Morgunblaðið - 22.04.2021, Page 19

Morgunblaðið - 22.04.2021, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021 ✝ Magnús Ragn- arsson fæddist í Hafnarfirði 2. ágúst 1944. Hann lést á líknardeild Landspítalans 29. mars 2021. Foreldrar hans voru Sigurður Ragnar Magnússon og Guðný Ingi- björg Jósepsdóttir, bæði látin. Systur Magnúsar eru Margrét, El- ínborg og Hjördís. Magnús kvæntist Ingibjörgu Grétarsdóttir. Börn þeirrar eru Grétar Þór, Svava Rún og Sig- urpáll. Dætur Erlu frá fyrra hjóna- bandi eru: a) Margrét Erludótt- ir Einarsdóttir, f. 7. mars 1973. Sonur hennar er Aron Freyr Tómasson. b) Gyða Erludóttir Einarsdóttir, f. 16. september 1974. Eiginmaður hennar er Einar Tryggvason. Dætur þeirra eru Maren Erla og Maídís Eva. Dóttir Marenar Erlu er Máney Erla. Magnús ólst upp í Hafn- arfirði og gekk þar í skóla. Að loknu skyldunámi fór hann út á vinnumarkaðinn. Hann tók síð- ar meirapróf og vann marg- vísleg vélavinnu- og verka- mannastörf í um hálfa öld. Útförin hefur farið fram, í kyrrþey að ósk hins látna. Erlu Ásgeirs- dóttur, f. 2. apríl 1954, hinn 5. jan- úar 1978. For- eldrar hennar eru Gyða Ásbjarn- ardóttir og Ásgeir Pétursson (látinn). Sonur Magnúsar og Erlu er Ásgeir Ragnar, f. 12. des- ember 1978. Sonur Magnúsar og Sig- nýjar Eggertsdóttur (látin) er Sigurður Ragnar, f. 18. febrúar 1969. Kona hans er Magnea Á kyrrlátu vorkvöldi þegar sól- in var í óðaönn að mála himininn rauðan lagði Maggi af stað í sína hinstu för. Kyrrðin var táknræn fyrir þennan hægláta mann sem kvaddi sáttur. Honum fannst hann hafa lifað góðu lífi en kraft- arnir voru á þrotum og hann tilbú- inn að fara. Ég kynntist Magga fyrir 45 ár- um þegar hann var að eltast við Erlu systur. Hún var þá fráskilin með tvær ungar dætur og var ekki viss hvort hún vildi annað samband. En Maggi hafði hitt draumadísina og henni ætlaði hann ekki að sleppa. Honum tókst ætlunarverk sitt og Erla var alltaf stóra ástin í lífi hans. Þegar þau kynntust hafði Maggi safnað sér fyrir ferð til Asíu, en stuttu síðar lentum við Erla í bílslysi á bíl hans og varð altjón á bílnum og ekkert fékk Maggi úr tryggingum. Hann tók því af æðruleysi að Asíuferðin væri fyrir bí og var þakklátur fyr- ir að Erla hans hefði ekki slasast alvarlega. Maggi var alúðlegur í viðmóti og hafði góða nærværu, hann var brosmildur með blik í augum. Ekki var hann margorður maður, en hafði sterkar skoðanir á ýms- um málum, það var alltaf gaman að hitta hann. Vinnan var honum afar mikils virði og hann hlífði sér hvergi og var eftirsóttur starfs- kraftur. Hann tilheyrði þeirri kynslóð sem metur vinnusemi og dugnað framar öðru. Varla missti hann dag úr vinnu og honum fannst fátt geta afsakað fjarveru frá vinnu. Þrátt fyrir að vinna erf- iðisvinnu í hálfa öld var Maggi alltaf unglegur, það var eins og hann eltist ekki, ljósa hárið dökknaði bara með árunum og gráu hárin létu ekki sjá sig. Fyrir um 10 árum slasaðist Maggi alvarlega þegar hann féll niður nokkra metra á vinnustað sínum. Það var mikið áfall fyrir hann og fjölskyldu hans og árin á eftir fór heilsu hans hrakandi. Fyrir rúmum fjórum árum greindist hann með krabbamein, og í sömu viku greindist Erla með krabbamein í annað sinn. Síðustu árin voru mikil þrautaganga fyrir Magga, Erlu og börn þeirra. Maggi þurfti mun meiri aðstoð en Erla gat veitt vegna eigin veik- inda og því miður var ekki nægi- legan samfélagslegan stuðning að fá. Þessi tími var fjölskyldunni af- ar erfiður. Ég minnist Magga með hlýju í hjarta og þakka honum samfylgd- ina í gegnum árin. Erlu, börnum þeirra og barnabörnum votta ég mína dýpstu samúð. Petrína Ásgeirsdóttir. Magnús Ragnarsson Einar frændi, móðurbróðir minn, er látinn. Einar frændi fæddist á Siglunesi við Siglu- fjörð og var yngstur fimm systk- ina en þau voru Ásgeir, f. 1917, Guðný, f. 1919, Anna, f. 1921, Jón, f. 1922, og að lokum Einar, f. 1932, sem hefur nú lokið langri ævi síðastur af þeim systkinunum. Einar var ekki eingöngu sá síðasti til að kveðja þetta jarðneska líf því hann