Morgunblaðið - 22.04.2021, Side 6

Morgunblaðið - 22.04.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021 GLEÐILEGT SUMAR! Bobs Plush Verð: 6.995.- Stærðir: 36 - 40 Flexpadrille 3.0 Verð: 9.995.- Stærðir: 36 - 41/ 2 litir On the Go Dreamy Verð: 11.995.- Stærðir: 36 - 41 Cleo Bewitch Verð: 8.995.- Stærðir: 36 - 41 SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS SKECHERS withMemory Foam withMemory Foam with Goga Mat withMemory Foam Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vonast er til að ný göngu- og reiðbrú, sem Landsvirkjun er að gera í sam- vinnu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Rangárþing ytra, yfir farveg Þjórsár skammt ofan við Þjófafoss, verði tilbúin til notkunar seinni hluta júnímánaðar. Við það tengjast saman göngu- og reiðleiðir beggja vegna ár- innar og betra aðgengi fæst að Búr- fellsskógi. Brúin verður lokuð fyrir umferð ökutækja en er hönnuð þann- ig að björgunarsveitir eða aðrir við- bragðsaðilar geta nýtt hana í neyð- artilvikum. Undirstöður brúarinnar voru steyptar í haust og nú er búið að setja upp stálbitana sem bera brúna. Er verið að herða samsetningar á stálinu og ganga frá því. Jafnframt er verið að hefjast handa við að skrúfa saman límtrésbitana sem bera uppi brúar- gólf og handriðspósta. Það er gert í einingum og verða þær settar upp á stálbitana jafnóðum og þær verða til- búnar. Ístak er aðalverktaki við fram- kvæmdina. Handrið sett saman Björn Halldórsson, verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun, segir að smíði brú- arinnar hafi gengið samkvæmt áætl- un, eftir að framkvæmdir hófust í haust. Veturinn hefur verið mildur en framkvæmdir lágu niðri frá áramót- um til páska, á meðan stálbitarnir voru smíðaðir úti í Póllandi. Vonast Björn til að hægt verði að taka brúna í notkun seinni hluta júní- mánaðar en tekur fram að það ráðist þó af tíðarfari og vorflóðum. Ef hleypa þarf vatni á farveginn sé ekki hægt að vera með tæki undir brúnni á meðan vatnið flæðir. Þegar lokið verður við að setja handriðið upp og klæða brúargólfið með tvöfaldri timburklæðningu tekur við lokafrágangur sem felur meðal annars í sér frágang hestagerðis og tenginga við göngu- og reiðleiðir beggja vegna Þjórsár. Íslenskt timbur notað Leitast hefur verið við að nota sem mest íslenskt timbur í brúna. Skóg- rækt ríkisins útvegaði timbrið og Límtré-Vírnet vann efnið, meðal ann- ars þverbitana sem eru úr sitkagreni úr Haukadalsskógi. Er það í fyrsta skipti sem framleiddir eru CE- vottaðir límtrésbitar úr íslensku timbri. Brúargólfið verður einnig úr íslensku greni. Þá verður gerð tilraun til að nota innlendan við í hluta af handlista á handriði brúarinnar en megnið af þeim verður úr erlendum harðviði. Brúin er um 102 metrar að lengd. Hún er liður í mótvægisaðgerðum vegna framkvæmda Landsvirkjunar við Búrfellsstöð 2 sem gangsett var á árinu 2018. Tilgangur verkefnisins er að bæta aðgengi að Búrfellsskógi en hann hefur einangrast nokkuð eftir framkvæmdirnar við stækkun Búr- fellsvirkjunar. Aðgengi að skóginum verður þá að austan, um þessa brú. Þá mun brúin tengja saman kerfi reiðleiða og göngustíga sem er beggja vegna Þjórsár, í sveitarfélög- unum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Brúargerð Göngu- og reiðbrúin á Þjórsá ofan við Þjófafoss er veglegt mannvirki, 102 metrar að lengd. Göngu- og reiðbrú á Þjórsá í gagnið í júní - Þjórsá brúuð við Þjófafoss - Hægt að aka yfir í neyð Stál Stálbitarnir eru komnir upp og er unnið að samsetningu á handriði. