Morgunblaðið - 22.04.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.04.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021 GLEÐILEGT SUMAR Lokað í dag sumardaginn fyrsta í verslun okkar Opið í vefverslun okkarmisty.is 20% afsláttur afÖLLUM sundfatnaði hjámisty.ismeð kóðanum „SUMAR“ AÐEINS Í DAG Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur var lagt fram minnis- blað Teiknistofunnar Stiku dagsett 13. janúar 2021 varðandi staðsetn- ingu þyrlustarfsemi Landhelgis- gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Fyrir liggur bréf frá dómsmála- ráðuneytinu dags. 10. júlí 2018 þar sem þess er farið á leit að skipu- lagsyfirvöld í Reykjavík móti til- lögur um staðsetningu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á flugvallar- svæðinu til framtíðar. Fram kemur í minnisblaði Stiku að í dag sé flugskýli Landhelgis- gæslunnar staðsett við Nauthóls- veg 68. Flugskýlið hýsir flugvél og þyrlur Gæslunnar, ásamt stoðrým- um (skrifstofum o.fl.) í smærri við- byggingum. Ef gert er ráð fyrir því að flug- völlurinn og aðstaða honum tengd færist á annan stað megi gera ráð fyrir því að flugskýli Landhelgis- gæslunnar geri það líka. Þá myndi Landhelgisgæslan flytja alla sína starfsemi á þennan nýja stað. „Í minnisblaði þessu er mögu- leikinn á að halda lendingarpalli fyrir Landhelgisgæsluna á flugvell- inum skoðaður en ekki fjallað um hugsanlega staðsetningu flugvall- arins sjálfs,“ segir Stika. Syðst á norður-suðurbraut Fram kemur í minnisblaði Stiku að starfsmenn hennar hafi átt fundi með fulltrúum frá Landhelgisgæsl- unni, Samgöngustofu og Isavia. Það varð niðurstaða Stiku að heppilegt væri að staðsetja þyrlu- pall sunnarlega á norður-suður- flugbrautinni, við Skerjafjörðinn, og minnka þannig hættuna við lág- flug yfir byggð. Þessi staður er skammt frá flugskýli Landhelgis- gæslunnar. Einnig væri hægt með þessari staðsetningu að tryggja góða tengingu við forgangsakrein almenningssamgangna, sem er mikilvægt sjúkraflutningum. Há- vaðamengun við íbúðabyggð yrði í minnsta lagi þar sem staðsetningin er í um 170 metra fjarlægð frá ystu mörkum fyrirhugaðrar byggðar í Skerjafirði. Stika tekur fram að þessi kostur sé háður áframhaldandi þróun gps- aðflugstækninnar. Svokallað gps- aðflug er í hraðri þróun, en þá eru notaðir gps-punktar í slæmu skyggni til staðsetningar, svo hægt sé að komast nógu lágt niður til að lenda. Þá þurfi ekki að nota hefð- bundinn og plássfrekan aðflugs- búnað, sem nú er notaður á Reykja- víkurflugvelli. „Til að komast undir skýin (cloud break procedure) er ekki heppilegt að vera í mikilli byggð, það þarf að fljúga lágt og „skríða“ á áfanga- stað,“ segir í minnisblaðinu. Best væri að notast við staðsetningu sem er næst sjónum því þá þurfi ekki að fljúga lágt yfir byggð. Á nýjum Landspítala er gert ráð fyrir þyrlupalli en einungis verði lent á honum í um 20% tilfella til þess að lágmarka hávaðamengun. Í 80% tilfella er gert ráð fyrir að lenda á Reykjavíkurflugvelli og að sjúklingar verði fluttir þaðan með sjúkrabíl á spítala. Skipulagsfulltrúi vísaði málinu áfram til meðferðar deildarstjóra aðalskipulags hjá Reykjavíkurborg. Skoða heppilegan stað fyrir þyrlurnar - Skoði staðsetningu þyrlusveitar Gæslunnar til framtíðar Morgunblaðið/Árni Sæberg Norður-suðurbrautin Heppileg staðsetning þyrlupalls er sunnarlega á brautinni, neðst til hægri á þessari mynd. Skýli Gæslunnar er skammt frá. Íslandsmótið í skák 2021 hefst í dag. Mótið fer fram í Kársnesinu í Kópa- vogi (húsnæði Siglingafélagsins Ým- is) og stendur yfir dagana 22.