Morgunblaðið - 22.04.2021, Page 13

Morgunblaðið - 22.04.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021 Ilmur er ný litalína Slippfélagsins hönnuð í samstarfi við Sæju innanhúshönnuð. Línan er innblásin af jarðlitum, dempaðir tónar með gulum og rauðum undirtónum. Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga slippfelagid.is slippfelagid.is/ilmur Hör Leir Truffla Börkur Myrra Krydd Lyng Kandís Lakkrís Innblástur og nýir litir á slippfelagid.is Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Merrick Garland, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að ráðuneytið hefði hafið formlega rannsókn á lögreglunni í Minneapol- is, daginn eftir að Derek Chauvin, fyrrverandi lögregluþjónn í borg- inni, var fundinn sekur um að hafa myrt blökkumanninn George Floyd síðasta vor. Sagði Garland tilgang rannsókn- arinnar að kanna hvort lögreglulið borgarinnar sinnti störfum sínum í trássi við stjórnarskrá og ríkjandi lög. Þá yrði sérstaklega kannað hvort lögreglumenn borgarinnar beittu kerfisbundið of miklu valdi við skyldustörf sín, þar á meðal þegar kæmi að því að vakta lögleg mót- mæli. „Dómsmálaráðuneytið mun ekki skirrast við að framfylgja jafnrétti fólks gagnvart lögunum,“ sagði Gar- land, en niðurstöður rannsóknarinn- ar kunna að leiða af sér skaðabóta- mál sem myndi neyða Minneapolis-borg til að endurskipu- leggja lögreglu sína. Sekur um öll ákæruatriði Kviðdómur í máli Chauvins tók sér um ellefu klukkustundir til að vega og meta sönnunargögn og vitn- isburði í málinu gegn honum, en þar á meðal var myndbandsupptaka sem sýndi hann krjúpa með hné sitt á hálsi Floyd í um níu og hálfa mínútu, á sama tíma og Floyd kvartaði undan andnauð. Var Chauvin fundinn sekur um morð af annarri og þriðju gráðu auk þess að hafa verið valdur að mann- drápi, en venja er í manndrápsmál- um að ákæra fyrir nokkrar mögu- legar niðurstöður, en Chauvin verður einungis gerð refsing fyrir al- varlegustu ákæruna. Bíður hans allt að 40 ára fangelsi fyrir brot sitt, en líklegt þykir að hann muni áfrýja dómnum. Þegar ljóst var að kviðdómurinn hefði sakfellt Chauvin samhljóða fyr- ir öll ákæruatriði, braust út mikill fögnuður í flestum stórborgum Bandaríkjanna, en málið vakti upp mikla mótmælaöldu í fyrra vegna fjölda tilfella ofbeldis lögreglumanna gegn fólki sem tilheyrir minnihluta- hópum. Talið var að sýknudómur yf- ir Chauvin hefði getað vakið upp nýja reiðiöldu, og höfðu sumar borg- ir búið sig undir óeirðir í því tilfelli. Segja dóminn marka tímamót Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi eftir að niðurstaðan lá fyrir. Sagði hann kerfisbundna kynþáttahyggju vera „blett á þjóðarsál okkar“ og kallaði Biden eftir lagasetningu sem myndi taka á þeim mun sem ólíkir kynþætt- ir byggju við þegar kæmi að lög- gæslu og réttarfari Bandaríkjanna. Kamala Harris varaforseti lýsti því yfir að hún og Biden myndu hvetja öldungadeild Bandaríkjaþings til þess að samþykkja frumvarp þar sem ábyrgð lögreglumanna á eigin gjörðum yrði aukin. Sagði Harris að óréttlæti í kynþáttamálum varðaði ekki bara svarta Bandaríkjamenn eða aðra minnihlutahópa, heldur væri það vandamál fyrir alla Banda- ríkjamenn. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði einnig niðurstöðu kviðdómsins, sem og Lewis Hamil- ton, ökuþór í formúlu 1-kappakstri. Þá sagði Michelle Bachelet, mann- réttindafulltrúi Sameinuðu þjóð- anna, dóminn marka tímamót. „Eins og kviðdómurinn sá, voru sönnunar- gögnin í þessu máli kristaltær. Hver önnur niðurstaða hefði verið dóms- morð,“ sagði Bachelet. Sagði hún að enn væri langt í land í réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum og víðar, og að grípa þyrfti til aðgerða til þess að koma í veg fyrir frekari manndráp lögreglu af litlu sem engu tilefni. Skutu stúlku til bana Um líkt leyti og greint var frá nið- urstöðu kviðdómsins bárust þær fregnir frá Columbus-borg í Ohio, að sextán ára stúlka hefði verið skotin til bana af