna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðilegt sumar!
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sveitarfélagið Árborg fékk 8.895
umsóknir um 52 lóðir sem auglýstar
voru í öðrum áfanga nýs hverfis,
Björkurstykkis, á Selfossi. Um 120
íbúðir verða á þessum lóðum. Ásókn
í lóðir á Selfossi er meiri en nokkru
sinni og útlit fyrir áframhaldandi
fjölgun íbúa.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri í Árborg, segir að einstakling-
ar og fyrirtæki sæki um lóðirnar.
Hann telur að einhver byggingarfyr-
irtæki hafi sótt um allar lóðirnar á
nokkrum kennitölum en tekur fram
að það breyti ekki heildarmyndinni.
Eftirspurnin sé mikil.
„Sem betur fer höfum við byggt
upp rafrænt ferli fyrir umsóknir og
útdrátt,“ segir Gísli Halldór og
bendir á að það auðveldi mjög úr-
vinnsluna. Í byrjun maí verður varp-
að hlutkesti um það hvaða umsækj-
endur fái þessar eftirsóttu lóðir. Það
er gert í excelskjali og hefur fulltrúi
sýslumanns eftirlit með því.
Spurður hvort eftirspurnin verði
ekki til þess að framboð á lóðum
verði aukið, segir Gísli Halldór að
skipulagt hafi verið stórt hverfi í
framhaldi af þeim hluta sem nú var
auglýstur. Þar geti risið um þúsund
íbúðir á næstu tíu árum. Hins vegar
stilli bærinn undirbúningi og gatna-
gerð við eftirspurn, bæði hjá bænum
og einkaaðilum sem séu að undirbúa
íbúðahverfi með um 2.500 íbúðum á
nokkrum stöðum á Selfossi.
Flóðgáttir opnast
„Það er eins og allar flóðgáttir hafi
opnast. Við sjáum fram á að íbúum
fjölgi um 7% á þessu ári en um 10-
11% á ári á næstu árum,“ segir Gísli.
Kennsla hefst í nýjum skóla í
Björkurstykki í haust, í bráðabirgða-
húsnæði, og bygging varanlegs hús-
næðis hefst á næsta ári. Segir Gísli
að nú þurfi að huga að staðsetningu
og byggingu næsta skóla sem verði
tilbúinn eftir fjögur ár.
Nærri níu þúsund sóttu
um 52 lóðir á Selfossi
- Útlit fyrir áframhaldandi fjölgun íbúa í Árborg á næstunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Selfoss Húsin þjóta upp á Selfossi
og fólkið kemur í kjölfarið.