tald- ist til þeirra sárafáu sem geta með réttu titlað sig sem hrein- ræktaðir Nesmenn þar sem Ein- ar vildi aldrei láta kenna sig við Siglufjörð enda borinn og barn- fæddur á Siglunesi, því forn- fræga bóli sem nú er komið í eyði fyrir margt löngu. Einar hafði mikið dálæti á að segja sögur frá sínu heittelskaða Siglunesi og þá sérstaklega var honum minnisstætt þegar bresk- ir hermenn gerðu sig heima- komna á Siglunesi í seinna stríði og gaukuðu að honum nammi og öðru góðgæti sem var sjaldséður Einar Sigurður Björnsson ✝ Einar Sigurður Björnsson fæddist 29. sept- ember 1932. Hann lést 9. apríl 2021. Útför hans fór fram 21. apríl 2021. munaður á Siglu- nesi á þeim tíma. Einar var einkar laghentur og vand- virkur enda húsa- smíðameistari að mennt og starfaði sem slíkur fram að eftirlaunaaldri. Ein- ari var ekki ein- göngu tamt að smíða allt sem nöfnum tjáir að nefna, heldur var Einar frændi minn listfengur mjög á allt handverk og þau eru ófá lista- verkin sem hann hefur ýmist málað eða smíðað með einhverj- um hætti sem prýða heimili hans og Jóhönnu sem og ann- arra ástvina. Einar var iðulega nefndur í sömu andrá og eig- inkona hans Jóhanna og stóð hjónaband þeirra í hartnær 64 ár. Einar og Jóhanna voru ein- staklega samhent hjón og báru öllu heimilin sem þau héldu í gegnum tíðna þess glögglega vitni og allir sem til þeirra hjóna þekktu voru ávallt aufúsugestir á heimili þeirra. Undir það síð- asta var Einar kominn á hjúkr- unarheimili í Boðaþingi og undi hag sínum vel þar. Minningar mínar um Einar eru allar á þann veg að ég minnist glaðværs, hlýs og harðduglegs manns sem ávallt var stutt í brosið hjá og átti það til að stríða manni ef svo bar undir en aldrei með neinni meinsemd. Ég gæti ef- laust þulið ótal fleiri minningar um Einar frænda minn, glaðar minningar sem aldrei mun fenna yfir. Ég vil senda mínar innileg- ustu samúðarkveðjur til þín, elsku Jóhanna mín, þinn missir er búinn að vera mikill og sár. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Í Jesú nafni amen. Sigrún G. Ólafsdóttir. „Komdu nú sæll og blessað- ur“ voru þín fyrstu orð til mín er við hittumst fyrst. Nú þegar við kveðjum ástsælan vin og mikinn félaga langar mig að minnast allra ógleymanlegu samveru- stundanna, allra ferðalaganna sem við fórum í bæði utanlands og innan. Síðan ég kom inn í líf þitt fyrir rúmum fjörutíu árum og varð seinna tengdasonur þinn hefur væntumþykja okkar og nána samband æ verið til staðar. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Margs er að minnast; allar sögurnar frá Siglunesi. Sögurn- ar frá því þú vannst hjá Síld- arverksmiðjunum og ferðalögin um land allt til að lagfæra og byggja nýtt. Góða skapið og hjálpsemin gleymist aldrei, alltaf var stutt í hláturinn og hvað þú varst góð- ur við okkur Sigrúnu og börnin okkar. Það var mikið áfall að þú skyldir lifa bæði börnin þín; Ragnar, sem fór alltof fljótt, 1986, og Sigrúnu mína, sem kvaddi í september 2020. Trésmiður varst þú mjög vandvirkur og duglegur og minnist ég þess er við vorum að byggja okkur sumarhús í landi Trésmiðafélagsins að félagar þínir mættu til að dásama hvað allt var vel og traustlega gert. Það var alltaf jafn gaman að fá ykkur í heimsókn er við bjuggum í Ólafsfirði og gátum ferðast þar um. Þegar við fluttum til Reykja- víkur varð enn meiri samvera. Einar og Jóhanna voru ákaf- lega samrýnd og góð hjón, ást- in geislaði úr andlitum þeirra alla daga, væntumþykjan var auðséð. Ást þín á barnabörnunum skein í gegn og þau elskuðu afa sinn mjög mikið. Ljúfi Jesús, láttu mig lífs míns alla daga lifa þér og lofa þig ljúft í kærleiks aga. (Þorkell G. Sigurbjörnsson) Eftir erfið veikindi lést Ein- ar föstudaginn 9. apríl síðastlið- inn. Síðustu orð hans til mín voru: „Vertu nú sæll og bless- aður.