Morgunblaðið - 22.04.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þrír einstaklingar hafa áhuga á að
byggja efri hluta Eystri-Rangár
upp sem laxveiðiá og jafnframt
þjónustu við veiðimenn. Hafa þeir
óskað eftir viðræðum við Rangár-
þing ytra sem á stóran hluta lands
að ánni á þessum kafla og ýmsa aðra
hagsmunaaðila.
„Okkur líst vel á þetta, þeir eru
með spennandi áform,“ segir Ágúst
Sigurðsson, sveitarstjóri Rang-
árþings ytra, um viðbrögð sveitar-
stjórnar.
Er á byrjunarstigi
Beiðni Lýðs Skúlasonar, Guð-
mundar Inga Hjartarsonar og Finns
Björns Harðarsonar, um viðræður
við sveitarfélagið um langtímaleigu
eða eftir atvikum kaup á landi sem
liggur að efri hluta Eystri-Rangár
var tekin fyrir á fundi sveitarstjórnar
Rangárþings ytra fyrir skömmu.
Sveitarfélagið á jarðirnar Árbæ og
Foss sem eru vestan megin ár og
hlut í jörðum sem eru austan megin.
Lýður segir áformin á byrjunar-
stigi og verkefnið ekki komið á það
stig að hægt sé að segja nánar frá
því.
Eystri-Rangá er laxgeng upp að
Tungufossi og eru veiðifélög um
veiðihlunnindin þaðan og til sjávar.
Grundvallast veiðin á sleppingum
gönguseiða sem skila sér síðan að
hluta aftur í ána úr hafbeit. Eystri-
Rangá er langaflahæsta laxveiðiá
landsins. Þar veiddust yfir níu þús-
und laxar á síðasta ári.
Jákvæð áhrif á alla veiði
Þremenningarnir hafa áform um
að gera Tungufoss laxgengan og
hefja ræktun á laxastofni og sleppa
gönguseiðum þar ofan við. Ágúst
segir að sveitarfélagið myndi leigja
þeim aðgang að ánni í ákveðinn
tíma, á meðan starfsemin væri
byggð upp, og einnig lóðir undir
nauðsynlega uppbyggingu, svo sem
veiðihótel.
Tekur hann fram að mikil vinna
sé eftir hjá einstaklingunum sem
ætli að ráðast í þetta verk, til dæmis
að fá leyfi til nauðsynlegra fram-
kvæmda.
Segir sveitarstjórinn að ræktun í
efri hluta árinnar muni að sögn
fróðra manna hafa jákvæð áhrif á
veiði í allri ánni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Enn einn laxinn Eystri-Rangá er langaflahæsta laxveiðiá landsins og þar var sett nýtt met á síðasta ári.
Vilja rækta upp efri hluta
Eystri-Rangár til laxveiða
- Sveitarfélagið er jákvætt gagnvart áformum áhugafólks
Engar umsóknir bárust frá útgerðum
íslenskra skipa um leyfi til að veiða
Austur-Atlantshafs-bláuggatúnfisk á
þessu ári, en umsóknarfrestur rann
út 15. apríl. Heimildir íslenskra skipa
til veiða á túnfiski hafa aukist síðustu
ár og er kvóti Íslendinga í ár 225 tonn,
en til samanburðar var hann tæplega
44 tonn 2016, samkvæmt upplýsing-
um frá sjávarútvegsráðuneytinu.
Íslensk skip hafa ekki stundað
beinar veiðar á túnfiski síðustu ár, en
árin 2014-2016 sótti Jóhanna Gísla-
dóttir GK, skip Vísis hf. í Grindavík, á
túnfiskmið djúpt suður af landinu.
2014 veiddi skipið 122 fiska eða 22,2
tonn úr sjó, 2015 veiddust 155 fiskar
eða 27 tonn og 2016 veiddust 17 fiskar
eða 3,1 tonn. Nokkrir túnfiskar komu
sem meðafli á makrílveiðum í fyrra og
heldur fleiri árin 2015-2017.
