Morgunblaðið - 22.04.2021, Side 26
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Valskonur náðu í gærkvöld tveggja
stiga forskoti í úrvalsdeild kvenna í
körfuknattleik, Dominos-deildinni,
þegar þær unnu yfirburðasigur á
KR á Hlíðarenda, 106:52.
Á meðan tapaði Keflavík óvænt
fyrir Skallagrími í Borgarnesi,
76:64. Haukar unnu allöruggan sig-
ur á Snæfelli í Stykkishólmi, 92:72,
og Fjölnir vann Breiðablik í Kópa-
vogi, 79:69.
Þrátt fyrir sigur Skallagríms er
orðið nokkuð ljóst að Valur, Kefla-
vík, Haukar og Fjölnir leika til úr-
slita um Íslandsmeistaratitilinn í
vor. Borgnesingar eru átta stigum
á eftir Fjölni þegar aðeins fimm
umferðir eru eftir. Baráttan um
sigur í deildinni getur hinsvegar
orðið hörkuspennandi og mögulegt
að hún ráðist í lokaumferðinni þeg-
ar Keflavík fær Val í heimsókn.
KR og Snæfell heyja hinsvegar
einvígi um að halda sér í deildinni
og þar gæti viðureign liðanna í
Stykkishólmi næsta miðvikudag
farið langt með að ráða úrslitum.
_ Dagbjört Dögg Karlsdóttir
skoraði 20 stig fyrir Val, Hallveig
Jónsdóttir 16 og Helena Sverris-
dóttir 14 en Annika Holopainen
skoraði 23 stig fyrir KR.
_ Nikita Telesford skoraði 17
stig fyrir Skallagrím og Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir 15 en Anna
Ingunn Svansdóttir skoraði 27 stig
fyrir Keflavík og Daniela Wallen
var með 20 stig og 20 fráköst.
_ Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði
20 stig fyrir Hauka og Alyesha Lo-
vett 17 en Emese Vida skoraði 20
stig fyrir Snæfell.
_ Ariel Hearn var með 25 stig og
18 fráköst fyrir Fjölni og Lina Pik-
ciuté skoraði 21 en Jessica Kay Lo-
rea skoraði 19 stig fyrir Breiðablik
og Iva Georgeva 17.
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Smárinn Blikarnir Sóllilja Bjarnadóttir og Jessica Kay Loera reyna að
stöðva Ariel Hearn úr Fjölni í viðureign liðanna í gærkvöld.
Ljóst hvaða lið
fara í úrslitin
- Einvígi KR og Snæfells á botninum
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2021
England
Tottenham – Southampton...................... 2:1
Aston Villa – Manchester City................ 1:2
Staða efstu liða:
Manch. City 33 24 5 4 69:24 77
Manch. United 32 19 9 4 64:35 66
Leicester 31 17 5 9 55:37 56
Chelsea 32 15 10 7 50:31 55
West Ham 32 16 7 9 53:42 55
Tottenham 33 15 8 10 56:38 53
Liverpool 32 15 8 9 54:38 53
Everton 31 14 7 10 43:40 49
Arsenal 32 13 7 12 44:36 46
Leeds 32 14 4 14 50:50 46
Aston Villa 31 13 5 13 44:35 44
B-deild:
Millwall – Bournemouth......................... 1:4
- Jón Daði Böðvarsson var varamaður hjá
Millwall og kom ekki við sögu.
Rotherham – Middlesbrough.................. 1:2
Stoke – Coventry...................................... 2:3
Wycombe – Bristol City........................... 2.1
Birmingham – Nottingham Forest ........ 1:1
Huddersfield – Barnsley ......................... 0:1
Luton – Reading....................................... 0:0
Staða efstu liða:
Norwich 43 27 9 7 66:32 90
Watford 43 25 10 8 60:28 85
Bournemouth 43 22 11 10 73:42 77
Swansea 43 22 10 11 52:34 76
Brentford 42 20 15 7 72:41 75
Barnsley 43 22 8 13 55:46 74
Reading 43 19 11 13 57:46 68
QPR 43 17 11 15 51:51 62
Þýskaland
Potsdam – Bayern München .................. 2:3
- Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á
hjá Bayern á 80. mínútu.
Ítalía
Bologna – Torino..................................... 1:1
- Andri Fannar Baldursson kom inn á hjá
Bologna strax á 9. mínútu.
Grikkland
Aris – PAOK............................................. 0:1
- Sverrir Ingi Ingason var ekki í leik-
mannahópi PAOK.
Olympiacos – Asteras Tripolis............... 1:0
- Ögmundur Kristinsson varði mark
Olympiacos í leiknum.