-30. apríl. Teflt hefur verið um titilinn Skákmeistari Íslands síðan 1913. Um er að ræða eitt allra sterkasta Íslandsmót sögunnar en sex stór- meistarar taka þátt í landsliðsflokki, að því er fram kemur í frétt frá Skáksambandi Íslands. Mótshaldið er samvinnuverkefni Skáksam- bandsins og Skákdeildar Breiða- bliks. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, setur mótið og leikur fyrsta leik þess. Teflt er daglega og hefst taflmennskan ávallt kl. 15. Meðal keppenda eru Hjörvar Steinn Grétarsson sem nýlega vann sigur í Íslandsbikarnum og ávann sér keppnisrétt í Heimsbikarmótinu í skák, Guðmundur Kjartansson, sem fyrir skemmstu varð fimmtándi stórmeistari Íslendinga, Hannes Hlífar Stefánsson, þrettánfaldur Ís- landsmeistari í skák, og Jóhann Hjartarson, einnig margfaldur Ís- landsmeistari. Helgi Áss Grétars- son, Íslandsmeistarinn frá 2018, og Bragi Þorfinnsson fylla svo flokk stórmeistaranna. Aðrir þátttakendur eru Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur meistari, Sigurbjörn Björnsson FIDE- meistari, Vignir Vatnar Stefánsson FIDE-meistari og Alexander Oliver Mai. Núverandi Íslandsmeistari er Guðmundur Kjartansson. Vegna sóttvarnareglna geta áhorfendur ekki mætt á skákstað. Skáksambandið býður upp á beinar útsendingar. Upplýsingar um þær má finna á skak.is. sisi@mbl.is Sex stórmeistarar tefla um titilinn - Íslandsmótið í skák hefst í dag - 10 þátttakendur Ljósmynd/Gunnar Björnsson Meistarinn 2020 Guðmundur Kjartansson hefur titil að verja. Héraðsdómur hefur fallist á fram- lengingu á greiðsluskjóli eignar- halds- og rekstrarfélaga Hótel Sögu, það er að segja Bændahall- arinnar ehf. og Hótel Sögu ehf. Fulltrúar fyrirtækjanna og Bænda- samtaka Íslands eru í viðræðum við ríkið og Háskóla Íslands um kaup á húsinu fyrir starfsemi háskólans. Greiðsluskjólið er til 7. júlí næst- komandi. Þá verður liðið eitt ár frá því það fyrst fékkst og ekki eru möguleikar á frekari framlengingu, samkvæmt þeim lögum sem nú gilda um þetta úrræði. Sigurður Kári Kristjánsson, lög- maður og umsjónarmaður með fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækjanna, segir að viðræður við ríkið og Háskóla Íslands gangi ágætlega og kveðst hann vongóður um að þær skili árangri. Spurður um aðra möguleika seg- ir hann að fjárfestar í ferðaþjón- ustu og heilbrigðisþjónustu hafi eignina einnig til athugunar. Kór- ónuveirufaraldurinn og takmarkað- ir möguleikar fólks á að ferðast hefur dregið úr áhuga á stærri fjár- festingum í ferðaþjónustu. Segir Sigurður Kári að óvissan eigi stór- an þátt í því að ekki hafi tekist að ljúka viðræðum um sölu eignarinn- ar. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hótel Saga Lokatilraun er nú gerð til að endurskipuleggja fjárhag Hótel Sögu. Hótelinu var lokað í október vegna rekstrarerfiðleika í faraldrinum. Greiðsluskjól Hótel Sögu framlengt - Viðræður við ríki og Háskóla Íslands Vegtengingarnar að nýju Odda- brúnni yfir Þverá á Rangárvöllum verða malbikaðar í sumar. Brúin sem hefur verið í notkun í ár verður vígð við formlega athöfn 3. júlí, í tengslum við Oddahátíð. Rangárþing ytra annaðist brúar- gerðina og tilheyrandi vegagerð með stuðningi Vegagerðarinnar. Nú hefur sveitarstjórn ákveðið að afhenda Vegagerðinni mannvirkið í samræmi við upphaflegan samning. Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri segir að eftir sé að malbika vegina að brúnni. Það muni Vegagerðin gera í sumar. Bakkabæirnir svokölluðu hafa verið úr tengslum við sveitarfélagið að nokkru leyti en brúin tengir þá á ný við sitt gamla höfuðból, Odda á Rangárvöllum. helgi@mbl.is Malbikað að Oddabrú á Þverá í sumar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Oddabrú Ekið hefur verið yfir nýju brúna í rúmt ár. Ný tenging innan sveitar varð til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.