lögreglumanni, en sagt var að hún hefði skömmu áður ógnað annarri stúlku með hníf. Ben Crump, lögmaður fjölskyldu George Floyd, fordæmdi manndráp- ið á Twitter-síðu sinni og sagði að á sömu stund og fólk hefði varpað önd- inni léttar vegna dómsins hefði enn eitt barn týnt lífi. AFP Dómi fagnað Mótmælendur í Atlanta-borg lyftu hnefa til að sýna samstöðu með George Floyd þegar dómur lá fyrir. Rannsaka lögregluna - Derek Chauvin fundinn sekur um morðið á George Floyd í öllum ákæruatriðum - Dóminum fagnað í helstu borgum Bandaríkjanna - Reiði í Columbus-borg Vladimír Pútín Rússlandsforseti var- aði í stefnuræðu sinni í gær önnur ríki við því að fara yfir „rautt strik“ Rúss- lands í varnar- og öryggismálum. „Þeir sem ógna grundvallarhagsmun- um öryggis okkar munu sjá eftir gjörðum sínum meira en þeir hafa séð eftir öðru um langan aldur,“ sagði Pútín í ávarpi sínu, sem flutt var í áheyrn þingmanna og helstu embætt- ismanna í ríkisstjórn hans. Pútín sagði það nú vera nýja þjóð- aríþrótt í sumum ríkjum að kenna Rússum um allt sem aflaga færi. Sagði hann að Rússland vildi góð samskipti við öll ríki, en að Rússar myndu bregðast bæði skjótt og hart við ef einhver reyndi að gera á hlut þeirra. Fordæmdi meint „valdarán“ Þá lýsti Pútín yfir stuðningi sínum við Alexander Lúkasjenkó, forseta Hvíta-Rússlands, sem haldið hefur því fram að Bandaríkjastjórn hafi reynt að myrða sig. Fordæmdi Pútín hina meintu „valdaránstilraun“ í ná- grannaríki sínu og sakaði vesturveld- in um að láta eins og ekkert hefði gerst í Hvíta-Rússlandi. Pútín mun funda með Lúkasjenkó í dag í Moskvu, en hann hefur glímt við mótmæli og óánægju í heimalandi sínu eftir að hvítrússneska stjórnar- andstaðan sakaði hann um kosninga- svik á síðasta ári. Andstæðingar Pútíns heima fyrir boðuðu til mótmæla meðan stefnu- ræða hans færi fram, og voru tæplega 200 manns handteknir vítt og breitt um Rússland. Voru mótmælin meðal annars að undirlagi stuðningsmanna Alexeis Navalnís, en þeir segja hann nú í bráðri lífshættu á fangelsis- sjúkrahúsinu þar sem hann dvelur. Pútín vék í engu að máli Navalnís í ræðu sinni, en það hefur orðið að bit- beini milli Rússa og vesturveldanna. Varar við „rauðu striki“ Rússlands - Pútín beindi ávarpi sínu til vesturs AFP Stefnuræða Pútín aðvaraði vestur- veldin í stefnuræðu sinni í gær. Tilkynnt var um 2.023 dauðsföll á Indlandi á undangengnum sólar- hring í gær vegna kórónuveiru- faraldursins, og hafa þau ekki verið fleiri í landinu til þessa. Sendu sjúkrahús í höfuðborginni Nýju- Delí frá sér viðvörun um að þau glímdu nú við súrefnisskort vegna faraldursins. Um þrjár og hálf milljón nýrra tilfella hafa verið greind á Indlandi í aprílmánuði, og er faraldurs- bylgjan nú rakin til nýs indversks afbrigðis sem þykir illvígara en þau fyrri. Hong Kong og Ástralía hafa bannað allt farþegaflug til og frá Indlandi og landið var sett á „rauð- an lista“ stjórnvalda í Bretlandi í síðustu viku. Hvatti Narendra Modi forsætis- ráðherra samlanda sína í fyrrinótt til þess að herða sig í sóttvörnum, í þeirri von að takast mætti aftur að koma böndum á faraldurinn. INDLAND AFP Indland Starfsmenn súrefnisverk- smiðju sjást hér fylla á kúta. Met í dauðsföllum vegna súrefnisskorts Stjórnvöld í Ástralíu tilkynntu í gær að þau hygðust slíta samkomulagi Viktoríu-fylkis við Kínverja um þátt- töku í svonefndu „Belti og braut“- verkefni. Marise Payne utanríkis- ráðherra sagði þátttöku fylkisins í verkefninu ekki vera í samræmi við utanríkisstefnu landsins, en ríkin tvö hafa elt grátt silfur undanfarna mánuði. Aðgerð stjórnvalda byggist á lög- um sem samþykkt voru á síðasta ári, sem heimila ríkisstjórninni að slíta öllu samkomulagi sem fylkin gera við önnur ríki sem talið er geta ógn- að þjóðaröryggi. Kínverska sendiráðið brást illa við tíðindunum og sagði aðgerð Payne bæði ósanngjarna og ögrandi. ÁSTRALÍA Hætta við „Belti og braut“-verkefnið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.