áij@mbl.is
Ekki áhugi á
túnfiskveiðum
- Beinar veiðar síðast stundaðar 2016
Morgunblaðið/Golli
Túnfiskur Landað úr japönsku skipi
í Reykjavík fyrir nokkrum árum.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hraun var í gær á fleygiferð suður
ónefndan dal austur af þar sem
fyrstu gígarnir opnuðust í Geld-
ingadölum. Það stefndi í átt að Nátt-
haga en átti eftir langan spotta og
töluverðan þröskuld fram á dal-
brúnina.
Dr. Þorvaldur Þórðarson, prófess-
or í eldfjallafræði við HÍ, var við
gosstöðvarnar síðdegis í gær. Hann
sagði að hrauntotan sem rann í átt-
ina að Meradölum hefði náð niður í
gilskorninginn en stöðvast þar.
„Það er heilmikil ferð á hraunánni
úr gígunum sem mynduðust 13. apríl
og inn í þennan ónefnda dal. Hallinn
er til suðurs og landið stendur lægra
þarna fyrir sunnan. Þegar hraun-
flæðið beinist í suður hættir flæðið í
átt að Meradölum. Það hraun hefur
kólnað og er frekar orðið fyrirstaða
og beinir hraunstraumnum í suður í
augnablikinu,“ sagði Þorvaldur.
Hann telur að það breytist ekki fyrr
en dalverpið sunnan við fyllist.
Hraunið mun líklega fylla dalverpið í
áttina að Stóra-Hrúti.
Kólnar mun hægar í rásinni
„Það er ákveðin breyting núna.
Skorpa er að myndast á hraunánni
og hún smátt og smátt að lokast. Þá
breytist hitabúskapurinn í flutnings-
kerfinu. Nú kólnar hraunið um 100-
200 gráður á hvern kílómetra og
myndar úfið hraunið eins og í þess-
um nafnlausa dal. Renni hraunið í
lokaðri rás kólnar það um minna en
0,1 gráðu á hvern kílómetra og getur
farið mjög langt. Hraun í lokaðri rás
flæðir betur og lengra. Lengstu
hraun á jörðinni einkennast af svona
vel einangruðum hraunrásum,“
sagði Þorvaldur. Hann minnti á að
Þjórsárhraunið, lengsta hraun á Ís-
landi, væri um 140 km langt.
Þorvaldur sagði að hraunið þyrfti
að hækka sig töluvert til að ná fram
af brúninni niður í Nátthaga. Það
var í gær 5-6 metra þykkt og þarf
líklega að hækka sig um annað eins.
Engu að síður var hraunið farið að
klifra upp hallann og komið töluvert
upp í hlíðina. Þorvaldi sýndist ekk-
ert draga úr hraunflæðinu. Það var
eins og flæðið úr næstsyðstu gíg-
unum væri að aukast fremur en hitt.
„Síðan við komum í dag hefur
hraunflæðið úr þeim aukist töluvert
og eins sprengivirknin. Hraunslett-
urnar fara töluvert hærra upp í loft-
ið en þær gerðu,“ sagði Þorvaldur.
Hann sagði að hraun flæddi líka inn í
Geldingadali. Þótt ytra byrði
hraunsins þar hafi kólnað þá sé það
allt glóandi hið innra og á hægri
hreyfingu.
Hraunáin virðist geta verið
að breytast í lokaða rás
- Lengstu hraun á jörðinni einkennast af lokuðum rásum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eldgos Hraunið er farið að teygja sig suður eftir nafnlausa dalnum. Dökka línan í hlíðinni til hægri er gönguleið A.
Nýleg eldgos á Íslandi
Eyjafjalla-
jökull 2010
Fimmvörðuháls
2010
Fagradalsfjall
18. apríl 2021
Hekla 2000
Holuhraun
2014-2015
Ár Lengd eldgoss Flatarmál og rúmmál hrauns
Hekla 2000 12 dagar 15 km2 0,095 km3
Fimmvörðuháls 2010 23 dagar 1,3 km2 0,02 km3
Eyjafjallajökull 2010 Um 20 dagar 0,5 km2 0,023 km3
Holuhraun 2014-2015 180 dagar 84 km2 1,5 km3
Fagradalsfjall 2021 30 dagar 0,9 km2 0,014 km3
Heimild: Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands
2 km
GRINDAVÍK