Rússland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Lokomotiv Moskva – CSKA Moskva ..... 3:0
- Arnór Sigurðsson kom inn á hjá CSKA á
58. mínútu. Hörður Björgvin Magnússon er
frá keppni vegna meiðsla.
Rúmenía
Sepsi Gheorghe – CFR Cluj.................... 0:1
- Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á hjá
CFR á 80. mínútu.
Portúgal
SL Benfica – Braga ................................. 4:0
- Cloé Lacasse skoraði eitt marka Benfica
sem er með tveggja stiga forystu.
Skotland
Hibernian – Glasgow City ...................... 1:2
- Arna Sif Ásgrímsdóttir lék allan leikinn
með Glasgow City.
Danmörk
Meistarakeppnin:
Nordsjælland – Bröndby ........................ 0:3
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
Fallkeppnin:
AaB – OB .................................................. 3:2
- Aron Elís Þrándarson fór meiddur af
velli hjá OB á 17. mínútu en Sveinn Aron
Guðjohnsen var ekki í hópnum.
50$99(/:+0$
Undankeppni HM kvenna
Umspil, seinni leikir:
Ísland – Slóvenía .................................. 21:21
_ Slóvenía áfram, 45:35 samanlagt.
N-Makedónía – Rúmenía..................... 20:35
_ Rúmenía áfram, 68:42 samanlagt.
Svíþjóð – Úkraína................................. 22:26
_ Svíþjóð áfram, 50:40 samanlagt.
Serbía – Slóvakía ................................. 32:25
_ Serbía áfram, 58:44 samanlagt.
Danmörk
Úrslitakeppnin, 1. riðill:
Kolding – SönderjyskE....................... 32:29
- Ágúst Elí Björgvinsson varði ekki skot í
marki Kolding.
- Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark
fyrir SönderjyskE.
_ GOG 6, Bjerringbro/Silkeborg 3,
SönderjyskE 22, Kolding 2.
Úrslitakeppnin, 2. riðill:
Tvis Holstebro – Aalborg ................... 26:30
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk
fyrir Tvis Holstebro.
- Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
_ Aalborg 6, Tvis Holstebro 5, Skander-
borg 2, Skjern 0.
Þýskaland
B-deild:
Gummersbach – Rimpar .................... 33:23
- Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið sem er í þriðja sæti.
.$0-!)49,
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Mosfellingurinn Elvar Ásgeirsson
var á dögunum valinn í landsliðshóp-
inn sem leikur á næstunni þrjá leiki í
undankeppni EM í handknattleik.
Elvar er eini leikmaðurinn í hópnum
sem ekki á að baki A-landsleik.
„Ég er bara spenntur. Ég fékk að
heyra þetta á sunnudaginn. Ég er
fullur eftirvæntingar en um leið
mjög stoltur. Það verður skemmti-
legt að spila fyrsta landsleikinn þeg-
ar að því kemur,“ sagði Elvar þegar
Morgunblaðið tók púlsinn á honum.
„Ég var lítið að pæla í þessu og
þetta kom mér þokkalega á óvart.
Ef við skoðum meiðslin hjá leik-
mönnum sem spila fyrir utan, þá er
töluvert um þau. Þar eru góðir leik-
menn frá vegna meiðsla.“
Elvar leikur með Nancy í Frakk-
landi og hefur stimplað sig hratt og
vel inn í liðið. Leikur hann ýmist
sem skytta eða leikstjórnandi.
„Mér líkar mjög vel að vera hjá
Nancy. Fyrst og fremst er mjög
gaman að vera í lykilhlutverki í
sókn. Ég fæ svolítið að stjórna sókn-
inni og finn fyrir trausti frá þjálf-
aranum. Ég hef heilmikið að segja
um hvernig við spilum í sókn. Liðinu
hefur hefur gengið vel og það hefur
hjálpað til. Mér finnst mjög vel stað-
ið að öllum málum hjá félaginu. Ég
hef reyndar bara samanburðinn við
Þýskaland en hér er alla vega öll
umgjörð til fyrirmyndar. Ég er með
samning út 2022 og get þá fram-
lengt,“ sagði Elvar en hann hafði
svipast um eftir öðru liði í vetur þar
sem honum fannst hann ekki fá næg
tækifæri hjá Stuttgart í efstu deild
Þýskalands. Þar lék hann á síðasta
tímabili og fyrri hluta þessa tímabils
eftir að hafa hleypt heimdraganum
og yfirgefið Aftureldingu.