“ Guð gefi Jóhönnu styrk. Minning um besta tengdaföð- urinn mun ætíð lifa. Kristinn Jónsson. Kynni mín af Daníel voru ofboðs- lega hlý og kær- komin. Við vorum báðir 11 ára gamlir þegar ég flutti til Íslands. Ég kunni enga íslensku og litla ensku en Daníel var alltaf svo vinalegur í minn garð og tók mig inn þegar ég átti enga vini. Í gegnum árin höfum við gengið í gegnum margt saman, bæði góða tíma og slæma. Daníel var alltaf til staðar fyrir þá sem stóðu honum nærri. Ef einhver Daníel Eiríksson ✝ Daníel Eiríks- son fæddist 19. október árið 1990. Hann lést 3. apríl 2021. Útför Daníels fór fram 20. apríl 2021. var í vandræðum eða leið illa var Danni mættur til að hjálpa eins og hann gat. Hann vildi alltaf vera rík- ur kall en í mínum augum var hann alltaf ríkur; ríkur af vináttu og kær- leik. Vinátta Daní- els var einstök og ógleymanleg. Ég þakka þér Daníel fyrir allan þann tíma sem þú gafst mér. Þín verður sárt saknað elsku vinur. Hvíldu í friði. Vilius Petrikas. Ég kynntist Daníel þegar ég flutti í Mosfellsbæ árið 2003, við vorum þá saman í bekk í grunn- skóla og urðum um leið bestu vinir. Ég á óteljandi góðar minningar um Daníel, alveg frá því að við vorum litlir strákar að spila tölvuleiki, horfa á bíó- myndir og leika okkur úti sam- an þar til núna þegar hann fór frá okkur. Daníel átti mörg áhugamál, þar var vaxtarræktin alltaf á toppnum, það var alltaf gaman að fara með honum í ræktina því hann kunni svo mikið af alls konar æfingum. Daníel var líka mikill matarkarl; yfirleitt þegar ég kom heim til hans, þótt það væri um miðjan dag, var hann að elda sér nautasteik. Síðustu daga er ég búinn að vera að skoða myndir og hugsa um tímann okkar saman og mér finnst bestu minningarnar vera þær þegar við vorum ungir strákar að gera dyraat og leika okkur úti, áður en við eltumst og þurftum að takast á við al- vöru lífsins. Við Daníel gengum í gegnum margt saman og oftar en ekki skemmtum við okkur konunglega. Það sem stendur helst upp úr í vináttu okkar Daníels er hvað hann var traustur vinur sem stóð alltaf við bakið á manni, sama hvað var. Það eru forréttindi að hafa átt svona góðan vin eins og Daníel var, mann sem var tek- inn frá okkur allt of snemma. Andri Már Ingason. Daníel var besti vinur minn frá því í æsku, hann var einn góðhjartaðasti maður sem ég hef kynnst, hann var traustur og hafði góða nærveru. Hann lagði sig alltaf allan fram í að hjálpa öðrum og vera til staðar. Ég er þakklátur fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an. Hvíldu í friði elsku vinur minn. Þinn vinur, Bjarki Þór. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR STEINGRÍMSSON rafvirkjameistari, lést á Droplaugarstöðum 9. apríl. Útförin hefur þegar farið fram. Innilegar þakkir fær starfsfólk Droplaugarstaða fyrir góða umönnun. Þórdís G. Jóhannesdóttir Ingibjörg Bryndís Hilmarsd. Gylfi Jón Gylfason Heiða Margrét Hilmarsdóttir Ásgeir Helgi Erlingsson Guðbjörg Hilmarsdóttir Vilhelm Ragnar Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkæra og elskulega sambýliskona, systir okkar, mágkona og frænka, INGIBJÖRG ÞÓREY SVEINBJÖRNSDÓTTIR, varð bráðkvödd á heimili sínu þriðjudaginn 30. mars. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur hluttekningu og hlýhug. Guðmundur Bjarni Jóhannsson Árni Sveinbjörnsson Marianne Sveinbjörnsson Sveindís M. Sveinbjörnsd. Óskar Sigurbjörnsson Sigrún I. Petersen Ingolf J. Petersen Díana S. Sveinbjörnsdóttir Kolbrún L. Sveinbjörnsdóttir Stefán Halldórsson og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR M.B. CARLSSON, Hlíðarhúsum 7, áður til heimilis í Espigerði 4, Reykjavík, lést sunnudaginn 4. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ragnar Guðmundsson Sigríður Þóroddsdóttir Sigurður Guðmundsson Ester Kristjánsdóttir Sólveig Guðmundsdóttir Björgvin G. Ingibergsson Herbert Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, stjúpmóðir, systir og mágkona, SIGRÍÐUR SVEINSDÓTTIR píanókennari, Espigerði 4, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 18. apríl. Kristín Guðmundsdóttir Gerður Guðmundsdóttir Jón Pétur Jónsson Helga Guðmundsdóttir Arnþór Sigurðsson Helga Sveinsdóttir Valdimar Guðnason Jón R. Sveinsson Guðrún Óskarsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.