Morgunblaðið - 22.04.2021, Page 32
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór er
bæjarlistamaður Hafnarfjarðar
Tilkynnt var í gær að tón-
listarmaðurinn Friðrik Dór
hefði verið valinn bæjar-
listamaður Hafnarfjarðar
2021. Við athöfn í Bæj-
arbíói í gær, þar sem til-
kynnt var um valið, sagði
Rósa Guðbjartsdóttir bæj-
arstjóri að Friðrik Dór
Jónsson hefði sungið sig
inn í hjörtu landsmanna og
auðgað menningarlíf bæj-
arins með viðburðum sín-
um. „Fjölbreyttur ferill
Friðriks Dórs spannar ekki bara fjölbreytt verkefni í
tónlist sem frábær söngvari, hugljúfur lagahöfundur og
snjall textasmiður á íslensku – með tilheyrandi stuðn-
ingi við íslenska tungu – heldur hefur listsköpun hans
svo sannarlega haft áhrif og mótað umhverfi hans og
samtíma,“ sagði Rósa.
www.rafkaup.is
FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 112. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Ragnheiður Júlíusdóttir tryggði Íslandi jafntefli, 21:21, í
síðari umspilsleiknum gegn Slóveníu á Ásvöllum í gær-
kvöld þegar hún jafnaði úr vítakasti eftir að flautað
hafði verið til leiksloka. Jafnteflið dugði þó skammt,
Slóvenar unnu samanlagt með tíu mörkum og fara á
HM á Spáni í lok ársins, en allt annað var að sjá til ís-
lenska liðsins en í fyrri leik liðanna í Ljubljana. »27
Ragnheiður tryggði jafntefli í lokin
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hópurinn Seiglurnar býður konum
upp á hásetapláss í kvennasiglingu
á skútunni Esju umhverfis landið í
sumar. Siglingin hefst í Reykjavík
og verður stoppað á sjö stöðum, en
konur geta sótt um pláss á einum
eða fleiri leggjum.
Leiðangursstjóri er Helena W.
Óladóttir umhverfisfræðingur.
Fyrir réttu ári var hún valin í hóp
300 kvenna víðs vegar úr heim-
inum til þess að sigla í kringum
hnöttinn og rannsaka plast í haf-
inu. Vegna kórónuveirufaraldurs-
ins var siglingunni frestað en ísinn
var brotinn og Helena ákvað að
kynna sér skútusiglingar hér-
lendis. „Hafið hefur alltaf togað í
mig og mér var tekið tveim hönd-
um í heimi siglinganna,“ segir hún.
Samt hafi það slegið sig hvað fáar
konur hafi verið sýnilegar í grein-
inni. Hún hafi grennslast fyrir um
ástæðuna og komist að því að
margar konur væru með skemmti-
bátapróf, hefðu unnið á sjónum og
ættu góð tengsl við sjófarendur og
hafið, en engu að síður væri þetta
karlaheimur. „Hugmyndin um
kvennasiglinguna kom upp í sam-
ræðum við nokkrar konur í vetur
og við vildum fyrst og fremst vekja
athygli á því að hafið er okkar
stærsti bakgarður, sem við þurfum
að hugsa um ekki síður en landið
sem við gætum, og okkur langar til
þess að hvetja konur til þess að
taka sér pláss í þessu umhverfi.“
Þriggja vikna ferð
Eins og fram kemur á heimasíðu
Seiglanna (kvennasigling.is) er
stefnt að því að ferðin standi yfir
frá 13. júní til 6. júlí. Allir hásetar
taka þátt í undirbúningnum, sem
hefst 20. maí og verður síðan fram-
haldið helgina 28.-30. maí. Sérstök
dagskrá, sem fellur að markmiðum
ferðarinnar, verður á hverjum
áfangastað í samvinnu við heima-
menn, siglingaklúbba á viðkomandi
stað og aðra.
Nafn hópsins vísar til umhverfis-
mála, verkefnisins og þátttakenda.
„Það þarf seiglu til þess að takast
á við umhverfismál framtíðar og
það þarf svo sannarlega seiglu til
þess að sigla umhverfis Ísland,“
segir Helena um væntanlega
áhöfn, en fimm tveggja manna
klefar eru í skútunni og því geta
fimm hásetar verið með skipu-
leggjendunum fimm á hverjum
legg. „Við þurfum gott lið til þess
að stýra skútunni og takast á við
vindinn og öldurnar.“
Forsprakkar verkefnisins eru
Helena, Sigríður Ólafsdóttir skip-
stjóri, Anna Karen Jörgensdóttir,
Bryndís Skúladóttir og Tara Ósk
Markúsdóttir. „Við erum vanar
siglingakonur, kunnum handtökin,
og okkur langar til þess að bjóða
með okkur konum sem hafa ekki
fengið tækifæri til þess að fara í
svona siglingu hingað til.“
Verkefnið kallast „Hafið er okk-
ar umhverfi – Kvennasigling 2021“
og styrkja fyrirtæki og stofnanir
Seiglurnar. „Faxaflóahafnir,
Tækniskólinn og Brim eru kjöl-
festustyrkveitendur, gera góða
hluti í umhverfismálum og því
bjóðum við þeim að senda sinn
fulltrúa í siglinguna, en annars
hefur umsóknum áhugasamra
kvenna rignt yfir okkur,“ segir
Helena.
Umsóknir þurfa að berast á
kvennasigling@gmail.com fyrir 1.
maí. „Vonandi fjölgum við þeim
konum sem taka pláss á hafinu.“
Vantar háseta á bát
- Seiglurnar bjóða upp á kvennasiglingu umhverfis landið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Seiglurnar Á æfingu í fyrradag. Frá vinstri eru Helena W. Óladóttir leið-
angursstjóri, Anna Karen Jörgensdóttir, Bryndís Skúladóttir, Tara Ósk
Markúsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir skipstjóri. Fleiri kvenna er nú leitað.
Á ferðinni Bryndís Skúladóttir hefur mikla reynslu af siglingum.