„Ég var orðinn óánægður með
mitt hlutverk hjá Stuttgart. Ef eitt-
hvað gott myndi gerast í janúar þá
sagðist þjálfarinn ekki ætla að
standa í vegi fyrir því að ég færi
annað. Það varð niðurstaðan. Fyrst
þegar ég heyrði af áhuga Nancy var
ég reyndar ekkert of spenntur
vegna þess að liðið er ekki í efstu
deild. En mér leist betur á eftir við-
ræður við Frakkana og heyrði hug-
myndir þeirra varðandi liðið. Þeir
vilja komast upp í efstu deild og ég
vona innilega að það gerist í ár. Ef
það gerist þá mætti segja að ég sé
bara að taka eitt skref til hliðar og
annað fram á mínum ferli. Það kom
mér dálítið á óvart hversu sterk
bestu liðin í frönsku b-deildinni eru
og þar á meðal okkar lið,“ útskýrði
Elvar.
Möguleikarnir fyrir hendi
Nancy er í 3. sæti með 32 stig og
er þremur stigum á eftir toppliðinu
Saran þegar fjórir leikir eru eftir af
deildakeppninni. Efsta liðið fer beint
upp en næstu sex berjast um eitt
sæti í efstu deild að ári. Hvernig
metur Elvar möguleikana á því að
fara upp um deild?
„Þetta er undir okkur komið. Við
erum komnir í úrslitakeppni sem er
frekar skrítin. Sex lið berjast um eitt
laust sæti og verður úrslitakeppnin
afgreidd frekar hratt. Stefnt er að
því að ljúka úrslitakeppninni um
miðjan maí. Við eigum fjóra leiki eft-
ir í deildakeppninni. Einn fyrir
landsleikjahléið og eftir hléið verða
þrír síðustu leikirnir í deildinni á
frekar skömmum tíma. Við eigum
hörkumöguleika á að komast upp,“
sagði Elvar Ásgeirsson.
Var lítið að
velta fyrir sér
landsliðssæti
- Elvar kann vel við sig hjá Nancy
- Barátta um sæti í efstu deild
Ljósmynd/Grand Nancy Métropole
Sigursælir Elvar Ásgeirsson fagnar sigri ásamt samherjum sínum í Nancy
en liðið er í harðri baráttu um sæti í efstu deild í Frakklandi.
_ Skautafélag Akureyrar vann Fjölni
13:1 í fyrsta úrslitaleik liðanna um Ís-
landsmeistaratitil kvenna í íshokkí á
Akureyri í fyrrakvöld. Leiknum var ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun um
kvöldið. Sunna Björgvinsdóttir skor-
aði þrjú mörk, Saga Sigurðardóttir
tvö, Hilma Bergsdóttir tvö og þær
Jónína Guðbjartsdóttir, María Eiríks-
dóttir, Kolbrún Garðarsdóttir, Berg-
lind Leifsdóttir, Ragnhildur Kjart-
ansdóttir og Teresa Snorradóttir eitt
hver. Liðin mætast
öðru sinni í Egils-
höllinni í kvöld og
þar getur SA
tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn.
_ Áætlanir um
evrópsku ofur-
deildina í fótbolta
voru endanlega skotnar í kaf í gær.
Manchester United, Liverpool, Arsenal
og Tottenham hættu öll við þátttöku í
deildinni seint í fyrrakvöld, á eftir
Chelsea og Manchester City, og í gær
bættust Atlético Madrid, Inter Mílanó
og AC Milan í þann hóp. Þar með
standa aðeins Real Madrid, Barcelona
og Juventus eftir af þeim tólf félögum
sem boðuðu stofnun deildarinnar á
sunnudaginn.
_ Sebastian Alexandersson og Guð-
finnur Kristmannsson hafa verið
ráðnir þjálfarar karlaliðs HK í hand-
knattleik til þriggja ára, með óupp-
segjanlegum samningi, frá og með
komandi sumri. Þeir stýra karlaliði
Fram til loka yfirstandandi tímabils en
taka síðan við Kópavogsliðinu af Elíasi
Má Halldórssyni sem fer til Noregs
þar sem hann tekur við þjálfun
kvennaliðs Fredrikstad. HK er efst í 1.
deild karla, Grill 66-deildinni, þegar
fimm umferðum er ólokið, og er þar í
hörðum slag við Víking um sigur í
deildinni og öruggt úrvalsdeildarsæti
á næsta tímabili.
_ Sara Björk
Gunnarsdóttir,
landsliðsfyrirliði í
knattspyrnu og
leikmaður Evrópu-
og Frakklands-
meistara Lyon og
íþróttamaður árs-
ins 2020, er komin
í barneignarfrí.
Sara staðfesti þetta á Instagram í gær
ásamt unnusta sínum, knattspyrnu-
manninum Árna Vilhjálmssyni. Barnið
á að fæðast í nóvember og því liggur
fyrir að Sara mun ekki leika með
landsliðinu í fyrri hluta undankeppni
HM 2023 sem hefst í haust. Sara er
leikjahæsta landsliðskona Íslands frá
upphafi með 136 A-landsleiki.
Eitt
ogannað