Morgunblaðið - 22.04.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Frumvarp sem ríkisstjórnin hefur
lagt fram í nafni heilbrigðisráðherra,
um breytingar á sóttvarnalögum, var
enn til afgreiðslu í velferðarnefnd
þegar Morgunblaðið fór í prentun í
gærkvöld. Vegna þessa var þingfundi
frestað til miðnættis en samkvæmt
heimildum blaðsins var ekki víst
hvort samstaða næðist innan nefnd-
arinnar um breytingar á frumvarp-
inu.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra hafði sagt að hún byggist
við meirihlutastuðningi þingsins við
frumvarp ríkisstjórnarinnar, enda
hefði þingið verið samstiga í sótt-
varnaaðgerðum til þessa.
Stjórnarandstaðan hefur hins veg-
ar gagnrýnt frumvarpið og talið það
ekki veita næga lagastoð fyrir harðari
aðgerðum. Til að mynda lagði þing-
flokkur Flokks fólksins í gær fram
breytingartillögur á frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar þess efnis að ferða-
menn skyldu dvelja í sóttvarnahúsi
eigi skemur en í sjö daga frá komu til
landsins. Þá hafa nokkrir þingmenn
Sjálfstæðisflokks sett fyrirvara við
afgreiðslu frumvarpsins.
Í umræðum um frumvarpið sagði
Sigríður Á. Andersen, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, að fá rök væru fyr-
ir hörðum sóttvarnaaðgerðum vegna
þess hve vel gengur að bólusetja við
veirunni hér á landi og að nýgengi
smita á landamærunum væri lágt.
Ríkisstjórnin leggur til að aðgerðir
á landamærunum verði hertar hjá
þeim löndum þar sem nýgengi smita
er meira en 1.000 á hverja 100 þúsund
íbúa en þar sem nýgengið er meira en
750 smit á hverja 100 þúsund íbúa
verður almenna reglan að ferðamenn
fari í sóttvarnahús. Þó verður hægt
að sækja um undanþágu frá reglunni.
Afgreiðsla dróst á langinn
- Sóttvarnalög rædd fram á nótt á þingi - Hertar aðgerðir
Morgunblaðið/Eggert
Sóttvarnalög Afgreiðsla frum-
varpsins dróst á langinn í gærkvöld.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, og Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra lögðu í gær
hornstein að Húsi íslenskunnar við
Arngrímsgötu í Reykjavík. Þetta
var einn þeirra atburða sem efnt
var til í gær, 21. apríl, síðasta vetr-
ardag, í tilefni af því að liðin voru
50 ár frá því að Íslendingar endur-
heimtu handrit sín frá Dönum.
Hús íslenskunnar verður tilbúið á
næsta ári. Þar verður aðstaða fyrir
fjölbreytta starfsemi Stofnunar
Árna Magnússonar og Háskóla Ís-
lands á sviði íslenskra fræða. Í önd-
vegi verður sýning á handritunum
góðu og svo aðstaða fyrir rann-
sóknir og kennslu.
Í ræðu sinni vék menntamála-
ráðherra m.a. að eddukvæðunum
sem væru uppspretta hugmynda og
ímyndunar, eiginleika sem hefðu
aldrei verið mikilvægari en nú.
„Framtíðarhagkerfið mun ráðast
að miklu leyti af þessum þáttum og
það er stórkostlegt að menningar-
arfur þjóðarinnar rími eins og vel
og raun ber vitni við framtíðina,“
sagði Lilja. sbs@mbl.is »14
Þess var víða minnst í gær að hálf öld er liðin frá heimkomu handritanna
Hornsteinn
að Húsi ís-
lenskunnar
Morgunblaðið/Eggert
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Tveir úr stjórn Íslandspósts töldu
brýnt að gjaldskrárlækkun sem
gripið var til í janúar 2020 yrði dreg-
in til baka og lögð fram að nýju fyrir
stjórn, þar sem hún hefði verið and-
stæð lögum um póstþjónustu. Meiri-
hluti stjórnar bókaði þvert á móti að
með gjaldskrárlækkuninni hefði ver-
ið brugðist við lögbundinni kröfu um
sömu gjaldskrá innan alþjónustu um
allt land.
Var bókun þessa efnis lögð fram á
stjórnarfundi Póstsins sem haldinn
var 18. desember 2020. Í fundar-
gerðinni, sem Morgunblaðið hefur
undir höndum, kemur fram að Eirík-
ur H. Hauksson og Thomas Möller
telji að gjaldskrárlækkun sem ráðist
var í um áramótin 2019/2020 hafi
verið niðurgreidd ríkisstarfsemi og
aðför að starfsemi þeirra fyrirtækja
á landsbyggðinni sem boðið hafa upp
á sambærilega þjónustu árum sam-
an í flutningum og verslun.
Í bókun Eiríks og Thomasar segir
meðal annars:
„Það liggur fyrir að umtalsverð
gjaldskrárlækkun á pakkasending-
um innanlands sem tók gildi í byrjun
janúar 2020 var ákveðin án umfjöll-
unar í stjórn og án heimildar stjórn-
ar Íslandspósts eins og kveðið er á
um í samþykktum félagsins. Ofan-
greind gjaldskrárlækkun frá janúar
2020 hefur leitt til mjög mikils tekju-
taps hjá Íslandspósti á árinu 2020 og
valdið röskun á samkeppnisstöðu
einkarekinna fyrirtækja í innan-
landsflutningum og smávöruverslun
á landsbyggðinni.“
Ekki kvað við sama tón hjá meiri-
hluta stjórnar, þar á meðal formanni,
sem taldi að með gjaldskrárbreyt-
ingunni hefði á lögmætan hátt verið
brugðist við kröfu 2. mgr. 17. gr.
póstlaga um að sama gjaldskrá gilti
innan alþjónustu um allt land. Kom
sú bókun frá Bjarna Jónssyni, for-
manni stjórnar, Auði Björk Guð-
mundsdóttur og Jónínu Björk Ósk-
arsdóttur.
Í janúar 2020 hóf Íslandspóstur að
miða við eitt gjaldsvæði í stað fjög-
urra í innlendum pakkasendingum
upp að 10 kg, sem hafði í för með sér
að verð lækkaði mikið.
Birgir Jónsson var framkvæmda-
stjóri Póstsins þegar breytingarnar
voru gerðar og hefur stjórn félagsins
gagnrýnt hann fyrir að hafa ekki
borið lækkunina undir stjórn.
Í stjórnarfundargerð Íslandspósts
frá nóvember 2019 kom fram að
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra hefði fallist á að ríkissjóður
bætti fyrirtækinu alþjónustubyrði
vegna ársins 2020 að fjárhæð 490
milljónir króna.
Var það tilkomið vegna ákvæðis í
nýjum lögum um póstþjónustu sem
kveður á um að sama verð skuli vera
á alþjónustu um allt land en verð
víða á landsbyggðinni var þá lækkað
niður í verð sem gilti á höfuðborgar-
svæðinu.
Minnihlutinn á móti gjaldskrárlækkun
- Tveir stjórnarmenn Íslandspósts lögðust gegn gjaldskrárlækkun á stjórnarfundi í desember - Sögðu
að gjaldskrárlækkun væri niðurgreidd ríkisstarfsemi og andstæð lögum - Meirihluti ekki á sama máli
Morgunblaðið/Hari
Pósturinn Gjaldskrárlækkanir sem tóku gildi í janúar 2020 voru gagn-
rýndar harðlega af tveimur stjórnarmönnum Póstsins á stjórnarfundi.