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bergþór Ólason, þingmaður Mið- flokksins og meðeigandi í LOB ehf., sem framleiddi forsteyptar einingar, segist vona að dómur í máli fyrirtækis- ins gegn eiganda SA Verks geti reynst fordæmis- gefandi þegar tek- ist er á um van- efndir og kennitöluflakk. Fjallað var um dóminn í Morgun- blaðinu í gær. Í stuttu máli var Sigurður Andrés- son, eigandi SA Verks, dæmdur til að greiða eigendum LOB ehf. á annað hundrað milljónir vegna vanefnda vegna hótelbyggingar á Hverfisgötu 103. Ágreiningur milli aðila reis sumarið 2015 en verkkaupi, SA Verk, seldi hótelbygginguna og fjárfesti félag hans, H96 ehf., svo í lóð handan við götuna (sjá rammagrein). Viðskipti milli tengdra aðila Nánar tiltekið í Laugavegi 77 og tengdri lóð sem fékk númerið Hverfis- gata 94-96. H96 ehf. framseldi lóðina til SA Bygginga sem byggðu þar 38 íbúð- ir en skv. dómi Héraðsdóms Reykja- víkur var félagið í eigu sama aðila og SA Verk sem rann saman við H96 ehf. Við þessi viðskipti stóð sameinað fé- lag í eigu sama aðila, H96 ehf., eftir eignalaust og var loks úrskurðað gjald- þrota í ársbyrjun 2020. Var það nið- urstaða Héraðsdóms Reykjavíkur að umrædd lóð hefði verið seld á undir- verði. Hefði hún verið seld á sannvirði hefði H96 ehf. getað gert upp skuldir við kröfuhafa, þ.m.t. LOB ehf. Þáttur bankans sé skoðaður Hinn 27. júlí 2015 féllst sýslumað- urinn í Reykjavík á beiðni LOB ehf. um kyrrsetningu á réttindum SA Verks yfir Hverfisgötu 103 og sömu- leiðis í hlutabréfum SA Verks í einka- hlutafélaginu H96 ehf. Bergþór gagnrýnir þátt Lands- bankans í að ónýta kyrrsett réttindi LOB ehf. sem kröfuhafa. Þá sé um- hugsunarefni hvað mál sem þessi taki langan tíma í kerfinu. „Það er áhyggjuefni og athyglisvert ef banki spilar með skuldara til að ónýta slík réttindi. Það hlýtur að koma til skoðunar,“ segir Bergþór. Fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur að Sigurður Andrésson mótmælti „öllu er varðar ætlað „sam- særi“ á milli hans og Landsbankans“. Bankinn hafi „leitast við að gæta réttar síns með endurupptöku kyrr- setningargerðarinnar og loks með fjár- námi í hinum kyrrsettu fjármunum“. Þessi andstæðu sjónarmið eru reifuð í dómnum sem er 30 síður. Dómurinn hafi fordæmisgildi - Þingmaður bendir á kennitöluflakk - Gagnrýnir þátt Landsbankans Bergþór Ólason Morgunblaðið/Árni Sæberg Hverfigata 94-6 Landsbankareitur var sagður seldur á undirverði. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli LOB ehf. gegn Sigurði Andréssyni kemur fram að 2. október 2015 hafi H96 ehf. selt fasteignina Laugaveg 77, ásamt byggingarrétti, til annars félags í eigu hins stefnda, SA Bygginga ehf., fyrir 565 milljónir sem síðar hækkaði í 603,4 milljónir vegna stækk- unar eignarinnar. Við samruna H96 ehf. við SA Verk hinn 1. nóvember 2015 hafi fjárhagsleg staða H96 ehf. versnað umtalsvert og skuldir virst aukast meira en eignir. Þá hafi helsta eign H96 verið framseld til annars félags í eigu stefnda, SA Bygginga. „Með ráðstöfun nefndrar fasteignar var ljóst að H96 ehf., og um leið kröfuhafar þess félags, eftir atvikum kröfuhafar sameinaðs félags SA Verks og H96 ehf., myndu ekki njóta góðs af því ef hagnaður yrði síðar meir af sölu hins svonefnda Landsbankareits, eða þeirrar eignar sem á honum yrði byggð,“ sagði í dómnum. Nðurstaða dómkvadds matsmanns var að verðmæti lóðarinnar hefði ver- ið 746 milljónir en skv. dómnum var hún því seld á undirverði. Þá var það mat dómsins að þessar ákvarðanir stefnda hafi rýrt verðmæti hlutafjár í H96 ehf. og teflt í hættu hagsmunum kröfuhafa. Hinn 13. maí 2016 seldu SA Byggingar íbúðir og atvinnuhúsnæði á um- ræddri lóð fyrir rúma 2,5 milljarða króna til Hverfisstígs ehf. Framseldi helstu eignina VIÐSKIPTI MEÐ LANDSBANKAREITINN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.